Morgunn - 01.12.1976, Síða 79
MORGUNN
177
21. jiiní, 1976.
ER ÞETTA DULARFULLT FYRIRBÆRI?
Föstudaginn 26. febrúar 1943 klukkan á milli 9 og 10 ár-
degis fór ég eins og venja min var niður í miðstöðvarherbergið,
lil þess að lífga eldinn í miðstöðinni, sem venjulega var lifandi
að morgni, en í þetta sinn var alveg dautt í henni. Tók ég þá
alla ösku og allt gjall út úr henni svo ekkert var eftir í mið-
stöðinni. Af því að veðrið var gott, frostlaust og milt, hugsaði
ég mér að ég skildi þá ekki kveikja upp þennan dag.
Næsta dag laugardaginn 27. febniar fór ég svo niður í mið-
stöð á líkum tíma og morguninn áður milli 9 og 10 árdegis,
en þá brá svo kynlega við að það var eldur í eldstónni, en rist
sem er fyrir framan eldinn venjulega, hafði ég lagt upp á mið-
stöðina daginn áður og var hún þar sem ég skildi við hana.
Setti ég svo nokkur dagblöð sem ég kom með niður til að
kveikja upp með, inn í eldholið og varð eðlilegur logi. Lét ég
svo kol á eldinn og logaði ágætlega. Enginn í húsinu hafði lagt
eld i miðstöðina og enginn óviðkomandi gat komist inn i húsið,
enda var snjóföl úti og engin spor lágu að húsinu.
Tvær konur komu inn i miðstöðvarklefann föstudaginn 26.
febrúar og sáu þær að enginn eldur var i miðstöðinni og að
báðar hurðir á miðstöðvarkatlinum voru opnar. Þær höfðu þau
orð yfir, að nú hefði drepist i miðstöðinni hjá Hannesi.
Hannes FriSsteinsson.
Mér barst þetta bréf í hendur í síðustu viku þegar verið var
að grúska í gömlu dóti. Mér er þetta sjálfri mjög minnisstætt.
Þess má geta að í húsinu bjuggu aðeins tvær fjölskyldur og
var sér miðstöðvarkynding fyrir hvora íbúð f}TÍr sig og þessar
miðstöðvar ekki staðsettar i sama herbergi.
Dóra Hannesdótlir.