Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.01.2011, Qupperneq 31

Fréttablaðið - 20.01.2011, Qupperneq 31
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 2011 Genius-teikniborðin njóta sífellt aukinna vinsælda, enda hagkvæm og áreiðanleg, en eru auk þess jafn- víg fyrir PC og Mac. Boðið er upp á sex mismunandi gerðir teikni- borða fyrir allt frá byrjendum til atvinnumanna. Á þessari vefslóð má skoða allar gerðirnar: http:// www.computer.is/flokkar/237/ Stafræn teikniborð eru mikil- væg tölvutengd tæki í tækjabún- aði grafískra hönnuða og lista- manna. Þau örva m.a. sköpunar- gáfuna og auka afköst. Teikniborð gegna ýmsum tilgangi fyrir ólíka notendur og hafa eiginleika með það að markmiði að létta fyrir og gera notkun tölvunnar þægilegri og ánægjulegri. HVAÐA TILGANGI ÞJÓNAR TEIKNI BORÐ? Teikniborð er tæki sem leyfir notanda að setja upplýsingar inn á tölvuna í formi teikninga eða skrifta á pappírsblað. Þau koma í stað músar og er hugsað til að not- andi geti verið í nánari snertingu við hönnun, teikningar eða málun í tölvuumhverfi. Meginhlutarnir í teikniborði eru teikniplatan (e. pad) og penninn. HVERNIG Á AÐ BYRJA? Eftir að notandi hefur tengt teikni- plötuna við USB-tengi í tölvunni og sett upp reklahugbúnaðinn er hægt að byrja að teikna rétt eins og að teikna á pappír. Teikni- forrit fylgja Genius-teikniborð- unum en auk þess má nota forrit eins og Micro soft Paint, Photo- shop eða atvinnumannaforrit eins og AutoCAD svo dæmi séu tekin. Fullkomnar hjálparaðgerðir sem fylgja teikniforritunum nýtast afar vel í háþróaðri myndvinnslu. Teikniborð frá Genius Tæknibær fagnar 25 ára afmæli á árinu og býður af því tilefni upp á aukið úrval sértilboða. Fyrirtækið hefur að undanförnu breikkað vöru- sviðið gríðarlega eins og sjá má á vefsíðunum www.tb.is og www.computer.is. Stefnt er að því að styrkja stoðirn- ar enn frekar sem vel þekkt smá- sölu- og netverslunarfyrirtæki á markaðinum að sögn Ólafs Ara- sonar, stofnanda og framkvæmda- stjóra Tæknibæjar. „Það munum við gera með auknu úrvali af tölvu- tengdum tækjum, heildarlausnum og bættri þjónustu við alla lands- menn,“ segir Ólafur. NETBOOK Netbook (Networking Notebook) fartölvurnar eru meðal þess sem Tæknibær leggur áherslu á en þær hafa aukið vinsældir sínar jafnt og þétt. „Þær komu í raun á markað- inn árið 2007 þótt þær eigi sér að- draganda alveg frá 1990. Nú er þeim ætlað að skáka venjulegum fartölvum, meðal annars sökum léttleika og hagstæðs verðs, en þyngdin er ekki nema um 1 kg og verðið tugum þúsunda lægra en á sambærilegum hefðbundnum far- tölvum,“ segir Ólafur. Í byrjun voru Netbook-fartölv- urnar með 5” til 12” skjám, en nú eru þær framleiddar með 10” og 12” skjám. Síðari hluta árs 2008 fóru Netbook-fartölvurnar að saxa á markaðshlutdeild hefðbund- inna fartölva og hefur sú hlutdeild vaxið jafnt og þétt síðan, enda er hún nægilega öflug til að fullnægja stórum hluta nútíma PC-notenda. Sem dæmi má nefna fór salan úr 400 þúsund árið 2007 í 11,4 millj- ónir 2008 og á árinu 2009 seldust meira en 35 milljónir eintaka. „Áætlanir gera ráð fyrir að salan á Netbook-fartölvum nái 140 milljónum eintaka á árinu 2013. Vísbendingar eru um að hlut- deild Netbook fartölva á fartölvu- markaðnum hafi náð 20% þegar á árinu 2009. Í upphafi komu þær með Linux og Windows XP en nú er Windows 7 Starter-stýrikerfið orðið ráðandi í þeim. Flóðgáttir opnuðust fyrir framleiðslu Net- book með tilkomu Intel Atom ör- gjörvans og hitavandamál sem hrjáðu þessa stærð af fartölvum var þar með nánast úr sögunni,“ segir Ólafur. Intel Atom örgjörvinn hefur þróast síðan og núna í vikunni fékk Tæknibær í fyrsta sinn Netbook fartölvur frá Asus með nýja Intel Atom Dual Core N550 1,50 GHz örgjörvanum. Hér að ofan má sjá helstu eiginleika tölvunnar. Verðið er aðeins 79.900 krónur. Aukin áhersla á Netbook- fartölvur hjá Tæknibæ Ólafur Arason, tæknifræðingur og eigandi Tæknibæjar, með Netbook-fartölvu sem notið hefur mikilla vinsælda. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Í STUTTU MÁLI Framleiðandi og tegund: ASUS 1015PEM-MU17-BK Harður diskur: 250 GB, 5.400 sn./ mín Kortalesari: 3-in-1 sem styður MMC/ SD/ SDHC Minni: 1 GB DDR3 SODIMM stækkanleg í 2 GB Myndavél: Innbyggð 0,3 MP vef- myndavél Netbúnaður: 10/100 netkort og 802.11b/g/n þráðlaust netkort Rafhlaða: 6 hólfa 48W/h Li-Ion, 10 klst. hleðslutími Skjákort: Intel UMA Skjástærð: 10,1 tomma Stýrikerfi: Windows 7 Starter 32ja bita Örgjörvi: Intel Atom Dual Core N550, 1,5 GHz Genius-teikniborðin eru jafnvíg fyrir PC- og Mac-tölvur.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.