Morgunn - 01.12.1976, Síða 68
HKII.SULIND . . .
1ÍÍ6
efnum. Þetta er öllum deginum ljósara. Það þarf því engan
að undra, þótt fólk sé farið að líta í kring urn sig eftir ráðum
til þess að halda andlegu jafnvægi í þessu ölduróti haráttu og
breytinga. Við þurfum að læra að kyrra hugann, svo við get-
um varist ótta og fumi í lifsbaráttunni.
Frá alda öðli hafa austrænar þjóðir kunnað ráð við þessu,
en það er hugleiðsla. Áhugi vesturlandabúa hefur aukist mjög
undanfarna áratugi á þessari aðferð, sem ýnisum hefur gefist
mjög vel. Sökum streitu nútimans þarf fólk í auknum mæli á
að halda réttri hvíld í sumarfríum sínum. Margir treysta sér
tæplega í erilsöm ferðalög. Þetta fólk þarf í rauninni á and-
legri uppbyggingu að halda og það hafa venjuleg gistihús ekki
geta boðið uppá hingað til.
En nú beíur verið gerð athyglisverð tilraun til þess að baita
úr þessu- tJlfur Ragnarson, laiknir og Jón Sigurgeirsson, skóla-
stjóri á Akureyri eru menn, sem árum saman hafa kynnt sér
liinar andlegu hliðar mannsins og mikilvægi sálarfriðar í erils-
sömu lífi nútimamannsins. Það er því engin tdlviljun, að ein-
mitt þessir menn hafa beitt sér fyrir tilraun til þess að koma
upp heilsulind eða hvildarstöð fyi'ir streituþjakað fólk, þar sem
ka]ipkostað er að sjá dvalargestum ekki einungis fyrir líkam-
legri hvíld og góðum beina, heldur er einnig hugað að and-
legri velferð þeirra og uppbyggingu.
Þessi tilraun var gerð síðastliðið sumar að Laugalandi í
Eyjafirði. Dvalargestum ber öllum saman um það, að hér hafi
vel til tekist og hér sé einmitt boðið það sem á hefur vantað
annars staðar.
Laugaland er staðsett í fögru umhverfi skammt innan við
Akureyri. Þar er sundlaug og gott til gönguferða um nágrenn-
ið. Matur er íburðarlaus en hollur. Það er einkum fernt sem
aðgreinir þessa heilsulind frá öðrum hvildar- eða giststöðum
svipaðs eðlis og dvalargestum stendur til boða ef þeir vilja:
yoga-Ieikfimi, huglækningar, lifandi músík og hugleiðsla.
Hið síðastnefnda er e. t. v. rnerkasta nýungin. Hún stendur
i klukkustund á degi hverjum. Hún hefst jafnan með viðeig-
andi tónlist. Hugleiðslunni er stjórnað af einum manni, sem
i