Fréttablaðið - 20.01.2011, Qupperneq 54
38 20. janúar 2011 FIMMTUDAGURSTRÁKARNIR OKKAR
„Ég verð að segja tveir, annars
vegar er að það vélmennið, Al-
exander Petersson, og hins vegar
Þórir Ólafsson. Hann er búinn
að koma gríðarlega sterkur inn í
þetta mót.”
Ragnheiður Mjöll Baldursdóttir útvarps-
kona.
„Þetta var bara mjög notalegur fundur og það
fór mjög vel á með okkur,“ segir Sverrir Þór
Sverrisson sjónvarpsmaður. Sverrir og Auðunn
Blöndal funduðu í gærmorgun með Umboðs-
manni barna, Margréti Maríu Sigurðardóttur.
Eins og kom fram í fjölmiðlum í síðustu viku
skrifaði Umboðsmaður barna bréf á vef sínum í
lok desember þar sem hann greindi frá töluverð-
um fjölda kvartana vegna þáttar þeirra félaga
þann 5. nóvember. Þar var leikskóli heimsótt-
ur og sýnt þegar Auðunn Blöndal kúgaðist yfir
barnableyjum og kynfærum og hægðum barns
brá fyrir. Þá var sjónvarpsþátturinn Ameríski
draumurinn einnig gagnrýndur en þar ferðuðust
þeir félagar um Ameríku með Vilhelm Antoni
Jónssoni og Agli Einarssyni. Einnig höfðu bor-
ist kvartanir yfir því að Sverrir Þór stjórnaði
barnaþætti fyrir yngstu kynslóðina um helgar
en væri þess á milli að gera hluti sem teljast ekk-
ert sérstaklega barnvænir.
Sverrir segir að aðdáendur föstudagsþáttanna
þeirra megi ekki búast við neinum gríðarlegum
áherslubreytingum í kjölfar fundarins; það sé
hins vegar gott fyrir þá að hafa þetta á bak við
eyrað. „Það var fínt fyrir okkur að vera dregn-
ir aðeins út úr þessari blöðru okkar, við höldum
að við megum allt og að allt sé fyndið. Við erum
auðvitað bara með sjónvarpsþátt og stundum er
kvartað og stundum hlegið og stundum bæði,“
segir Sverrir. Hann sagðist hins vegar skilja
áhyggjur sumra að hann væri að byggja með
Villa í morgunsjónvarpinu en hlypi um á tillan-
um á föstudagskvöldum. „Ég skil þetta sjónar-
mið mjög vel. En hvað getur maður gert?“ - fgg
Sveppi og Auddi teknir á teppið
ÁNÆGÐIR Sveppi og Auddi voru nokkuð
ánægðir með fundinn sem þeir áttu með
Umboðsmanni barna. Þeir ætla að taka tillit til
ábendinga hans í framtíðinni.
„Það hafa verið mikil veisluhöld
hérna, við vorum fimmtán saman
í gær [í fyrradag] að horfa á leik-
inn gegn Austurríki. Ættingjarnir
eru alveg að fara yfir um,“ segir
Jón Ólafur Óskarsson, faðir horna-
mannsins knáa Þóris Ólafssonar.
Þórir hefur farið mikinn á
heimsmeistaramótinu í Svíþjóð
með „strákunum okkar“, fór á
kostum gegn því austurríska í
seinni hálfleik og lék við hvurn
sinn fingur gegn Japönum. En
þrátt fyrir að hann hafi verið við-
loðandi landsliðið í tíu ár er þetta
einungis annað stórmótið hjá leik-
manninum Og það er varla hægt
að óska sér betri byrjunar, Þórir er
búinn að skora átján mörk, hefur
nýtt öll skot sín nema tvö og er því
með 90 prósenta skotnýtingu. „Það
er nánast alveg sama hvert maður
fer, það er gríðarlega mikill áhugi
og það skiptir engu hvort maður
fer út í búð eða sund, allir klappa
manni á bakið og hrósa strákn-
um,“ segir Jón Ólafur.
Fjölskylda Þóris lá á bæn síð-
ustu dagana fyrir HM því meiðsl-
asaga hans fyrir stórmót íslenska
landsliðsins hefur verið með
hreinum ólíkindum. Hann var
nánast öruggur um sæti í ólympíu-
liðinu fræga en viðbeinsbrotnaði
skömmu fyrir mótið og neydd-
ist til að draga sig út úr hópn-
um. Þegar kom að Evrópu mótinu
í Austurríki, þar sem Íslending-
ar unnu brons, var Þórir enn og
aftur kallaður til starfa. En þá
dundu ósköpin yfir. „Við förum
alltaf saman í sund þegar hann
er hérna heima og vorum eitthvað
að kljást og þá rifnaði eitthvað í
vöðvanum. Hann æfði reyndar
eitthvað aðeins eftir það en varð
að draga sig út úr liðinu,“ segir
Jón Ólafur, sem var svo illa hald-
inn af samviskubiti að hann horfði
ekki á leiki landsliðsins það skipt-
ið, fór heldur í fjallgöngu þegar
þeir voru sýndir. „Ég hafði hrein-
lega ekki þolinmæði fyrir því.“
En nú hangir landsliðstreyja
Þóris fyrir ofan sjónvarpið á
heimilinu og hinar treyjurnar eru
einnig til sýnis uppi á vegg. Og Jón
Ólafur er farinn að gæla við ferð
til Svíþjóðar. Hann ætlar að láta
það ráðast af úrslitum leiksins
við Norðmenn. „Ég er sko búinn
að vera að skoða miða og þegar
ég sé að þeir eru að fara eitthvað
langt þá skelli ég mér, tek eitthvað
af börnunum og kannski tengda-
soninn með.“
freyrgigja@frettabladid.is
JÓN ÓLAFUR ÓSKARSSON: TREYJA ÞÓRIS HANGIR FYRIR OFAN SJÓNVARPIÐ
Allir í bænum klappa manni
á bakið og hrósa stráknum
LUKKUTREYJAN Jón Ólafur Óskarsson fyrir framan treyjuna góðu sem hangir fyrir
ofan sjónvarpið. Jón Ólafur er pabbi Þóris Ólafssonar, sem hefur farið á kostum með
íslenska landsliðinu. Með honum er Jason Dagur, sonur Þóris. MYND/GKS
„Þetta var frábært. Við hittum
mikið af fólki sem hafði séð okkur
´84 þegar við fórum síðast og það
var rosalega hamingjusamt að
sjá okkur aftur,“ segir Jóhann
Ásmundsson, bassaleikari Mezzo-
forte.
