Fréttablaðið - 20.01.2011, Side 17
FIMMTUDAGUR 20. janúar 2011 17
Við sátum við glugga á ann-arri hæð hótels við aðalgöt-
una í Túnisborg og horfðum á
iðandi mannhafið á gangstéttinni
fyrir neðan. Gatan heitir eftir
landsföðurnum, Habib Bourgiba,
fyrsta forseta landsins að fengnu
sjálfstæði 1957. Þetta var kveðju-
kvöldverður í boði Seðlabanka
Túnis, og það hafði losnað aðeins
um málbeinið á gestgjafanum,
kannski var hann, arabinn, orð-
inn aðeins hreifur af veizluföng-
um. Hann bandaði hendinni í átt
að mannfjöldanum og sagði upp
úr þurru: Sjáið nú þetta. Annar
hver maður í þvögunni er leyni-
þjónustumaður.
Þessi óvænta yfirlýsing gest-
gjafans væri varla í frásögur
færandi nema fyrir það, að Túnis
er trúlega frjálsasta landið við
endilanga strandlengju Norður-
Afríku frá Marokkó í vestri til
Egyptalands í austri. Strand-
lengjan, já: hún er eins og nótna-
borð á flygli. Píanóleikarinn situr
í Miðjarðarhafinu og veit suður,
og þá er Afríka öll í laginu eins
og flygill. Öðrum þræði þess
vegna þykir mér Afríka vera feg-
urst meginlandanna, sköpulagið
að minnsta kosti. En sumt fólkið,
sem hefur tekið að sér landstjórn-
ina þarna suður frá, er annar
handleggur. Fæstir áttu von á, að
forseti Túnis yrði fyrstur hæst-
ráðenda á þessum slóðum til að
flýja land með skottið milli lapp-
anna. Það mættu þeir gera fleiri.
Slíkt er þó aldrei hægt að vita
fyrir fram.
Kvenfrelsi og menntun
Löndin fimm á norðurströnd
álfunnar miklu – Marokkó,
Alsír, Túnis, Líbía og Egypta-
land – hafa þrátt fyrir allt tekið
stakkaskiptum síðustu hálfa öld.
Auðskilinn mælikvarði á frelsi í
þessum löndum og annars staðar
er fjöldi fæddra barna á hverja
konu. Árið 1960 fæddi hver kona
í þessum löndum sjö börn að
jafnaði. Hér heima þurfum við
að fara lengra en 150 ár aftur í
tímann til að finna hæstu skráðu
fæðingartöluna í riti Hagstof-
unnar, Hagskinnu, tæp sex börn
á hverja konu 1858. Fæðingar-
tölurnar í Norður-Afríku eru nú
komnar niður í tvö börn á hverja
konu í Túnis líkt og í Evrópu og
þrjú börn í Egyptalandi. Bourg-
iba var ekki sýnt um efnahags-
mál og ekki heldur um lýðræði
og mannréttindi, fjarri því, en
hann var nothæfur kvenfrelsis-
frömuður, það má hann eiga.
Staða kvenna í Norður-Afríku
hefur gerbreytzt til batnaðar.
Tólfta hver stúlka átti kost á að
sækja framhaldsskóla í Túnis
1971 og þótti gott að því leyti,
að skólasóknarhlutfallið þar var
þá tvisvar sinnum hærra en í
grannlöndunum Alsír í vestri og
Líbíu í austri. En nú sækja níu
af hverjum tíu stúlkum fram-
haldsskóla í Túnis á móti helm-
ingi í Marokkó og þrem af hverj-
um fjórum í Egyptalandi. Þetta
er bylting. Ætli konur séu ekki
alls staðar eins inn við bein-
ið? Viðtalskannanir mannfræð-
inga benda til, að þær vilji að
jafnaði helzt eignast tvö til þrjú
börn, hvort heldur í Belgíu eða
Búrúndí, sumar fleiri börn eins
og gengur, aðrar færri. Vandinn
er sá, að víða fá þær ekki að ráða
þessu sjálfar fyrir ofríki karla.
Þeim löndum, sem svo háttar til
um, fer þó sem betur fer fækk-
andi. Frelsið sækir að úr öllum
áttum.
Lög án landamæra
Ég hef eytt tveim mánuðum ævi
minnar í Túnis. Landið býr að
fornri menningu: þarna er t.d.
Karþagó, sem öldungurinn Kató
lagði til, að yrði lögð í eyði. En
stjórnmálalífið í landinu er enn á
lágu menningarstigi svo sem ráða
má m.a. af því, að lands faðirinn
Bourgiba sat á forsetastóli í 30
ár, þar til honum var steypt af
stóli 1987. Þá tók Ben Ali forsætis-
ráðherra við embættinu og sat
sem fastast í 23 ár, eða þar til
hann missti kjarkinn um daginn
og flúði. Tilefnið var friðsamleg
mótmælaganga gegn alræmdri
spillingu í fjölskyldu forsetans og
venzlaliði. Landflótti forsetans
jafngildir í reyndinni viðurkenn-
ingu hans á vandanum, því að
ella hefði hann væntanlega getað
horfzt í augu við fólkið sitt og
staðið fyrir máli sínu. Það þorir
hann ekki fyrir sitt litla líf.
Heimurinn hefur breytzt. Lög
ná nú yfir landamæri. Nú er auð-
veldara en áður að draga saka-
menn og þá um leið brottflúna
ráðamenn fyrir alþjóðlegan dóm-
stól vegna mannréttindabrota
og efnahagsbrota. Þessi nýskip-
an sendir stjórnmálaleiðtogum
skýr skilaboð. Lögbrot hefna
sín. Ætla má, að stjórnarherr-
arnir í nágrenni Túnis hugsi nú
ráð sitt. Í Líbíu hefur Múammar
Gaddafí forseti ráðið lögum og
lofum samfleytt frá 1969. Sonur
Gaddafís sótti fyrir nokkrum
árum námskeið hjá vini mínum
einum, prófessor í London School
of Economics, og sat með sól-
gleraugu og sennilega alvæpni
á fremsta bekk í fyrirlestra-
salnum ásamt fylgdarliði sínu.
Gaddafí hefur í krafti illa feng-
ins olíuauðs setið manna lengst
á ókonunglegum valdastóli eftir
að Ómar Bongó, forseti Gabons,
annar olíufursti, hrökk upp af í
hitteðfyrra. Í Gabon er næstum
ekkert eins og það á að vera. Það
hef ég séð með eigin augum.
Þegar forsetinn flýr
Þorvaldur Gylfason
Prófessor
Í DAG
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Opnunartími: mán-fös. 10-18 og laug .11-16
í 60 árGæða rúm á góðu verði