Fréttablaðið - 23.11.2010, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 23.11.2010, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 23. nóvember 2010 11 Vilt þú fjárfesta í ríkisverðbréfum? Hafðu samband Sjóðir sem fjárfesta í verðbréfum útgefnum af eða með ábyrgð íslenska ríkisins. Hvort sem þú hugsar fjárfestinguna til lengri eða skemmri tíma þá er lausnin hjá okkur. Hafðu samband við ráðgjafa okkar og kynntu þér það sem við höfum upp á að bjóða. Stefnir – Ríkisvíxlasjóður 1 Stefnir – Ríkisverðbréfasjóður millilangur 1 Eignayfirlit 30. 10. 2010 2 Eignayfirlit 30. 10. 2010 2 SAMFÉLAGSMÁL BSRB hefur lagt til við stjórnvöld að komið verði á fót nýju leigukerfi hér á landi í anda almenna leigukerfisins í Dan- mörku. Hús þessi skulu vera í ríkis- eigu og íbúðir leigðar út á verði sem sérstök verðlagsnefnd telur viðráðanlegt. Með því verði einn- ig sett á fót eins konar öryggisnet fyrir fjölskyldur sem af einhverj- um ástæðum hafa ekki aðra kosti. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir að með þessu sé bandalagið að leggja sitt af mörk- um til að fólk geti leigt húsnæði sem það ráði við að greiða af. Nú sé tækifæri, og ekki síður þörf, til að byggja upp leigumark- að til lengri tíma til þess að fólk hafi í raun og veru val um hvort það vilji leigja eða kaupa sér hús- næði. Elín segist ekki óttast að íbúar þessa kerfis verði stimplaðir með ósanngjörnum hætti, eins og víða hafi gerst. „Við teljum að í þessum leiðum sé verið að koma í veg fyrir að það sé einsleitur hópur, því að það er ekki miðað við tekjur. Við leggjum einmitt mikið upp úr því að þetta kerfi verði fyrir hinn venjulega Íslending sem vill velja það frek- ar að vera á leigumarkaðnum.“ - þj BSRB leggur til að tekið verði upp leigukerfi að danskri fyrirmynd: Vill fleiri valkosti í húnæðismálum VILL VALKOSTI BSRB hefur lagt fram tillögur um nýtt fyrirkomulag á leigumarkaði þar sem fólk hafi val um að leigja eða kaupa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM RÚSSLAND, AP Villtir tígrar gætu dáið út innan tólf ára verði ekki þegar gripið til aðgerða, að sögn dýraverndunarsamtakanna World Wildlife Fund. Sérfræðingar telja að aðeins um 3.200 villt tígrisdýr séu til í heim- inum í dag. Í byrjun síðustu aldar voru dýrin rúmlega 100.000 tals- ins. Víðtæk eyðing skóga ógnar tilveru villtra tígra, auk þess sem veiðiþjófar sækjast eftir feldi þeirra til sölu á svörtum markaði. - sm Villtir tígrar í útrýmingarhættu: Gætu dáið út innan tólf ára TÍGRISDÝR Villt tígrísdýr gætu verið í útrýmingarhættu. MYND/BRYNDÍS HJÁLMARSDÓTTIR ALÞINGI Vegagerðin hefur varið 100 milljónum króna vegna við- halds og endurbyggingar varnar- garða og 30 milljónum vegna lagfær- inga á vegum í kjölfar tjóns vegna eldgoss- ins í Eyjafjalla- jökli. Þetta kemur fram í svari samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra við fyrirspurn Arndísar Soffíu Sig- urðardóttur VG. Að auki hafa fimmtán millj- ónir runnið til tengdra verk- efna á borð við sáningu til að hefta öskufok og öskuhreinsun af vegum. Áætlanir gera ráð fyrir að frekari lagfæring og uppbygging vega kosti á annað hundrað millj- ónir. - bþs Lagfæringar eftir eldgosið: 145 milljónir í vegi og varnir ARNDÍS SOFFÍA SIGURÐARDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.