Hljómsveitin er nýkomin heim
frá Japan þar sem hún spilaði á
sex tónleikum í borgunum Tókýó
og Osaka. Þetta voru fyrstu tón-
leikar Mezzoforte í Japan í 27 ár.
Sveitin spilaði í klúbbi sem heit-
ir Billboard Live fyrir framan
300-400 manns í hvert skipti og
viðbrögðin voru mjög góð. Eftir
hverja tónleika hitti Mezzoforte
aðdáendur sína og gaf eiginhandar-
áritanir. „Maður var hálfhissa
yfir móttökunum sem við feng-
um. Þetta var mjög skemmtileg
ferð og ánægjuleg að mörgu leyti
en þetta var erfitt varðandi tíma-
mismuninn,“ segir Jóhann en níu
klukkustundum munar á Íslandi
og Japan. Ferðalagið þangað var
langt og strangt, um sólarhringur,
og þurftu þeir félagar að milli-
lenda í Kaupmannahöfn og Hels-
inki á leið sinni til Tókýó.
Markaðurinn í Japan er
gríðar lega stór og Jóhann von-
ast til að kveikja áhuga Japana
á Mezzoforte enn frekar. „Með
auknum áhuga gæti þetta verið
mjög góð viðbót við allt annað sem
við gerum,“ segir hann og útilok-
ar ekki að koma þangað aftur eftir
eitt til tvö ár. Engir tónleikar hafa
verið bókaðir með Mezzoforte á
næstunni. Þó stendur til að spila
hér á landi seinna á árinu. Jóhann
segir að stefnt sé að upptökum á
nýrri plötu á þessu ári.
- fb
Hittu sömu aðdáendur og 1984
ELDHEITIR AÐDÁENDUR Japanskir aðdáendur Mezzoforte voru hæstánægðir með að
sjá hljómsveitina aftur.
F50190111 MEZZOFORTE
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Fr
á 990 Kr./kg.
Allir fiskréttir
Súr hvalur
HM TILBOÐ
Fiskfars 550 kr.kg
Lau 22.1. Kl. 19:00
Sun 23.1. Kl. 19:00
Lau 29.1. Kl. 19:00
Fös 4.2. Kl. 19:00
Lau 5.2. Kl. 19:00
Mið 9.2. Kl. 19:00
Fös 18.2. Kl. 19:00
Lau 19.2. Kl. 19:00
Sun 23.1. Kl. 13:00
Sun 23.1. Kl. 15:00
Sun 30.1. Kl. 13:00
Sun 30.1. Kl. 15:00 Allra síð.sýn.
U
Fíasól (Kúlan)
Íslandsklukkan (Stóra sviðið)
Gerpla (Stóra sviðið)
U
Ö
Sun 6.3. Kl. 13:00
Sun 6.3. Kl. 14:30
Sindri silfurfiskur (Kúlan)
Fim 20.1. Kl. 20:00
Mið 26.1. Kl. 20:00 Aukasýn.
Sun 30.1. Kl. 20:00 Síð.sýn.
Lér konungur (Stóra sviðið)
Fim 3.2. Kl. 18:00
Sun 6.2. Kl. 14:00
Sun 6.2. Kl. 17:00
Sun 13.2. Kl. 14:00
Sun 13.2. Kl. 17:00
Sun 20.2. Kl. 14:00
Sun 20.2. Kl. 17:00
Sun 27.2. Kl. 14:00
Sun 27.2. Kl. 17:00
Sun 6.3. Kl. 14:00
Sun 6.3. Kl. 17:00
Ballið á Bessastöðum (Stóra sviðið)
U
Ö Ö
Hænuungarnir (Kassinn)
Fös 21.1. Kl. 20:00 8. sýn
Fim 27.1. Kl. 20:00
Fös 28.1. Kl. 20:00
Fös 11.2. Kl. 20:00
Lau 12.2. Kl. 20:00
Fim 17.2. Kl. 20:00
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
U U
Ö
Ö Ö
U
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Ö
Fim 20.1. Kl. 20:00
Lau 22.1. Kl. 17:00 Aukasýn.
Lau 22.1. Kl. 20:00
Sun 23.1. Kl. 17:00 Aukasýn.
Sun 23.1. Kl. 20:00 Síð.sýn.
U
U U
SJÁÐU ALLT UM HM Á VISIR.IS