Morgunn - 01.06.1973, Qupperneq 73
HINN FURÐULEGI EDGAR CAYCE
71
stofnuninni á Virginia Beach í Virgina-fylki i Bandaríkjunum.
Með aðstoð hans hafa rúmlega tólf þúsund manns náð aftur
fullri heilsu með því að fara að þeim ráðum og beita þeim að-
gerðum, sem hann lagði til, og í ýmsum tilfellum var um að
ræða sjúkdóma, sem taldir voru ólæknandi með venjulegum að-
ferðum læknavísindanna, og sjúklingar því sviptir ailri bata-
von.
En þrátt fyrir þetta stórmerka skýrslusafn Cayces, sem allir
eiga aðgang að til rannsókna, hafa hinir hefðbundnu læknisvís-
indamenn ekki gefið þeim hinn minnsta gaum. Eftir að hafa
hlegið að Edgari Cayce hfandi, láta þeir eins og hann hafi
aldrei verið til, þegar hann er látinn.
Þeim, sem hafa áhuga á að kynna sér störf þessa merkilega
manns frekar, vil ég benda á bókina There is a River eftir Tho-
mas Sugrue, sem gefin var út af útgáfufirmanu Henry Bolt og
Cö, árið 1942. Er bók þessi að miklu leyti byggð á samtölum
höfundar við Cayce og samstarfsmenn hans.
Hinar heimspekilegu hliðar á lífi Cayce og starfi eru ræddar
í annari ágætri bók Many Mansions eftir Gina Cerminara.
Þá má og geta þess, að bókaútgáfan örn og örlygur h.f.,
Reykjavík, hefur þegar gefið út tvær bækur rnn Cayce The
Sleeping Prophet eftir Jess Steam, sem á íslenzku hefm- hlotdð
nafnið Edgar Cayce — undralæknirinn og sjáandinn og
Dreams eftir Elsie Sechrist, sem á íslenzku heitir Draumar,
skyggni og vitranir. Þá mun vera væntanleg Cayce-bókin Ori-
gin and Destiny of Man eftir Lytle W. Robinson.