Fréttablaðið - 26.01.2011, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 26.01.2011, Blaðsíða 38
30 26. janúar 2011 MIÐVIKUDAGUR „Ég skrifaði undir trúnaðarsam- komulag um að gefa ekkert upp um efni myndarinnar en ég get alveg viðurkennt að ég hafi verið að vinna í henni,“ segir Finnur Þór Guðjónsson. Hann er einn af fjór- um Íslendingum sem eru í töku- liði bandarísku stórmyndarinnar The Girl with the Dragon Tattoo eða Karlar sem hata konur en hún er byggð á samnefndri skáldsögu Stiegs Larsson um Lisbeth Saland- er og Mikael Blomkvist. Finnur Þór vildi lítið tjá sig um starf sitt, sagðist hafa verið ljósamaður og að hann hefði verið í tíu vikur úti í Svíþjóð. Annar Íslendingur var einnig við störf í ljósadeildinni en hann heitir Ævar Sigurðsson og þá ku stúlka hafa verið við störf í búningadeildinni. Fréttablað- ið hefur ekki fengið nafn hennar staðfest. Eins og Fréttablaðið hefur þegar greint frá hefur ljósmyndarinn Baldur Bragason unnið við tökur á myndinni. Hún er ein stærsta kvikmyndafram- leiðsla sem Svíar hafa lagt í. Leikstjóri myndarinnar, David Fincher, hefur nú þegar hrist upp í milljón- um aðdáenda Stiegs Lars- son með þeirri yfirlýs- ingu að endinum hafi verið breytt. Hann sé allt öðruvísi en endir bókarinnar. Hins vegar hefur ekki fengist staðfest hvort enskumælandi leikarar myndarinn- ar muni tala með sænskum hreim eins og einhverjar fréttir bentu til. Með hlutverk tölvu- hakkarans Salanders fer Rooney Mara og Daniel Craig leikur blaðamanninn Mikael Blomkvist. - fgg MORGUNMATURINN Hljómsveitin Retro Stefson er í þann mund að skrifa undir samn- ing við stórfyrirtækið Univer- sal. Viðræður fóru af stað eftir að útsendari fyrirtækisins í Þýska- landi fór á tónleika með hljóm- sveitinni á Iceland Airwaves-hátíð- inni síðasta haust og heillaðist upp úr skónum. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins eiga liðsmenn Retro Stef- son enn eftir að undirrita samn- inginn en líklegt er að það gangi í gegn á næstu dögum. Hvorki Unnsteinn Manúel Stefánsson úr Retro Stefson né Grímur Atlason, umboðsmaður sveitarinnar og framkvæmdastjóri Iceland Air- waves, vildu tjá sig um samning- inn þegar Fréttablaðið hafði sam- band við þá. Unnsteinn staðfesti þó að von væri á fréttatilkynningu á næstu dögum. Retro Stefson hefur lengi verið talin ein efnilegasta hljómsveit landsins. Hún hefur gefið út tvær plötur á ferli sínum, nú síðast Kimbabwe sem féll í mjög góðan jarðveg. Hún fékk fjórar stjörn- ur hér í Fréttablaðinu og lenti í þriðja sæti hjá sérfræðingum blaðsins yfir bestu plötur síðasta árs. Umræddur samningur snýst um útgáfu Kimbabwe á erlendri grundu. Stutt er síðan Retro Stefson spil- aði á bransahátíðinni Eurosonic í Hollandi. Í umfjöllun þýskr- ar heimasíðu tónlistartímarits- ins Rolling Stone um hátíðina var minnst á hljómsveitina sem eina af þeim sem væru líklegar til að slá í gegn á næstunni. freyr@frettabladid.is UNNSTEINN MANUEL STEFÁNSSON: FRÉTTATILKYNNING Á LEIÐINNI Retro Stefson að semja við útgáfurisann Universal RETRO STEFSON Hljómsveitin Retro Stefson á Airwaves-hátíðinni síðasta haust þar sem útsendari Universal var á svæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR „Ég fæ mér oftast sojajógúrt með múslíi en stundum fæ ég mér ristað brauð.“ Helga Lilja Magnúsdóttir fatahönnuður. ÓLÖF ARNALDS Tónlistarkonan fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína á Sydney Festival. