Fréttablaðið - 26.01.2011, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 26.01.2011, Blaðsíða 4
 26. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR4 ÁKVÖRÐUN HÆSTARÉTTAR: Stjórnlagaþingskosningar ógildar Óðinn Sigþórsson, bóndi í Einarsnesi við Borgarnes, er einn kærendanna. Óðinn er formaður Landssambands veiðifélaga og varaformaður Landssamtaka landeigenda á Íslandi. Hann segist aldrei mundu hafa lagt fram kær- una ef hann hefði talið að allt hefði farið fram lögum samkvæmt. „Ég er alveg sáttur við þessa niðurstöðu. Ég tel að hún sé eðlileg afleiðing af því hvernig staðið var að þessu,“ segir Óðinn. „Það er auðvitað algjört grundvallaratriði þegar menn ætla að endurskoða stjórnarskrána að staðið sé að því með þeim hætti að það sé hafið yfir allan vafa að lögum sé fylgt.“ GRUNDVALLAR - ATRIÐI AÐ LÖGUM SÉ FYLGT ÓÐINN SIGÞÓRSSON Þorgrímur S. Þorgrímsson, vélvirkja- og rennismíðameistari í Neskaupstað, er einn kærenda kosninganna. Hann situr í stjórn Sjálfstæðisfélags Norðfjarðar. Þor- grímur vildi lítið tjá sig um málið við Fréttablaðið að öðru leyti en því að hann væri ánægður með úrskurð Hæstaréttar. „Ég er hæstánægður með þetta. Maður fer auðvitað ekki í mál nema til þess að vinna það,“ segir Þorgrímur. Hann vísar þá á lögfræðinga sína. Gísli M. Auðbergsson, lögfræðingur hjá lögmannsstofunni Réttvísi, var einn lögfræðinga Þorgríms sem unnu að málinu. Hann segir dóm Hæstaréttar vera í algjöru sam- ræmi við þær kærur sem lagðar voru fram. „Annmarkarnir voru það alvar- legir að það var í raun ekki hægt að líta framhjá þeim,“ segir Gísli. „Við sáum aldrei fyrir okkur að það hefði verið hægt að komast hjá því að ógilda kosninguna.“ Hann segir það hafa verið rætt meðal samstarfsmanna sinna að fyrirkomulag kosninganna hefði verið í ólagi. „Eins og ég skildi þetta fannst mönnum þetta vera meingallað,“ segir Gísli. „Hvort það væri hægt að hafa þessar kosningar eitthvað óvandaðri en aðrar.“ MAÐUR FER EKKI Í MÁL NEMA TIL AÐ VINNA VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 13° 3° 1° -1° 1° 1° -1° -1° 20° 6° 12° 4° 21° -10° 4° 17° -5° Á MORGUN 5-10 m/s. FÖSTUDAGUR 8-15 m/s. 5 5 5 5 6 6 7 8 8 4 2 8 9 6 5 8 6 7 8 4 5 4 4 5 2 6 4 1 -2 -10 3 VÆTUSAMT VESTRA Það verður heldur úrkomu- samt um vestan- vert landið næstu daga og líklega um helgina einn- ig. Svipað veður á morgun en fer hægt kólnandi og á föstudag má búast við ákveðinni vest- anátt með slyddu- éljum eða éljum. Elísabet Margeirsdóttir veður- fréttamaður Kosningarnar sem fram fóru til stjórnlagaþings 27. nóvember síð- astliðinn eru ógildar samkvæmt ákvörðun Hæstaréttar frá því í gær. Þrír kærðu kosninguna til Hæstaréttar, tveir kjósend- ur og einn frambjóðandi. Töldu þeir nokkur atriði í framkvæmd hennar brjóta í bága við lög. Í kjölfarið kallaði Hæstiréttur eftir sjónarmiðum allra aðila að málinu, kærenda, landskjör- stjórnar, innanríkisráðuneytisins og þeirra sem náðu kjöri á þing- ið, málflutningur fór fram fyrir dómnum og farið var í vettvangs- göngu í Laugardalshöll þar sem talningin fór