Fréttablaðið - 20.01.2011, Page 28
20. JANÚAR 2011 FIMMTUDAGUR
Nýherji hf. Borgartúni 37 www.netverslun.is
Lenovo ThinkPad Edge
Glæsileg fartölva fyrir einstaklinga og smærri fyrirtæki.
Vökvaþolið lyklaborð og fallvörn.
Örgjörvi: AMD Turion II Neo X2 Dual Core K625 64bit
Skjár: 13“
Þyngd: 1,74 kg
Verð: 129.900 kr.
Lenovo IdeaPad U160
Fislétt og skemmtileg fartölva fyrir heimilið með nýjustu
Intel Core tækni.
Örgjörvi: Intel Core i3-330UM Dual Core
Flýtiminni: 3MB
Skjár: 11,6” LED HD
Þyngd: 1,4 kg
Verð: 114.900 kr.
Lenovo IdeaPad Z560
Kraftmikil margmiðlunartölva fyrir skólafólk. Öflug vél með
nýjustu Intel Core tækni.
Örgjörvi: Intel Core i3-350M Dual Core 2,26GHz
Þyngd: 2,6 kg
Verð: 139.900 kr.
Lenovo ThinkPad T410
Sameinar nýjustu tækni, gæði og einstaka hönnun.
Vökvaþolið lyklaborð og fallvörn.
Örgjörvi: Intel Core i3 370M (2,40GHz) með 2 kjörnum
Skjár: 14,1” TFT LED breiðtjaldsskjár m. innbyggðri myndavél
Þyngd: frá 2,27 kg
Verð frá 194.900 kr.
Allar vélar eru með 3 ára ábyrgð.
Skemmtilegi
vinnufélaginn
Frábær fyrir
skólann
Algjör
vinnuhestur
Flott á
netið
Lenovo-merkið er þekkt fyrir
svartar fartölvur enda svartur
tímalaus litur.
„Við hjá Nýherja erum með mjög
breiða línu af Lenovo-fartölvum
við allra hæfi. Það má eiginlega
segja að viðskiptavinir velji fyrst
skjástærð og þyngd en skoði síðan
þær gerðir sem koma til greina.
Ef valið snýst um létta 13” vél
þá eigum við vélar frá 129.900
kr. en margir hafa áttað sig á því
hve þægilegt er að vera með netta
vél, til dæmis í skóla,“ segir Gísli
Þorsteinsson hjá Nýherja. Hann
segir að smærri vélarnar hafi
komið mörgum á óvart, einkum
hversu öflugar þær séu miðað
við stærð.
Lenovo-framleiðandinn er
meðal annars þekktur fyrir svarta
litinn á ThinkPad-vélum sínum og
segir Gísli að oft sé sagt í gamni
að ThinkPad sé með margar út-
færslur af svörtu. „Nú hefur hins
vegar ThinkPad Edge línan verið
fáanleg í rauðu. Svart er engu að
síður tímalaus litur sem þolir sí-
breytilega tískustrauma og eru
ThinkPad-vélarnar oft notaðar í
5-7 ár. Reyndar er endingin í Len-
ovo ThinkPad vélunum afar góð,
þetta eru miklir vinnuhestar. Við
höfum til dæmis fengið í endur-
sölu sex ára gamlar ThinkPad-
vélar sem lifa góðu lífi.“
Aðspurður segir Gísli þarfir
fólks mismiklar, til dæmis dugi
tölvur með 2GB vinnsluminni,
250 GB disk og Windows 7 flest-
um sem eru í skóla. „Vægi ör-
gjörva er ekki eins mikið og áður
því nær allar skólavélar eru nógu
öflugar og því ekki þörf á að huga
sérstaklega að þeim þætti, nema
ef fólk hyggst nota tölvurnar til
þess að spila leiki.“
Þá segir Gísli að gríðarlegur
áhugi sé á hvers kyns miðlun á
netinu, hvort sem það sé í gegnum
Facebook eða Youtube og það hafi
kallað á nýja notendamöguleika
fyrir fólk. „Má þar nefna vaxandi
áhuga á gerð myndbanda fyrir
netið og innbyggðar vefmynda-
vélar til dæmis fyrir samskipti í
gegnum Skype.“
Vinnuhestar sem þola
síbreytilega tískustrauma
Gísli Þorsteinsson hjá Nýherja segir endingu fartölva frá Lenovo afar góða.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
VOTTUN FYRIR ORKUSPARANDI
TÖLVUR
Tölvuframleiðandinn Lenovo
hefur hlotið Svansmerkið, nor-
ræna umhverfisvottun, fyrir
orkusparandi tölvur.
Svanurinn gerir neytendum
kleift að velja umhverfisvænni
vörur og þjónustu sem hefur
minni skaðleg heilsuáhrif. Strang-
ar kröfur Svansins tryggja að búið
er að lágmarka neikvæð umhverf-
is- og heilsuáhrif tengd ferli vör-
unnar, allt frá hráefnis- og orku-
notkun, notkun hættulegra efna,
flutninga, meðhöndlun úr-
gangs o.fl., segir á heima-
síðu Umhverfisstofnunar.
Svansvottaðar tölvur,
eins og frá Lenovo, eru
orkusparandi, auk þess sem
búið er að lágmarka notk-
un hættulegra efna, svo sem
þungmálma og eldvarnarefna.
Öll plastefnin í tækin þurfa að
vera klórfrí. Lögð er áhersla á
að notkunarþægindi, uppfærslu-
möguleikar og endurvinnanleiki
tækjanna sé eins og best verður
á kosið, segir á vefnum. Umbúðir
Lenovo-tölva eru einnig úr endur-
unnum efnum.
AÐEINS SJÖ SEKÚNDUR AÐ RÆSA
WINDOWS
Lenovo, sem er einn stærsti fram-
leiðandi tölvubúnaðar í heiminum,
sló í gegn á CES-tæknimessunni
(Consumer Electronics Show) í
Las Vegas í janúar, en þar kynnti
fyrirtækið ýmsar nýjungar
og spennandi hugmyndir
um þróun tölvubún-
aðar á þessu
ári. Meðal
þess
sem er væntanlegt á markað í vor
eru nýir örgjörvar frá Intel (Core
i) sem auka afköst tölvubúnaðar
verulega og verða í öllum vörulín-
um Lenovo. Tölvuframleiðandinn
hefur einnig unnið með Micro soft
að þróun Windows 7-stillinga sem
gerir það að verkum að Lenovo
ThinkPad tölva er aðeins sjö sek-
úndur að ræsa Windows.
Meðal áhugaverðra lausna
eru tvær gerðir spjaldtölva
sem koma á markað
síðar á árinu og svo
uppfærsla á öllum
gerðum Think-
Pad-véla sem
Ný herji
mun
kynna á
næstu mán-
uðum.
Meiri hraði og orkusparnaður