Fréttablaðið - 26.01.2011, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 26.01.2011, Blaðsíða 34
26 26. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR MILLIRIÐILL 1 Þýskaland - Noregur 25-35 Spánn - Ungverjaland 30-24 Frakkland - Ísland 34-28 LOKASTAÐAN Frakkland 5 4 1 0 160-129 9 Spánn 5 4 1 0 147-127 9 Ísland 5 2 0 3 137-141 4 Ungverjaland 5 2 0 3 127-147 4 Noregur 5 1 0 4 133-142 2 Þýskaland 5 1 0 4 124-142 2 MILLIRIÐILL 2 Króatía - Pólland 28-24 Serbía - Argentína 26-25 Danmörk - Svíþjóð 27-24 LOKASTAÐAN Danmörk 5 5 0 0 155-131 10 Svíþjóð 5 3 0 2 127-124 6 Króatía 5 2 1 2 142-129 5 Pólland 5 2 0 3 123-129 4 Serbía 5 1 1 3 127-139 3 Argentína 5 1 0 4 117-139 2 NÆSTU LEIKIR 10./11. sæti: Þýskal. - Argent. fim. kl. 17.00 9./10. sæti: Noregur - Serbía fim. kl. 19.30 7./8. sæti: Ungverjal. - Pólland fös. 17.00 5./6. sæti: Ísland - Króatía fös. kl. 19.30 Undanúrslit: Svíþjóð - Frakkland föstudag Undanúrslit: Danmörk - Spánn föstudag ÚRSLIT - HM 2011 Henry Birgir Gunnarsson og Valgarður Gíslason fjalla um HM í Svíþjóð henry@frettabladid.is - valgard.gislason@365.is saltdreifarar Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ. Sími 480-0000 · www.aflvelar.is - sala - varahlutir - þjónusta G æ ð i H r e i n l e i k i V i r k n i G Ú S T A V S S O N B J Ö R G V I N P Á L L „NOW eru klárlega fæðubótarefni í landsl iðsklassa fyrir al la íþróttamenn. Mæli sterklega með þessum vörum fyrir þá sem leita eftir styrk, úthaldi og snerpu -þær virka vel fyrir mig.“ NOW virkar vel fyrir mig! NOW - Fullkomin l ína af íþróttafæðubótarefnum – fáanleg í verslunum um allt land HM 2010 Heims, Evrópu- og ólympíu meistarar Frakka unnu næsta þægilegan sigur, 34-28, á Íslandi í gær. Þetta var lokaleik- ur milliriðilsins og strákarnir eiga því aðeins eftir að spila einn leik á HM í Svíþjóð. Leikurinn skipti í raun engu máli fyrir Ísland því fyrir leik varð ljóst að Ísland myndi hafna í þriðja sæti riðilsins og spila við Króatíu um fimmta sætið á mót- inu. Engu að síður höfðu leikmenn íslenska liðsins eflaust sitt hvað að sanna fyrir sjálfum sér gegn lið- inu sem hefur staðið í vegi fyrir því að þeir ynnu gull á stórmóti. Íslenska liðið var án Ingimund- ar Ingimundarsonar og Ólafs Stef- ánssonar sem eru báðir meidd- ir á hné. Ólafur var þó til taks á bekknum en kom ekki við sögu. Strákarnir byrjuðu leikinn ágæt- lega. Virtust vera með ágætar lausnir við agressívum varnarleik franska liðsins og leiddu framan af. Frakkarnir voru þó fljótir að hressast. Þeir tóku í kjölfarið öll völd á vellinum og virtust ætla að keyra yfir Íslendinga. Staðan 3-7 eftir tíu mínútur og Guðmundur tók leikhlé. Það skilaði sínu því strákarnir stigu aftur á bensínið og unnu sig hægt og rólega inn í leikinn á ný. Munurinn var aðeins þrjú mörk í leikhléi, 13-16, og íslenska liðið átti alla möguleika til þess að gera eitthvað í síðari hálfleik. Frakkarnir byrjuðu síðari hálf- leikinn betur og náðu fljótt sex marka forskoti. Sem fyrr neit- uðu strákarnir okkar að gefast upp og gerðu allt hvað þeir gátu til þess að komast aftur inn í leik- inn. Frakkarnir voru aftur á móti of sterkir. Þeir héldu strákunum alltaf í hæfilegri fjarlægð og unnu öruggan sigur. Þó svo það sé vissulega frábært að leika um fimmta sætið á stór- móti þá er árangurinn í milliriðl- inum gríðarleg vonbrigði. Allir þrír leikirnir töpuðust og það á sannfærandi hátt. Strákarnir komu í góðri stöðu inn í riðilinn en tapið gegn Þjóðverjum virtist rota liðið. Menn voru ekki tilbún- ir í þann leik og ekki heldur í leik- inn gegn Spánverjum. Frakkarn- ir voru svo of sterkir. Þeir virtust ekki þurfa að hafa mikið fyrir því að vinna okkar menn sann- færandi. Það er vonandi að strákarn- ir sýni þann anda og neista sem fylgdi liðinu í riðlakeppn- inni er það tekur á móti Króöt- um. Það væri gott að enda þetta mót á góðum nótum eftir þennan skelfilega milliriðil. Milliriðlamartröðin hélt áfram Strákarnir okkar töpuðu öllum sínum leikjum í milliriðli HM. Úrslitin voru þó okkur hagstæð í gær og Ísland spilar um fimmta sætið og er þar af leiðandi öruggt með sæti í umspili Ólympíuleikanna. VIGNIR ÖFLUGUR Vignir Svavarsson stóð vaktina í fjarveru Ingimundar Ingimundarssonar sem var frá vegna meiðsla. Hann skilaði einnig sínu í sókninni og skoraði þrjú mörk. