Fréttablaðið - 20.01.2011, Síða 10
10 20. janúar 2011 FIMMTUDAGUR
MENNTAMÁL Þeir nemendur
Háskóla Íslands (HÍ) sem koma úr
Verzlunarskólanum mældust með
hæstu meðaleinkunn í úttekt HÍ á
nemendum fimm framhaldsskóla
síðustu þrjú ár. Skólaárið 2009
til 2010 var meðaleinkunn þeirra
4.115 nemenda úr Verzlunar-
skólanum 7,04.
Nemendur frá
Menntaskólan-
um Hraðbraut,
sem voru 692
talsins, mæld-
ust með lægstu
meðaleinkunn-
ina, 6,35.
Hinir fram-
haldsskólarnir í
úttektinni voru
Borgarholtsskóli, Fjölbrautaskól-
inn í Breiðholti og Fjölbrautaskól-
inn við Ármúla.
Könnunin var gerð vegna
fyrir spurnar menntamálaráðu-
neytisins í tengslum við úttekt
Ríkisendurskoðunar og mennta-
málanefndar Alþingis á fjármál-
um Menntaskólans Hraðbrautar.
Meðaleinkunnir nemenda innan
deilda sýna að nemendur úr Verzl-
unarskólanum voru oftast með
hæstu meðaleinkunn, eða í 11
deildum af 25. Nemendur Hrað-
brautar voru oftast með lægstu
meðaleinkunn, eða í 8 deildum.
Þeir voru þó með hæstu meðal-
einkunn í 7 deildum. Nemendur úr
Fjölbrautaskólanum við Ármúla
voru með lægstu einkunn í 7 deild-
um og hæstu í tveimur.
Ólafur Haukur Johnson, skóla-
stjóri og eigandi Menntaskólans
Hraðbrautar, segir tölurnar lítt
marktækar.
„Úrtakið er lítið. Margir nem-
endur okkar fóru í námsgreinar
þar sem kröfur um háar einkunn-
ir eru minni. Það er til að mynda
óvenju hátt hlutfall í læknisfræði,
þar sem einkunnirnar eru lægri
en til dæmis í félagsfræði,“ segir
Ólafur.
Einungis 3 prósent nemenda
Hraðbrautar völdu Félags- og
mannvísindadeild, en þar mæld-
ust þeir með hæstu meðalein-
kunn, 6,99. 5 prósent þeirra völdu
læknisfræði og voru þar með
næsthæstu meðaleinkunn, 8,21. 6
prósent fóru í hjúkrunarfræði og
voru þeir nemendur Hraðbrautar
einnig með næsthæstu meðalein-
kunn í deildinni, 7,03.
sunna@frettabladid.is
Nemendur úr Verzló
með hæstu einkunn
Af nemendum fimm framhaldsskóla voru nemendur úr Verzlunarskólanum með
hæstu meðaleinkunn í HÍ. Þetta kemur fram í könnun sem var gerð fyrir mennta-
málaráðuneytið. Nemendur Hraðbrautar voru með lægstu meðaleinkunn.
ÓLAFUR HAUKUR
JOHNSON
VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS Nemendur Verzló hafa mælst með hæstu meðaleinkunn
í könnun HÍ síðustu þrjú skólaár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Meðaleinkunnir nemenda í HÍ eftir framhaldsskólum
Skóli 2007-08 2008-09 2009-10
Borgarholtsskóli 6,56 6,18 6,75
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti 6,30 6,67 6,77
Fjölbrautaskólinn við Ármúla 6,44 6,55 6,66
Menntaskólinn Hraðbraut 6,10 6,15 6,35
Verzlunarskóli Íslands 6,74 7,05 7,04
Meðaleinkunn samtals 6,55 6,76 6,71
Hæsta gildi Lægsta gildi
HERMENN AÐ LEIKA SÉR Indverskir
hermenn sýndu listir sínar á degi hers-
ins í Nýju-Delhi, þegar 63 ára afmæli
þjóðarhersins var fagnað.
NORDICPHOTOS/AFP
Lesist
Er það kannski þú sem var einn þeirra mörgu sem keyptir Íslenskt enskt
Lingapon námskeið eins og ég sjálfur gerði í kjölfar hreinnar áróðurs
herferðar lærðu ensku á fjörtíuklukkustundum á árinu 1977 það sem
ég flaskaði á var það að eftir að ég var búin að leita og finna skýringu á
enska orðinu þá var ég búin að gleyma línunni þar sem ég hafði verið
að lesa þannig að ég gafst upp á námskeiðinu í stað þess að leggja nögl
þumalfingurs hægri eða vinstri handar eftir því hvort hægri eða vinstri
blaðsíða er lesin.
