Morgunn - 01.06.1973, Síða 83
FÉLAGSFRÉTTIR
81
hæfileika hennar framvegis. — Henni eru fluttar einlægar
þakkir fyrir starf hennar.
Svo sem kunnugt er, hefur það verið stefna
e ags ei ir f0rystumanna SRFl að styrkja og byggja upp
ielagsstarfsemma ems og kostur er. Petta hei-
ur e.t.v. gengið hægar en skyldi, en þó hefur samt nokkuð mið-
að áfram. — Síðan Morgunn kom síðast út hefur verið stofnað
Sálarrannsóknafélag á Sauðárkróki, og er það stofnað sem
deild í SRFf. —; Þá hefur félagið á Selfossi verið gert að deild í
SRFf, með lagabreytingu, sem samþykkt var á nýafstöðnum
aðalfundi félagsins þar á staðmnn. — Þá gerðist það, að fé-
lagið sem stofnað var í Vestmannaeyjum fyrir rúmum áratug
tók þá ákvörðun að gerast deild i SRFÍ. Gerðist þetta í vetur
og er það fagnaðarefni, en þar skyggja að sjálfsögðu á um stund
hinir hörmulegu atburðir, er þar urðu þegar hinar hrikalegu
náttúruhamfarir hófust þar með eldgosinu í janúar síðastliðn-
um. Morgunn vill ekki láta hjá liða að votta þessari félagsdeild
og því samfélagi, sem hún er hluti af, dýpstu samúð vegna
hins geigvænlega áfalls, sem þarna hefur dunið yfir, þótt um
leið megi ekki gleyma, að þakka forsjóninni, að ekki varð af
manntjón, er þetta samfélag svo sviplega var sem næst rifið
upp með rótum. — Allir vona, að þessum hamförum megi senn
slota og að íbúmn Vestmannaeyja megi auðnast að taka upp
búsetu á ný á sínum heimaslóðum, og þar með að allt megi
þar falla í eðlilegt horf, og félagsdeildin þar þá geta tekið upp
þráðinn á ný þar sem frá var horfið. — Morgunn biður þeim
öllum blessunar í þeim mótblæstri sem nú dynur yfir þá og
vonar, að handleiðsla Drottins megi að lokum leiða allt fram
til góðs.
Eins og s.l. sumar hefur Björg Ólafsdóttir,
miðill, orðið við tihnælum stjórnar SRFf að
fara í heimsóknir til félaganna úti um land.
Er í ráði að hún dvelji um tíma á eftirfarandi stöðum: Á Sel-
fossi í júní, á Akureyri í lok júní og byrjun júlí, á Austurlandi
í ágúst, á Sauðárkróki og nágrenni í byrjun september, og að
lokum á fsafirði í lok september. — Nánari ákvörðun um tíma á
Starfsemin
í sumar.