fram. Niðurstaðan er sú að Hæsti- réttur fellst á flest rök kærenda. Ógildingin byggir á sex atrið- um sem dómurinn flokkar í ann- marka og verulega annmarka. Þeir verulegu lúta að rekjanleika atkvæðaseðla til kjósenda og því að frambjóðendur hafi ekki haft fulltrúa til að gæta réttar síns á talningarstað. Stjórnlagaþingskosningin var frábrugðin hefðbundnum kosn- ingum á Íslandi að mörgu leyti. Um var að ræða persónukjör með 522 frambjóðendum, auðkennis- númer frambjóðenda voru rituð á kjörseðla en ekki nöfn, velja mátti fjölda frambjóðenda og talið var rafrænt. Þetta rekur Hæstiréttur í niðurstöðu sinni. „Það fellur í hlut löggjafans að setja skýrar og ótvíræðar reglur um framkvæmd opinberra kosn- inga þar sem tekið er réttmætt tillit til aðstæðna sem leiða af sér- stöku eðli þeirra. Það var á hinn bóginn ekki á færi stjórnvalda að víkja frá skýrum fyrirmælum laga um framkvæmd þeirra vegna fjölda frambjóðenda eða nýs verklags sem hentugt þótti vegna rafrænnar talningar atkvæða.“ Ákvörðunina tóku Hæstaréttar- dómararnir Garðar Gíslason, Árni Kolbeinsson, Gunnlaugur Claessen, Jón Steinar Gunnlaugs- son, Páll Hreinsson og Viðar Már Matthíasson. stigur@frettabladid.is Sex ágallar á kosningunni Hæstiréttur féllst á flest rök þriggja manna sem kærðu kosningarnar til stjórnlagaþings og úrskurðaði þær ógildar. Alvarlegustu ágallarnir lúta að rekjanleika kjörseðla og skorti á eftirlitsmönnum á talningarstað. Rekjanleg atkvæði Kjörseðlar voru númeraðir, þeim dreift til kjördeilda í samfelldri núm- eraröð og eftir að kosningu lauk var unnt að rekja úr hvaða kjördeild þeir komu. Þá voru kjósendum afhentir seðlarnir í númeraröð. Hæstiréttur segir auk þess að alkunna sé að sú aðferð sé oft viðhöfð á kjörstað að stemma af fjölda kjósenda með því að skrá niður nöfn þeirra í þeirri röð sem þeir koma. Þetta tvennt gerði það að verkum að það var „í reynd afar auðvelt að færa upplýsingar samhliða nöfnum kjósenda þannig að rekja mætti til númera seðla sem þeir höfðu fengið,“ að því er segir í ákvörðuninni. Þetta brjóti í bága við ákvæði um kosningaleynd. Niðurstaða: Verulegur annmarki á kosningunni. Óviðunandi kjörklefar Sextíu sentímetra há pappaspjöld sem aðgreindu kjósendur uppfylltu það ekki að geta talist kjörklefar í skilningi laga og vörnuðu því ekki með fullnægjandi hætti að menn gætu séð á kjörseðla annarra. Niðurstaða: Annmarki á kosningunni. Bannað að brjóta saman Í almennum kosningalögum, sem vísað er til í lögum um stjórnlaga- þing, er kveðið á um að kjósandi skuli brjóta kjörseðilinn saman til að tryggja leynd um atkvæðið. „Ekki er í [lögum um stjórnlagaþing] vikið berum orðum frá þessari reglu svo einfalt sem það hefði verið ef vilji hefði staðið til þess við setningu lag- anna,“ segir í ákvörðun Hæstaréttar. Niðurstaða: Annmarki á kosningunni. Tveir dómaranna, Garðar Gíslason og Viðar Már Matthíasson, lýstu sig ósammála þessari niðurstöðu. Í kosningalögum sé kveðið á um að kjósandi skuli brjóta kjörseðil „í sama brot og hann var í þegar hann tók við honum“. Í lögum um stjórnlaga- þing sé hins vegar sérákvæði um prentun kjörseðla og þar sé ekki gert ráð fyrir að nokkurt brot skuli vera á seðlinum. Ólæstir kjörkassar Kjörkassarnir uppfylltu ekki skilyrði laga um að hægt væri að læsa þeim. „Þá voru kjörkassarnir þeirrar gerðar að unnt var án mikillar fyrirhafnar að taka þá í sundur og komast í kjör- seðla.