Fréttablaðið - 23.11.2010, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 23.11.2010, Blaðsíða 12
12 FRÉTTASKÝRING Hvað ætlast leiðtogar NATO fyrir? Rússar hafa sýnt áhuga á þátttöku í eldflaugavarnarkerfi sem leiðtogar aðildarríkja Atlantshafsbandalags- ins samþykktu á fundi sínum í Lissa- bon fyrir helgi að sett verði upp í Evrópu. Anders Fogh Rasmussen, fram- kvæmdastjóri NATO, lýsti þessu yfir að loknum fundi með Rússum á laugardaginn. Dmitrí Medvedev Rússlandsforseti tók þó fram að ekk- ert sé enn ákveðið. „Við tökum þátt á jafnréttisgrundvelli, annars verðum við ekki með,“ sagði hann. Þetta verða að teljast ótvíræð merki þess að þáttaskil hafi orðið í samskiptum Rússa og NATO. Fyrir fáum árum sýndu Rússar því harða andstöðu og töldu sér gróflega ógnað þegar Bandaríkin hugðust, einhliða, koma sér upp slíku kerfi. „Eldflaugavarnir verða hluti af almennri varnarstefnu okkar,“ segir í yfirlýsingu leiðtoganna. Sam- kvæmt yfirlýsingunni verður byggt á eldflaugavarnakerfinu, sem her- lið NATO hafa til þessa notað á bar- dagasvæðum. Hlutverk þess verður aukið þannig að það verði notað til að „vernda íbúa, landsvæði og her- lið“ allra aðildarríkja bandalagsins í Evrópu. Að auki verður eldflauga- varnakerfi það, sem Bandaríkja- menn hyggjast koma á fót í Evrópu, notað til að styrkja eldflaugavarnir NATO í Evrópu. Bandaríkjamenn hafa áratugum saman haft áhuga á að koma sér upp vörnum, sem felast í því að óvina- flugskeyti verði hægt að stöðva áður en þau lenda á skotmarki sínu. Hug- myndin er sú að með hjálp ratsjár- kerfa sé hægt að reikna út stefnu og staðsetningu aðvífandi flugskeyta svo hægt verði að senda flugskeyti á móti þeim og sprengja þau áður en þau valda tjóni. Það var Ronald Reagan sem kynnti þessi áform fyrst til sögunnar árið 1983. Þau voru harðlega gagn- rýnd og mikið grín gert að þessum stjörnustríðsleik kúrekans í Hvíta húsinu. Bill Clinton hélt áfram að þróa þessar hugmyndir og Bush yngri tók síðan við keflinu. Hann var fyrir fáum árum kominn á fremsta hlunn með að setja upp eldflaugavarnakerfi í Tékklandi og Póllandi. Bandaríkjastjórn féll frá þeim áformum eftir að Barack Obama tók við embætti, en í haust kynnti Obama nýja útfærslu eld- flaugavarna í Evrópu, sem gekk út á það að í staðinn fyrir að setja upp slíkar varnir í Tékklandi og Póllandi verða þær hafðar í bandarískum herskipum á Mið- jarðarhafi. Þetta væntanlega varnarkerfi Bandaríkjanna verð- ur partur af eldflaugavörnum Atl- antshafsbandalagsins í Evrópu. Áherslan er lögð á að sameina aðildarríki NATO og nágranna- ríki bandalagsins um sameigin- legar eldflaugavarnir, frekar en að Bandaríkin standi einhliða að verki. „Eldflaugavarnir munu tengja aðildarríkin nánari bönd- um,“ sagði Anders Fogh á leið- togafundinum. „Með því að bjóða Rússum að starfa með okkur tel ég að við höfum líka raunhæfa möguleika á að byggja öryggis- þak yfir allt Evrópu- og Atlants- hafssvæðið.“ gudsteinn@frettabladid.is Stjörnustríðsáform verði að veruleika Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins ákvað í Lissabon um helgina að settar yrðu upp eldflaugavarnir, og Rússar vilja nú vera með. 23. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR Eldflaugavarnakerfi NATO í Evrópu Verndarsvæðið Aðildarríki Atl- antshafsbanda- lagsins ætla að verja 200 milljörðum evra næsta áratuginn til að koma sér upp eld- flaugavarnar- kerfi í Evrópu. Ratsjárkerfi í Bretlandi og Tyrklandi verða tengd flugskeyt- um um borð í bandarískum herskipum, sem áformað er að hafa á Miðjarðarhafi frá og með næsta ári, og flugskeytum sem sett verða upp í Rúmeníu árið 2015 og Póllandi árið 2018. Bretland Ratsjárstöð í Fyling- dales-herstöðinni. Rússland Tyrkland Ratsjárstöðvar. Miðjarðarhafið Bandarísk herskip með Aegis-varnarflugskeytum. Rúmenía SM-3 varnar- flugskeyti. Pólland Patriot-flugskeyti.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.