Fréttablaðið - 20.01.2011, Page 21
20. janúar 2011 FIMMTUDAGUR1
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Lára Stefánsdóttir, dansari og skólastjóri Listdansskóla Íslands, blandar saman gömlu og nýju.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hlý föt fyrir dansara
Þ
ótt flestir Íslendingar
þurfi að huga að hlýjum
klæðnaði yfir vetrarmán-
uðina er það dönsurum
sérstaklega mikilvægt til að forða því
að líkaminn stífni upp eins og Lára Stef-
ánsdóttir, dansari og skólastjóri Listdans-
skóla Íslands, veit.
„Ég þarf að klæðast mjög hlýjum fötum
til að fá hita í kroppinn og finnst mikilvægt
að vera í góðum ekta efnum eins og ull, sem
andar en er samt hlý,“ segir Lára.
Uppáhaldsflík Láru er mokkakápan sem
hún klæðist en hún getur snúið henni við
og þannig ýmist haft hana alveg hvíta eða
látið skinnið snúa fram. „Mér finnst fötin
þurfa að að vera þægileg og óþvingandi
þannig að maður sé frjáls. Minn klæðn-
aður tekur líka mið af því að ég þarf að
geta kennt í þeim og hreyft mig, auk þess
sem hann þarf líka að vera fínn til að nota
dagsdaglega í vinnunni. Því á ég mikið
af leggings sem ég get æft í en henta líka
hversdags. Annars finnst mér skemmti-
legast að blanda saman nýju og gömlu.“
Lára hefur í nægu að snúast en auk
þess að stýra Listdansskólanum er hún
þessa dagana að æfa í Svanasöngnum
sem sýndur verður 4. febrúar í Íslensku
óperunni. Ljóðatónlist Franz Schuberts
er þar flutt af tónlistarmönnum í sam-
starfi við dansara en Kennet Oberly,
sem sviðsett hefur mörg sérstök verk,
sviðsetur Svanasönginn fyrir dansara.
juliam@frettabladid.is
ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
Listh
6 mán
aða
vaxtal
ausar
greiðs
lur
(Gildir ekki með öðrum tilboðum)
Af völdum vörum
STÓRÚTSALA
40-70% afsláttur!
KR INGLUNNI
S: 5688777
teg. 4500 - í
D,DD,E,F,FF,G
skálum á kr.
6.990,-og fæst
í hvítu, húðlitu
og svörtu.
NIMIZER NÝKOMINN AFTUR !
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18. Lau. 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vertu vinur
Smoothing
4500
Þessi föngulegi herramaður sýnir hér föt úr
haust- og vetrarlínu karla 2011-2012 frá Moschino,
þar sem innblásturinn er sýnilega sóttur í heim
íþróttanna. Línan var kynnt til sögunnar á sérstakri
tískuviku karla í Mílanó nú fyrir skemmstu.