Fréttablaðið - 23.11.2010, Blaðsíða 36
28 23. nóvember 2010 ÞRIÐJUDAGUR
„Þetta gekk ótrúlega vel og tók
enga stund,“ segir Garðar Örn
Arnarson, 22 ára nemi við Kvik-
myndaskóla Íslands.
Garðar og félagi hans, Erling-
ur Jack Guðmundsson, fengu það
verðuga verkefni að taka upp tón-
listarmyndband við lagið „Þang-
að til það tekst“, sem hljómsveitin
Klassart sendi nýlega frá sér.
Garðar og Erlingur eru á ann-
arri önn sinni í Kvikmyndaskólan-
um og því verður það að teljast vel
gert hjá strákunum að hafa tekið
upp heilt tónlistarmyndband, þrátt
fyrir litla reynslu.
„Ég var með hljómsveitinni á
Akureyri og þau spurðu hvort ég
gæti tekið upp myndband fyrir
sig,“ segir Garðar. „Við byrjuðum
að taka upp á laugardagsmorgni
klukkan sex og vorum búnir rétt
eftir hádegi,“ segir Garðar, en
tökurnar fóru fram á Paddy‘s í
Keflavík. „Við þurftum að redda
öllu, nema náttúrlega hljómsveit-
inni.“
Erlingur skrifaði handritið að
myndbandinu og Garðar sá um
framleiðslu, en báðir sáu þeir um
leikstjórn. Myndbandið verður
frumsýnt í byrjun desember en
lagið er þegar farið í spilun og situr
í sjötta sæti á vinsældalista Rásar
tvö. „Lagið fjallar um ást, sem var
smá áskorun fyrir okkur strákana.
En þetta gekk upp og kemur ótrú-
lega vel út,“ segir Garðar, en þeir
notuðu meðal annars 400 spritt-
kerti við gerðina á myndbandinu.
Garðar segir kennarana í Kvik-
myndaskólanum vita af mynd-
bandinu en að það komi náminu
ekkert við. „Við verðum að sanna
okkur upp á nýtt í skólanum, en
það er fínt að fá reynsluna,“ segir
Garðar.
Hljómsveitin Klassart ætti ekki
að vera öllum ókunn, en lagið
„Gamli grafreiturinn“ fékk mikla
spilun á útvarpsrásum landsins í
haust.
- ka
Lítt reyndir nemar
tóku upp myndband
UPPTÖKUR Í FULLUM GANGI Garðar Örn Arnarson, til vinstri, og Erlingur Jack Guð-
mundsson, til hægri, tóku upp myndband fyrir Klassart, þrátt fyrir litla reynslu.
MYND/HILMAR BRAGI
520.000
Við verðum að sanna
okkur upp á nýtt í
skólanum, en það er fínt að
fá reynsluna.
GARÐAR ÖRN ARNARSON
NEMI VIÐ KVIKMYNDASKÓLA ÍSLANDS
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 23. nóvember 2010
➜ Tónleikar
12.15 Hádegis-
tónleikar ungra
einsöngvara,
Erlu Bjargar
Káradóttur og
fleiri, í Íslensku
óperunni í dag
klukkan 12.15.
Aðgangseyrir er
1.500 krónur
og geta gestir
keypt sér léttar
veitingar.
20.00 Hausttónleikar Háskólakórsins
verða haldnir í Neskirkju, í kvöld klukk-
an 20. Miðaverð er 2.000 krónur,
1.500 krónur fyrir nema, eldri borgara
og öryrkja.
21.00 Tónleikar með Dætrasonum
á Café Rosenberg, Klapparstíg 25-
27 í kvöld klukkan 21. 1.000 króna
aðgangseyrir.
➜ Fræðslufundir
10.30 Fjölskyldumorgunn í Gerðu-
bergssafni kl. 10.30 með Flore Nicolas
jurtalækni. Rætt verður um hvernig
má forðast og lækna kvef barna með
ýmsum náttúruvörum og mat. Allir
velkomnir.
➜ Fyrirlestrar
12.00 Málstofa á vegum Viðskipta-
fræðideildar og Konfúsíusarstofnunar-
innar Norðurljóss verður haldin í dag í
Odda, stofu 201, kl. 12-13. Pétur Yang
Li flytur fyrirlesturinn China’s Economic
Integration with the World. Allir vel-
komnir.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
EINTÖK AF NÝJUSTU PLÖTU TAKE THAT seldust á einni viku í Bretlandi. Platan markar
endurkomu Robbie Williams í hljómsveitina. Engin plata hefur selst jafn hratt í Bretlandi í 13 ár, eða
síðan Be Here Now með Oasis seldist í 663.000 eintökum á einni viku árið 1997.
Fjöldi stórstjarna sótti hinn árlega viðburð CNN Heroes:
An All-Star Tribute um helgina. Þar er hetjum hversdags-
ins fagnað og góð málefni studd. Stjörnurnar mættu í sínu
fínasta pússi á rauða dregilinn fyrir viðburðinn og létu ljós
sitt skína.
Stjörnurnar skinu
á rauða dreglinum
Á UPPLEIÐ Ungstirnið Annalynne
McCord er dugleg að sækja ýmsa við-
burði í Hollywood. NORDICPHOTOS/GETTY
FAGURBLEIK Renee Zellweger mætti í
þessum bleika kjól á rauða dregilinn og
stillti sér síðan ankannalega upp fyrir
framan myndavélarnar.
FLOTTUR SKOTI Skoska sjarmatröllið
Gerard Butler mætti í sínu fínasta pússi
á hátíðina.
folk@frettabladid.is
FÖNGULEG Leik-
konan Halle Berry
leit vel út í þessum
hvíta kjól. Hún hefur
fundið ástina á ný í
örmum mótleikara
síns, hins franska
Oliviers Martinez.