Ég hef ótal oft auglýst eftir námskeiðinu og minnst 50 til 60 sinnum
hefur mér verið boðið Englis Corse námskeiðið sem samnastendur af
tveim venjulegum bókum og einnig þunnri bók og framan á henni
stendur orðaskýringar á íslensku annars voru báðar aðalbækurnar
eingöngu á ensku. En náskeiðið sem mig vantar sjálfum heitir íslenskt
enskt Lingaphone námskeið. Bókin er stærri en venjuleg bók og framan
á bókinni stendur íslenskt enskt Lingaphone námskeið.
Ég greiði glaður 50.000 kr fyrir námskeiðið.
Björgvin Ómar Ólafsson s. 865-7013
Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda
Association of Icelandic Film Producers
SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda
auglýsir eftir umsóknum um greiðslur úr IHM sjóði félagsins.
Rétt til umsókna úr sjóðnum eiga sjálfstæðir
kvikmyndaframleiðendur sem framleitt hafa kvikmyndir sem
sýndar hafa verið í sjónvarpi á árinu 2009.
Umsóknir berist fyrir 3. febrúar til:
SÍK – Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda.
Hverfisgötu 54 P.O. Box 5367, 125 Reykjavík
eða með tölvupósti á sik@producers.is
Nánari upplýsingar, reglur og umsóknareyðublöð eru á vefsíðu
SÍK – www.producers.is
Greiðslur úr
IHM sjóði SÍK
Chevrolet á enn betra verði !
Vegna nýrra laga um vörugjöld sem tóku gildi um áramótin eru umhverfisvænir
bílar á betra verði. Allir bílar frá Chevrolet hafa lækkað í verði.
Chevrolet Cruze, 4 dyra
Cruze LS 1800 cc. - beinskiptur Kr. 2.990 þús.
Cruze LS 1800 cc. - sjálfskiptur Kr. 3.390 þús.
Cruze LT 2000 cc. Dísel - beinskiptur Kr. 3.590 þús.
Sérfræðingar í bílum
Bílabúð Benna - Chevrolet sýningarsalur - Tangarhöfða 8-12 - Reykjavík - sími 590 2000
Bílabúð Benna - Njarðarbraut 9 - Reykjanesbæ - sími 420 3300
Bílaríki - Glerárgötu 36 - Akureyri - sími 461 3636
www.benni.is
B
íll
á
m
yn
d:
C
ru
ze
L
T
m
eð
1
8“
á
lf
el
gu
m
.
Gæði í 100 ár
Ár slaufunnar
VIÐSKIPTI Líklegt þykir að stór hluti
bílaumboða B&L og Ingvars Helga-
sonar verði á næstu tveimur vikum
fluttur yfir í Miðengi, eignarhalds-
félag í eigu Íslandsbanka.
Innan Miðengis eru eignarhlut-
ir í fyrirtækjum sem gengið hafa í
gegnum fjárhagslega endurskipu-
lagningu og Íslandsbanki hefur
eignast hlut í.
KPMG hefur unnið að fjárhags-
legri endurskipulagningu B&L og
Ingvars Helgasonar frá 2009 fyrir
hönd kröfuhafa. Íslandsbanki á 65
prósent krafna á bílaumboðin, SP
Fjármögnun og Lýsing sín hvor
15 prósentin og Arion banki um
fimm prósent. Kröfuhafar hafa
ekki gengið að veðum en líkur eru
á að það verði niðurstaða vinnunn-
ar sem nú stendur yfir.
Miðengi á Jarðboranir og Steypu-
stöðina að fullu auk smærri hluta
í sextán öðrum fyrirtækjum. Mið-
engi hefur áður selt frá sér Skeljung
og hlut í þremur öðrum eignum.
Íslandsbanki kom að rekstri
bílaumboða B&L og Ingvars Helga-
sonar árið 2009 og gerði um mitt
síðasta ár sátt við Samkeppnis-
stofnun þess efnis að umboðin yrðu
seld innan tilskilins tíma. - jab
BÍLL ÚR SAL UMBOÐSINS Eignarhalds-
félag Íslandsbanka fær senn til sín hluti í
B&L og Ingvari Helgasyni. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Ráðandi hlutur í IH og B&L fljótlega fluttur inn í félag Íslandsbanka:
Eru að klára uppstokkun
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært karlmann fyrir kynferðis-
brot.
Maðurinn er ákærður fyrir að
hafa sunnudaginn 16. maí 2010
sært blygðunarsemi konu og
manns er hann stóð fyrir innan
óbyrgðan glugga á heimili sínu í
Reykjavík, í fráhnepptri skyrtu
einni fata, og sýndi af sér kyn-
ferðislega tilburði.
Þess er krafist að ákærði
verði dæmdur til refsingar og til
greiðslu alls sakarkostnaðar.
- jss
Ákærður fyrir kynferðisbrot:
Dónakarl sýndi
sig við glugga