Fréttablaðið - 23.11.2010, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 23.11.2010, Blaðsíða 14
 23. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR NÝSKÖPUN Hugmyndir um að breyta frystihúsinu á Stöðvar- firði í sköpunarmiðstöð þar sem saman koma íslenskir og erlendir listamenn voru kynntar á borgara- fundi fyrir skemmstu. Stöðin hefur sjálfbærni að leiðar ljósi og gert er ráð fyrir að hún gangi fyrir eigin rafmagni. Frá þessu er sagt í héraðs- blaðinu Austurglugganum. Það eru Zdenek Patak og Rósa Valtingojer sem eru frum kvöðlar verkefnisins. Lykilorð verkefnisins eru sköpun og sjálfbærni. Markmiðið er að ná saman hæfileikaríku fólki og tækjabúnaði á einn stað og koma á samstarfi. Meðal þess sem á að vera í gamla frystihúsinu er kaffihús, byggðasafn, listamannaíbúðir, verkstæði og hljóðver. - shá Stöðfirðingar hyggja á starfsemi í ónýttu húsnæði: Frystihús gert að miðstöð sköpunar HEILBRIGÐISMÁL Einstaklingar með geðraskanir geta skipt lykilmáli í að greina þarfir og þjónustu við aðra sem eins er ástatt um. Ný aðferðafræði í rannsóknum nýtir sér reynslu fólks með geðraskanir til að taka viðtöl og greina viðhorf þeirra. Þessi nálgun, „Notandi spyr notanda“, er að norskri fyrirmynd og var rædd á málþingi í Reykjavík nýverið. Norðmaðurinn Dagfinn Björgen er einn af frumkvöðlum þessarar aðferðafræði og segir hann í sam- tali við Fréttablaðið að margt hafi komið í ljós með þessari aðferð. „Eitt af því helsta var það að fólk með geðraskanir getur gefið góða og rökrétta mynd af því hvernig þjónusta við það er framkvæmd og hvernig má bæta hana,“ segir Björgen. Elín Ebba Ásmundsdóttir, fram- kvæmdastjóri Hlutverkaseturs og dósent við Háskólann á Akureyri, hefur verið frumkvöðull í þessari aðferðafræði hér á Íslandi. Í nýút- kominni skýrslu hóps sem hún leiðir, kemur fram að úrtakshóp- urinn skiptist í tvo meginhópa. Annar hópurinn hefur sætt sig við geðröskun sína og hömlur, en aðrir vilja komast aftur út í sam- félagið af fullum krafti. Elín Ebba segir að lykilatriði í því sé að gera fólki kleift að kom- ast aftur út á vinnumarkaðinn. „Þetta er bara ein aðferð til að koma fólki aftur í hringiðuna og þetta er öflug aðferð, vegna þess að um leið og fólk uppgötvar að það er að gera eitthvert gagn svínvirkar það í bata.“ Jón Ari Arason vann að fyrstu rannsókninni af þessari gerð árið 2004 og er kominn aftur að verk- efninu. Hann segir þessa vinnu stóran hluta af sínum eigin bata. „Ég var búinn að átta mig á því að ég hefði hæfileika en ég var ekki farinn að þora að nota þá fyrr en þarna.“ Jón Ari segir að hópurinn sem vann þá rannsókn hafi gert tví- þætt gagn, í fyrsta lagi með því að leggja fram tillögur byggð- ar á viðtölum við sjúklinga, „svo komum við líka inn sem fyrir- myndir þar sem fólk sér okkur, sem vorum áður í sömu stöðu og þau, komin töluvert lengra í bata- ferlinu og sér að þetta er hægt.“ Jón Ari segir að nokkuð hafi unnist í geðheilbrigðismálum í kjölfar vinnu þeirra, en betur megi ef duga skuli. thorgils@frettabladid.is Þetta er bara ein að- ferð til að koma fólki aftur í hringiðuna og þetta er öflug aðferð, vegna þess að um leið og fólk uppgötvar að það er að gera eitthvert gagn svínvirkar það í bata. ELÍN EBBA ÁSMUNDSDÓTTIR FRAMKVÆMDASTJÓRI HLUTVERKASETURS OG DÓSENT VIÐ HÁSKÓLANN Á AKUREYRI. Greina þarfir annarra með geðraskanir Einstaklingar með geðraskanir framkvæma rann- sóknir á þjónustu og aðstöðu fyrir geðsjúka. At- vinna er lykilatriði fyrir geðsjúka til að komast aft- ur inn í samfélagið. Kemur fólki aftur í hringiðuna. NÝJUNGAR Norskir frumkvöðlar á geðheilbrigðissviði, Dagfinn Björgen, Heidi Wester- lund og Olav K. Johansen gengu til liðs við Íslendinga á málþingi um geðraskanir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Tryggðu þér miða á www.hhi.is, í síma 8OO 6611 eða hjá næsta umboðsmanni. Vá, hvenær?! Nú, það er ekkert annað! Drögum 24. nó vembe r, vertu með! Kl. 16.OO á miðvikudaginn. Og það er bara dregið úr seldum miðum! 1O manns fá milljón! – Lifið heil Lægra verð í Lyfju www.lyfja.is ÍS L E N S K A /S IA .I S /L Y F 5 20 05 1 0/ 10 Íbúfen 400 mg 30 stk. Áður: 566 kr. Nú: 499kr. *gildir út nóvember 2010. Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði á 120 stöðum um land allt. Nánari upplýsingar á visir.is/dreifing

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.