Fréttablaðið - 23.11.2010, Blaðsíða 24
23. NÓVEMBER 2010 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
Sprautun.is í Kópavogi sérhæfir sig
í sprautun á innréttingum og inni-
hurðum og býður upp á mikið úrval
lita í hálfmöttu eða háglans. Theódór
Pálsson, eigandi Sprautunar.is, skipti til
skamms tíma vinnustundunum niður
á milli sprautunarinnar og flugs fyrir
Icejet, en hefur nú snúið sér alfarið að
sprautuninni, enda segir hann það
hafa færst mikið í vöxt að fólk endurnýi
innréttingar í stað þess að kaupa nýjar
auk þess sem nýsmíðin blómstri.
„Það er engin innrétting svo illa farin að
ekki sé hægt að gera hana eins og nýja,“
segir Theódór. „Oftast nægir að láta sprauta
framhliðina, innvolsið er alltaf eins.“
Theódór segir það kosta brotabrot af
verði nýrrar innréttingar að láta sprauta
þá gömlu. „Að sprauta heila eldhúsinnrétt-
ingu kostar á bilinu 80-150 þúsund á meðan
ný innrétting kostar fleiri hundruð þúsund,
fyrir utan kostnaðinn við að láta taka þá
gömlu niður og setja nýja upp.“
Sprautun.is sér ekki um að taka innrétt-
ingar niður og setja upp, enda segir hann
óþarfa að rífa þær niður fyrir sprautun.
„Það er nóg að taka hurðirnar og hliðarnar
af og koma með til okkar,“ segir hann. „Og
í versta falli, ef hurðirnar eru mjög illa
farnar, lætur fólk bara saga nýjar eftir
máli og kemur með til okkar í sprautun.
Það er mjög ódýr aðgerð líka.“
Sprautun.is sprautar ekki bara eldhús-
innréttingar, þeir geta sprautað nánast hvað
sem er. „Innihurðir sprautum við mikið,“
segir Theódór, „baðherbergisinnréttingar,
fataskápshurðir, bara nefndu það við getum
gert það eins og nýtt. Fólk vill ýmist hálf-
matt lakk eða háglans en þá notum við bíla-
lakk, sem er besti háglans sem til er. Og
við erum með mörg þúsund litaafbrigði og
öll litaspjöldin liggja frammi hjá okkur í
Sprautun.is. Fólk er oft ekki alveg búið að
ákveða hvað það vill þegar það kemur til
okkar, en við erum með sýnishorn og gefum
góð ráð sem auðvelda valið.“
Á heimasíðu Sprautunar.is er hægt að
velja hlekk sem heitir „Fá tilboð“ og skrifa
niður hugmyndir sínar um breytingarnar
sem fólk hefur í huga. „Það felst engin
skuldbinding í því að fá tilboð,“ segir
Theódór. „Stundum sendir fólk okkur
myndir eða útlistar hvað það er sem það
sækist eftir og við sendum þá til baka til-
boð miðað við bæði háglans og hálfmatt.
Fólk fær þá uppgefið hvað hugmyndir þess
kosta í framkvæmd og getur svo bara átt
tilboðið til betri tíma, ef það hentar ekki
akkúrat þá. Oft heyrum við ekkert frá fólki
aftur fyrr en það mætir á staðinn með inn-
réttingarnar og er búið að ákveða hvernig
sprautun það vill fá.“
Theódór er menntaður flugmaður og
flaug lengi fyrir Icejet, en hætti þar í
sumar og sneri sér alfarið að sprautuninni.
„Það var nú eiginlega sjálfhætt í fluginu,
fyrirtækið lagði upp laupana, en það kom
sér mjög vel því við erum að kafna í verk-
efnum í sprautuninni, bæði endurnýjun og
sprautun á nýsmíði innréttingafyrirtækj-
anna sem virðist vera að taka mikinn kipp.
Ég er samt ekki alveg hættur að fljúga, en
geymi það í bili,“ segir Theódór. - fsb
Innréttingar ganga í endurnýjun lífdaga
Sama innrétting eftir sprautun með háglanslakki.Gömul innrétting fyrir endurnýjun.
Hætti í fluginu til að einbeita sér að sprautuninni. Theódór í aksjón á verkstæði Sprautunar.is FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nýtt hús er í byggingu við heitu
laugarnar í grennd við Laugafell
á Fljótsdalsöræfum. Fljótsdals-
hreppur byggir húsið og að sögn
Gunnþórunnar Ingólfsdóttur
sveitarstjóra tekur það meðal
annars við hlutverki eldri húsa
á sama stað, sem eru gangna-
mannakofar og þjónustuhús fyrir
skipulagðar hestaferðir. „Svo
teljum við að ferðalög um þetta
svæði aukist með tilkomu Vatna-
jökulsþjóðgarðs og góðra vega,“
segir hún.
Húsið er um 300 fermetrar að
stærð sem skiptast í tvær hæðir.
Möguleiki verður fyrir fólk að
gista þar, bæði í stórum rýmum
fyrir hópa og einnig minni her-
bergjum.
Þar verður einnig borðsalur
og eldhús sem til að byrja með
miðast við að hópar sjái um mat-
reiðsluna sjálfir.
Gunnþórunn segir hreppinn
ekki ætla að reka húsið til
lengri tíma heldur verði fundinn
rekstrar aðili sem haldi þar uppi
vörslu. - gun
Nýtt hús á hálendinu
Stórhýsi er í smíðum við Laugafell. FRÉTTABLAÐIÐ/GUN