Morgunn - 01.12.1976, Síða 17
DUI .SRYNJANIK
115
niðurstöðu, að í lionum væri einhvers konar veila í sambandi
við raunveruleikann, seni ylli því, að hann skynjaði myndir,
sem virtust einhvern veginn hafa losnað úr sambandi við eðli-
lega rás tímans. Og þegar við þetta bæltist svo, að hann hélt
stöðugt áfram sömu berdreymninni, þá leiddi það til þess að
liann skrifaði metsölubók sína An Experiment with Time:
Tilraun með tímann. Sjálfur lýsti hann bók sinni svo, að hún
kæmi fram með fyrstu vísindalegu sannanirnar fyrir ódauð-
leikanum. Þegar bókin kom út þá streymdu til hans bréf frá
lesendum hennar, sem héldu ]>ví fram, að þeir hefðu orðið
fyrir samskonar yfirskilvitlegri reynzlu. Dunne undraðist
þetla, og kvað svo að orði i formála annarar útgáfu bókar
sinnar: „Ef framtíðarskyggni er sannreynd, þá er það sann-
reynd, sem gjörsamlega umbyltir öllum grundvelli undir fyrri
skoðunum okkar á alheiminum.“
Það er gjörsamlega vonlaust að gera hér grein fyrir hug-
myndum og skilningi Dunnes á timanum í stuttu ei'indi. Til
þess er það alltof flókið mál. Þess skal hér aðeins getið, að
áln ifamesti stuðningsmaður og túlkari skoðana Dunnes hefur
verið skáldið J P. Priestley, sem er kunnugt orðið hér heima
á Frórti fyrir afburðagóð leikrit, sem flutt hafa vei'ið í útvarpi
og á leiksviði. T tveim leikritum sem Leikfélag Reykjavíkur
hefur flut.t: Time andi the Conways og I have been here bejore
endurspeglast skoðanir Dunnes á timanum og furðulegum
fyrirbærum hans. í bók sirini Man and Time helgar Priestley
Dunne heilan kafla og nefnir Priestley þar dæmi um draunra,
sem styðji skoðanir og skýringar Dunnes á framskyggninni.
Einna athyglisverðastur þeirra er draumur Dr. Louise E.
Rhine, sem sjálf skrifaði hann og birti í ameríska timaritinu
Journal oj Paraspychology. Sú var skoðun Louise, að draum-
urinn hefði hjálpað henni til þess að bjarga lifi eins árs garnals
sonar síns. f timaritsgreininni kemst hún svo að orði: ,,Mig
dreymdi snemma morguns. Mér fannst ég og börnin hafa
faríð í útilegu með nokkrum vinum. Við komum okkur fyrir
í fallegu skógarrjóðri við svolitla vik milli tveggja hæða. Það
var skóglent þarna og tjöldin okkar vom undir trjánum. Ég