Fréttablaðið - 23.11.2010, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 23. nóvember 2010
0,20% 0,25%
3,45%
S
24
E
R
Í
EI
G
U
B
Y
R
S
Samanburður debetreikninga*
Oft er það svo að við erum uppteknari af því sem okkur
langar í og sækjumst eftir, en því
sem við eigum og höfum. Gleðin
er kannski ósvikin þegar óskin
rætist, en innan skamms verðum
við heimablind. Það sem fengið
er verður smám saman sjálf-
sagður hlutur, og áherslan flyst
yfir á annað. Þetta á ekki aðeins
við um dauða hluti, heldur einnig
umhverfi og aðstæður, heilsu,
góða vini og fjölskyldu. Þessi
tilhneiging er val, ekki náttúru-
lögmál. Við erum ekki fórnar-
lömb umhverfisins, nema við
spilum með. Það er okkar val að
gleðjast hvern dag yfir því sem
við eigum, í stað þess að myrkva
hugann með öllu því sem okkur
vantar, eða langar í. Þegar til
stykkisins kemur er bjartsýni
oftar en ekki nær raunsæinu en
svartsýni, þó að það sé auðvitað
ekki einhlítt. En sem þjóð erum
við dálítið fyrir upphrópanir og
annaðhvorteða málflutning. Sem
sagt, við og hinir. Svart eða hvítt!
En þannig er bara ekkert í til-
verunni, nema í hugskoti þeirra
sem kjósa að hýsa slíka speki.
Farsældin er sjaldan fylginautur
fyrirlitningar og fordóma.
Sjálfstæð þjóð
Í ljóðum fyrri tíma skálda er
landið í öndvegi. Virðing og
ást á fósturjörðinni. Galdur og
töfrar íslenskrar náttúru. Heit-
ar kenndir voru tjáðar með skír-
skotun í fossa og læki, dali og fjöll.
Þá lifðu Íslendingar almennt nær
þessari náttúru en nútímamenn
gera, og voru ótruflaðir af far-
síma, sjónvarpi og bílaumferð. En
íslenski metingurinn, slúðrið og
derringur inn var ekki óþekktur
þá frekar en núna. Fátækt fyrri
tíma á ekkert skylt við það sem við
köllum fátækt í dag, þó að hún geti
sannarlega verið bæði sár og erfið,
og ætti ekki að þekkjast í nútíma-
samfélagi.
Maður veltir því stundum fyrir
sér hvernig manni hefði liðið í rign-
ingunni á Þingvöllum árið 1944.
Hvað þetta var stór stund. Orðin
sjálfstæð þjóð á eigin vegum.
Hver og einn getur haft sína
skoðun á hvernig til hefur tekist,
núna þegar til stendur að endur-
skoða stjórnarskrána.
Greiðar samgöngur, góðir vegir
og almenn bifreiðaeign hefur fært
okkur aftur nær landinu sjálfu.
Við erum enn á ný komin í náið
tilfinninga samband við íslenska
náttúru. Nú birtist það ekki aðeins
í ljóðum og lögum, heldur í barna-
bókum, kvikmyndum og sjón-
varpi. Ekki eru allir á einu máli
um hvernig umgengni við landið
á að vera, enda væri það dálítið
óíslenskt ef svo væri.
Áhrif bókmenntanna
Maður leiðir stundum hugann að
því hvernig íslensk þjóð væri ef
hún ætti ekki bókmenntaarfinn.
Ef bókmenntir hefðu ekki verið
jafn ríkur þáttur í sjálfsmynd
þeirra sem hér hafa lifað og látist
gegnum tíðina. Við tökum þessa
hefð fyrir sjálfsagðan hlut, en hún
er það hreint ekki. Í augum ann-
arra þjóða höfum við lengi verið
menningarþjóð, auk þess að vera
fiskveiðiþjóð. En það besta er, að
þetta er ekki fortíðarfyrirbæri,
heldur íslenskur veruleiki enn í
dag. Þrátt fyrir sjónvarp, kvik-
myndir, Internetið og hljóðbæk-
ur lesum við enn bækur, ekki bara
til fróðleiks, heldur skemmtunar.
Lestrarnautnin er enn í blóð-
inu. Um það vitnar íslensk bóka-
útgáfa.
Þessa dagana eru nýútkomnar
bækur það langáhugaverðasta í
fréttum.Verk íslenskra höfunda
eru í vaxandi mæli þýddar á önnur
tungumál og sumir þeirra þekktir
og virtir víða um heim. Og þetta er
fjölbreytt flóra.
Á Íslandi eru jólabækurnar eins
sjálfsagðar og jólatréð. Og þó að
höfundur fyrirgefningarinnar
og kærleikans eigi aðfangadags-
kvöld, þá er næsta víst að víða
verður hann að deila því með bók
sem tekin er með eftirvæntingu
úr skrautlegum jólapappír, eftir
kvöldmat og hugsanlega kirkju-
ferð.
Þetta er það sem mestu skiptir
hér á landi: Tungan, landið og
miðin, sjálfstæðið, náttúruauðlind-
irnar – og bókmenntirnar. Alltaf er
það þó svo að veldur hver á heldur.
Og fyrir fámenna þjóð í dreifbýlu
landi, er aldrei of mikil áhersla
lögð á frumkvæði einstaklings-
ins til orða og athafna. Ekki næra
hjarðeðlið. Því að hér munar um
hvern mann.
Landið og við
Jónína
Michaelsdóttir
Blaðamaður
Í DAG
Hver og einn
getur haft sína
skoðun á hvernig til
hefur tekist, núna þegar
til stendur að endurskoða
stjórnarskrána.
AF NETINU
Sjálfshól með hangandi hendi
Kosningabarátta mín til stjórnlagaþings hefur ekki verið dýr. Kostaði 5000
krónur í ljósmynd og 2000 krónur í benzín. Meira verður það ekki. Ég hef
bloggað eins og áður. Fjölgaði pistlum um einn á dag, sem hefur fjallað um
stjórnlagaþingið og stjórnarskrána. Síðan hef ég svarað spurningum DV og
Svipunnar og sett greinar inn á framboðssíðu DV. Þetta er öll mín barátta
hingað til. Fór ekki í Ríkisútvarpið. Senn mun ég bæta örlítið um betur og
flytja ykkur persónulegar lofræður um sjálfan mig, ef til vill eina á dag. Vafa-
laust mun ég fyrirverða mig fyrir sjálfshólið, þegar upp er staðið.
jonas.is
Jónas Kristjánsson
Fylgjumst með og öflum okkur þekkingar
Þegar litið er yfir samskipti Íslands og Bandaríkjanna síðan 1945 sést
glögglega að bandarískir öryggis- og hernaðarhagsmunir réðu í raun ferðinni
í öllum meginatriðum allan þennan tíma, allt frá beiðni um þrjár herstöðvar
til 99 ára 1945 til brottfarar varnarliðsins 2006. [...] Þótt Kalda stríðinu sé
lokið verður seint friðvænlegt í heiminum. Nýjar aðstæður geta skapast sem
hafa áhrif á stöðu einstakra þjóða.
Áríðandi er að við Íslendingar fylgjumst vel með og öflum okkur þekkingar
sem nýtast megi til að spila sem best úr okkar spilum sem herlaus þjóð sem
vill viðhalda friði og öryggi.
omarragnarsson.blog.is
Ómar Ragnarsson