“ Þetta þykir Hæstarétti til þess fallið að draga úr öryggi og leynd kosninganna. Niðurstaða: Annmarki á kosningunni. Talning ekki opin Landskjörstjórn bar lögum samkvæmt að leyfa aðgang að talningarstað eftir því sem húsrúm leyfði og svo fremi sem reglu væri haldið uppi. Hún ákvað hins vegar að gera það ekki. Niðurstaða: Annmarki á kosningunni Engir umboðsmenn frambjóðenda Lögum samkvæmt mega framboð að jafnaði hafa tvo umboðsmenn viðstadda talningu, til dæmis í þing- kosningum. Það lagaákvæði gilti ekki um þessa kosningu. Hins vegar telur Hæstiréttur að í þeirri stöðu hefði landskjörstjórn átt að líta til annars ákvæðis í kosningalögum sem kveður á um að séu umboðsmenn ekki viðstaddir skuli kveðja valinkunna menn úr sömu stjórnmálasamtökum, ef unnt er, til að gæta réttar af hendi listans. „Á grundvelli þessa ákvæð- is bar landskjörstjórn, að breyttu breytanda, að kveðja valinkunna menn til að gæta réttar frambjóðenda við talningu atkvæða eftir því sem framkvæmanlegt var með hliðsjón af rafrænni talningu og öðrum atriðum.“ Þetta telur Hæstiréttur sérstaklega mikilvægt atriði í ljósi þess að vafi var um hvernig skilja bæri skrift kjósenda á 13 til 15 prósentum kjörseðla. „Það haggar í engu þessari niðurstöðu þótt fulltrúi innanríkisráðuneytisins, dr. James Gilmour, hafi fylgst sérstaklega með talningunni,“ segir Hæstiréttur. Niðurstaða: Verulegur annmarki á kosningunni. Tveir verulegir annmarkar og fjórir minni KOSNINGIN Meðal annmarka á framkvæmd kosningarinnar voru pappaspjöld sem aðgreindu kjósendur. Hæstiréttur telur þau ekki geta talist kjörklefar. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Skafti Harðarson, rekstrarstjóri hjá Húsasmiðjunni og frambjóðandi til stjórnlagaþings, lagði einnig fram kæru til Hæstaréttar. Skafti bauð sig fram til stjórnlagaþings undir þeim formerkjum að þingið og þau útgjöld sem því fylgdu væru fásinna. Hann segist afskaplega ánægður með niðurstöðuna en tekur fram að hann sé hins vegar ekki ánægður með það hversu mikl- um tíma og peningum sé búið að eyða í kosningar sem hann telur að hafi verið fyrir neðan allar hellur. „Fyrir hönd íslenskra skattgreið- enda er þetta dapur dagur,“ segir Skafti. „Ég bauð mig fram undir þeim formerkjum að þetta væri óþarft og tengdist hruni ekki á nokk- urn hátt.“ Hann telur að betra sé að hafa eytt tímanum og peningunum í stjórnlagaþing sem hugsanlega aldrei verði en að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. „Það eru engin rök að lög megi brjóta til þess að spara okkur pening. Það væri nú einhver fáránlegasta röksemd fyrir fasisma sem ég hef heyrt.“ DAPUR DAGUR FYRIR SKATTGREIÐ- ENDUR SKAFTI HARÐARSON AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.