Morgunn - 01.12.1976, Page 38
JAMES GRAYSON BOLEN:
DR. MED. SHAFICA KARAGULLA
OG SKOÐANIR HENNAR
(Sl. haust flutti ritstjóri MOfíG-
UNS sjö erindi í útvarp í flokki
erinda, sem hann kallaði Dulskynj-
anir. Síðasta erindið sem nefndist
„Visindaleg rannsókn“, fjallaði um
rannsóknir drs. Shaficu Karagullu
á sálrænum hæfileikum fólks, og
hvernig megi beita þeim i þágu vís-
indanna. En þareð þröngur rammi
útvarpserindisins, er engan veginn
nógu rúmur til þess að gera skoð-
unum þessa framúrskarandi vísinda-
manns virðingatverð skil, er úr því
bætt með því að birta hór ítarlegt
og stórmerkilegt viðtal við vísinda-
mnnninn, sem blaðamaðuriim James
Grayson Bolen átti við dr. Shaficu
Karagullu og birtist i hinu ágæta
tímariti Psychic árið 1973.
Frá starfsferli drs. Karagullu er
skýrt eftir viðtalið, en aðeins skal
minnst á það hér, að brautryðjanda-
starf hennar í læknisfræði og dul-
sélarfræði hefur sannfært hana um það, að maðurinn sé samsettur af mis-
munandi tegundum orku. Uún álítur að efnislikaminn sé aðeins ein mynd
þessarar orku, eða sú sem sýniieg er, andstætt þvi sem visindin hafa haldið
fram. 1 þessu stórmerkilega viðtali ræðir hún opinskátt og liispurlaust tmi
rannsóknir sínar, kenningar og sjónaimið og fjallar um stöðu mannsins i
alheiminum, bæði andlega og efnilega. í þessu viðtali kemur glögglega
fram sá kjarkur og það hugrekki, sem lýsir sér svo vel i hinni athyglis-
verðu bók hennar Breakthrough to Creatively, sem komið hefur út á ís-
lenzku með nafninu Nýjar viddir í mannlegri skynjun).