Morgunn - 01.12.1976, Blaðsíða 58
156
DK. MED. SHAFICA KARAGULLA
mig að hverfa frá hefðbundnum skoðunum mínum og hug-
myndmn um manninn og byrja að hugsa um hann sem lif-
andi heild orkukerfa. Persónur með fjarskynjunarhæfileika og
framsýnigáfu kollvörpuSu algerlega viðhorfum minum. sem
höfðu mótasl af sjónarmiðum visinda og lækna.
Blaðam.:
Hvernig er alheimurinn frá yÖar sjónarmiSi?
Karagulla:
Hann er langtum flóknara fyrirbæri en ég hafði gert mér
í hugarlund. i honum finnast mörg vitundarsvið. Heimspek-
ingamir til forna sögðu, að vitundin væri árangur af samein-
ingu anda og efnis eða lifsform. Það er svipað og ljós, sem
myndast við sameiningu tveggja rafskauta.
Vitundinni hefur oft verið líkt við ljós og liklegt er að þetta
sé ástæðan fyrir þrieinuigu trúarbragðanna — faðir ■— móðir
—- sonur. Sonurinn er þriðja mynd þessarar sameiningar anda
og efnis og þessi kenning virðist mér ekki fjarri lagi.
Vitundarsviðin byggjast þess vegna á því í hvaða mæli efni
og andi sameinast.
Ég hef þá tilfinningu að hver einstök pláneta hafi sérstaka
vitund, hvort heldur það er jörðin, tunglið eða sólin. Og ef
við förum að hugsa þannig, tekst okkur betur að skilja hinav
fornu kenningar Hindúa. Þegar við álitum þá heiðna, voru
þeir að tala um vitundarlíf, eins og það birtist á ýmsan hátt
í tilverunni: J’eir voru i rauninni að tala um birtingu Guðs i
mörgum myndum. Þetta er fjarri því að vera mín hugmynd,
heldur er þetta uppgötvun hinna fornu spekinga og mér finnst
hún augljós.
Blaðam.:
Hver er hugmynd ySar um GuS?
Karagulla:
Ég trúi því að voldug Vitund birti sig í jörð okkar og sól-
kerfinu og öllum stjörnukerfum og þessa vitund nefnum við