Fréttablaðið - 26.01.2011, Blaðsíða 5

Fréttablaðið - 26.01.2011, Blaðsíða 5
Nánari upplýsingar eru á vef ríkisskattstjóra www.rsk.is Lokafrestur 31. janúar Endurgreiða má virðisaukaskatt vegna kostnaðar við aðkeypta vinnu við viðhald og endurbætur á íbúðar- og frístundahúsnæði. Samhliða má lækka tekjuskattsstofn um mest 200.000 kr. hjá einhleypingi og 300.000 kr. hjá hjónum og sambúðarfólki. Frestur til að skila inn umsókn vegna vinnu á árinu 2010 rennur út 31. janúar næstkomandi. Ef sótt er um eftir þann tíma vegna framkvæmda á síðasta ári heimilast aðeins endurgreiðsla á virðisaukaskatti en ekki lækkun á tekjuskattsstofni. Húsfélög sem fengið hafa endurgreiðslu á virðisaukaskatti fyrir hönd eigenda þurfa að skila til ríkisskattstjóra sundurliðun á kostnaði þannig að eigendur geti átt rétt á lækkun á tekjuskattsstofni við álagningu 2011. Hægt er að skila inn sundurliðun á skattur.is. Til að lækka tekjuskattsstofn þarf að skila umsókn í síðasta lagi 31. janúar Hægt er að skila inn rafrænni umsókn á skattur.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.