Fréttablaðið - 26.01.2011, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 26.01.2011, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 26. janúar 2011 3 Henni gengur vel með verkefn- ið því þegar á hún 30 stefnumót að baki síðan í október 2010. „Bakgrunnur og uppeldi hefur mikið um það að segja hvernig fólk upplifir og túlkar umhverfi sitt. Það litar alla þess hegðun, hvort sem það er í stefnumóta- samhengi eða öðru,“ segir Helga Marín. „Það kemur margt skemmtilegt fram á stefnumóti við Indverja, Afgana, Pakistana, mann frá Abu Dhabi eða Jem- ena. Ég hef fundið meiri samleið með sumum þjóðum en öðrum, til dæmis þeim sem koma frá Suður-Afríku, Ástralíu, Nýja- Sjálandi, Ameríku, Pakistan og Palestínu. Mér veitist líka auðvelt að skilja fólk frá arabalöndunum en ástæða þess er kannski sú að ég hef búið með tveimur aröbum og dvalið í arabalandi í svo mörg ár. Það hefur gefið mér nóg inn- sæi til að skilja og virða þeirra menningu.“ Helga Marín rekur fyrirtækið Health, Mind and Body í Dubai og heldur námskeið sem stuðla að bættri heilsu og líðan, meðal annars með sjálfseflingu og aðhaldi. Einnig kennir hún nær- ingarfræði og markþjálfun. Hún er komin hingað til lands til að vera með fyrirlestra og námskeið næstu vikurnar. Þar leggur hún áherslu á að veita fólki innblástur til að virkja kraft hugans og stuðla með því að auknum tilfinningaþroska og hamingjuríku lífi. „Ég vil kveikja í fólki þrá og hvöt til að ná hámarksárangri í því sem það tekur sér fyrir hendur, hvort sem það er á sviði heilsu, fjölskyldulífs eða atvinnu,“ lýsir hún. „Markmiðið er að hjálpa fólki að finna það besta í sjálfu sér og öðrum og láta ljós sitt skína.“ Heilsa og hamingja og Streitu- laust líf eru nöfn á námskeiðum sem Helga er með. Lifðu lífinu lifandi er styttri fyrirlestur. Einn slíkan hamingjufyrirlestur verður hún með í Heilsuborg hinn 8. mars og er frítt inn á hann. Helga er með heimasíðuna http://healthmindbody.net/index. php og netfang hennar er helga@ healthmindbody.net gun@frettabladid.is Helga Marín við stærstu mosku heims sem er í Abu Dhabi, skammt frá Dubai. Framhald af forsíðu Kjóll kr. 14.990 Kjól kr. 14.990 Leggings kr. 3.990 Ermar kr. 4.990 Ferming 2011 Glæsilegt úrval af fermingakjólum RÝMINGASALA 40-70% afsláttur af öllum vörum BASLER og MYBC Laugavegi 53 • s. 552 3737 Opið mánudag til föstudag 10-18, laugardag 10-17 50% afsláttur Allar útsölu vörur Fools Gold Loaf Brauðhleifur fylltur með beikoni , hnetusmjöri og grapesultu. Southern Fried Chicken Kjúlingalundir hjúpaðar hvítlauk, parmasan og brauðmylsnu. Peanut And Banana Sandwich Smjörsteikt samloka fyllt með hnetusmjöri og maukuðum banana. Savory Meat Loaf Kjöthleifur hjúpaður chilli sósu. Baked Apple And Sweet Potato Pudding Epli og sætar kartöflur. Bakað í smjöri með vanillu og kanil. BBQ Spare Rib And Chiken Wings Grilluð svínarif og kjúklinga vængir í hunangs BBQ. Sweet Potato Casseroles Ofnbakað kartöflu-mauk með púðursykri og pecanthnetum. Baked Glazed Ham Reyktur grísavöfði bakaður í maple sírópi og pepsicola. Brined Turkey Breast Kryddlegin kalkúna bringa. Bökuð í smjöri og creole kryddi. Honey -Lemon Leg of Lamb Hvítlauksstungið lambalæri. Marinerað í hunangi og sítrónusafa, heilsteikt og lungamjúkt. Pound Cake Ljós og þétt með safaríku vanillu bragði. The Ultimate Chocolate Cake Hin fullkomna súkkulaðikaka með þeyttum rjóma og berjum. FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN MEIRA AF FRÆGA FÓLKINU Deildu Vísi með öðrum. Þeir sem setja „like“ við Vísi á Facebook geta unnið óvænta vinninga í hverri viku.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.