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HANDBOLTI Íslenska handboltalandsliðið getur þakk- að Norðmönnum og Spánverjum fyrir að liðið spilar um fimmta sætið á HM í Svíþjóð. Norðmenn unnu tíu marka sigur á Þjóðverjum, 35-25, og Spánverj- ar voru ekki í miklum vandræðum með Ungverja í hinum leikjunum í okkar milliriðli í gær. Þetta voru sannkölluð draumaúrslit fyrir Ísland og þýddu að íslenska liðið þurfti ekki að berjast fyrir lífi sínu á móti Frökkum seinna um kvöldið. Hefðu Norð- menn og Spánverjar tapað sínum leikjum þá hefðu íslensku strákarnir spilað um níunda sætið á mótinu þar sem liðið tapaði öllum þremur leikjum sínum í milliriðlinum. Dagurinn byrjaði á tíu marka stórsigri Norðmanna á Þjóðverjum, 35-25, sem þýddi að þýska liðið spil- ar aðeins um ellefta sætið á mótinu. Norðmenn fóru á kostum í leiknum og fóru afar illa með þýska liðið einkum í síðari hálfleiknum þegar það var algjör uppgjöf í þýska liðinu. Steinar Ege átti frábæran leik í norska markinu og flestir leikmenn liðsins voru í miklum ham ekki síst Christoffer Rambo sem skoraði sjö glæsileg mörk í leiknum. Norðmenn voru með frumkvæðið strax frá byrjun leiksins og náðu síðan fjögurra marka forskoti fyrir hálfleik, 17-13, með góðum lokakafla í hálfleiknum. Þjóðverjar náðu að minnka muninn í þrjú mörk í upp- hafi seinni hálfleiks en þeir komust ekki nær. Norð- menn stungu síðan af og léku sér að þeim þýsku á lokakafla leiksins. Håvard Tvedten skoraði 8 mörk fyrir Norðmenn og þeir Bjarte Myrhol og Christof- fer Rambo voru báðir með 7 mörk. Steinar Ege var þó maður leiksins því hann varði 21 skot þar af 14 þeirra í fyrri hálfleiknum. Ísland var því öruggt með að spila um sjöunda sætið eftir fyrsta leik dagsins en Spánverjar brugð- ust ekki vonum Íslendinga og unnu nokkuð sannfær- andi sex marka sigur á Ungverjum, 30-24. Það varð því ljóst að íslenska liðið myndi spila um fimmta sætið við Króata. Spánverjar sýndu styrk sinn á móti Ungverjum og voru með gott forskot nánast allan leik- inn þrátt fyrir að skipta leiktímanum bróðurlega á milli sinna leikmanna. Króatar tryggðu sér leik á móti Íslandi um fimmta sætið með fjögurra marka sigri á Pólverjum og Danir tryggðu sér síðan sigur í hinum milliriðlinum með þriggja marka sigri á Svíum, 27-24. Sigur Dana var sannfærandi og í raun aldrei í hættu.Danir mæta því Spánverjum í undanúrslitunum en Svíar spila við Frakka. - óój Draumaúrslit fyrir íslenska landsliðið í gær tryggðu leik um fimmta sætið: Takk fyrir, Noregur og Spánn SPÁNVERJAR UNNU UNGVERJA Gabor Császár var næstmarka- hæsti leikmaður Ungverja en náði ekki að koma í veg fyrir spænskan sigur í gær. MYND/VALLI Ísland-Frakkland 28-34 (13-16) Mörk Íslands (Skot): Alexander Petersson 6 (13), Róbert Gunnarsson 5 (7), Vignir Svavarsson 3 (4), Aron Pálmarsson 3 (11), Guðjón Valur Sigurðsson 3 (5), Þórir Ólafs- son 3/1 (6/1), Snorri Steinn Guðjónsson 2/1 (3/2), Ásgeir Örn Hallgrímsson 1 (1), Arnór Atlason 1 (3), Sigurbergur Sveinsson 1 (1), Oddur Gretarsson 0 (2) Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 13 (41/2, 32%), Hreiðar Levy Guðmundsson 1 (7, 14%). Hraðaupphlaupsmörk: 7 (Þórir 2, Vignir 2, Ásgeir Örn, Guðjón Valur, Alexander) Fiskuð víti: 3 (Vignir, Alexander, Róbert). Brottvísanir: 10 mínútur (Sverre rautt) Mörk Frakkland (Skot): Nikola Karabatic 7 (10), Xavier Barachet 6 (7), William Acc- ambray 4 (5), Jérôme Fernandez 4 (6), Luc Abalo 3(4), Bertrand Gille 3 (5), Michaël Guigou 3/2 (5/2), Samuel Honrubia 2 (3), Cédric Sorhaindo 2 (4). Varin skot: Daouda Karaboué 14/1 (29/3, 48%), Thierry Omeyer 7 (13, 54%). Hraðaupphlaupsmörk: 5 (Fernandez, Gille, Honrubia, Abalo, Guigou) Fiskuð víti: 2 (Guillaume Joli, Sorhaindo). Brottvísanir: 6 mínútur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.