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Þessi nöfn eru staðfest og munu syngja lagið hans Sjonna,“ segir Jóhanna Jóhannsdóttir, dagskrár- stjóri RÚV. Sex vinir Sjonna Brink munu flytja lagið hans Aftur heim sem lagasmiðurinn og söngvar- inn samdi fyrir Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár. Þetta eru þeir Hreimur Örn Heimisson, Gunn- ar Ólason, Benedikt Brynleifsson, Vignir Snær, Matthías Matthías- son og Pálmi Sigurhjartarson. Lagið verður flutt síðast á laug- ardaginn. Fjórir af þessum tónlist- armönnum sungu lagið Waterslide með Sigurjóni í síðustu söngva- keppni; þeir Vignir Snær, Hreim- ur Örn, Gunnar og Benedikt. Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum varð Sigurjón Brink bráðkvaddur á heimili sínu á mánudag í síðustu viku. Hann samdi lagið en eigin- kona hans, Þórunn Erna Clausen, á heiðurinn af textanum. Fjögur lög eru þegar komin áfram í söngvakeppni Sjónvarps- ins en á laugardaginn voru það Eldfjall og Nótt sem komust áfram. Áður höfðu Ástin mín eina og Ef ég hefði vængi þegar tryggt sér sæti í úrslitum keppninnar um hvaða lag verður framlag Íslands til Eurovision. Meðal annarra flytjenda á laugardaginn má nefna Jógvan Hansen og Magni Ásgeirs- son en hann syngur lag Hallgríms Óskarssonar, Ég trúi á betra líf. - fgg Á TÖKUSTAÐ Baldur Braga- son hefur tekið ljósmyndir á tökustað The Girl with the Dragon Tattoo. Þrír aðrir Íslendingar hafa verið við störf við gerð myndarinnar, meðal annars Finnur Þór Guðjóns- son sem vann í gríðarlega stórri ljósadeild tökuliðsins. Rooney Mara leikur sjálfa Lisbeth Salander. Tónlistarkonan Ólöf Arnalds hefur fengið mjög góða dóma fyrir tón- leika sína á menningarhátíðinni Sydney Festival sem haldin er í Ástralíu um þessar mundir. Ólöf steig á svið á tónleikastaðn- um The Famous Spiegeltent í garð- inum Hyde Park og þótti standa sig einkar vel að mati blaðamanna The Sydney Morning Herald og The Daily Telegraph. „Með engla- rödd sinni og einföldum hljóðfæra- leik virtist hún koma úr öðrum heimi. Þegar ég reyndi að smella mynd af henni uppi á sviði urðu til myndir sem höfðu yfir sér himn- eskan blæ,“ sagði í umsögn síðar- nefnda blaðsins. Auk þess að syngja eigin lög, flest á íslensku, söng Ólöf nokk- ur þekkt lög eftir aðra sem hittu rækilega í mark. Þar má nefna I´m On Fire með Bruce Springsteen og Solitary Man með Neil Diamond. Blaðamaður The Sidney Morning Herald taldi flutning hennar á síð- arnefnda laginu þann besta á tón- leikunum. „Hún söng lagið eins og hún hefði nýlega uppgötvað það og gæti þar af leiðandi tengst því tilfinningalegum böndum.“ Stutt er síðan Ólöf hitaði upp fyrir hljómsveitina Grinderman á tónleikum í Tasmaníu. Þar þótti hún eiga erfitt með að ná til fjöld- ans, öfugt við tónleikana á Syd- ney Festival. Ólöf hitaði upp fyrir hljómsveitina CocoRosie á tónleik- um í hinu fræga óperuhúsi í Syd- ney í gærkvöldi. Í kvöld heldur hún svo tónleika í borginni Mel- bourne, sem verða hennar síðustu á tónleikaferðalaginu um Ástralíu. - fb Himnesk frammistaða Fjórir Íslendingar í vinnu á tökustað Karlar sem hata konur Sex vinir Sjonna syngja Eurovision-lagið KOMA SAMAN AFTUR Fjórir úr Waterslide- hópnum snúa aftur í Söngvakeppni Sjón- varpsins á laugardaginn þegar þeir flytja lag Sigurjóns Brink, Aftur heim. Meðal þeirra eru Hreimur Örn Heimisson og Gunnar Ólason. Okkur vantar fólk til starfa ! ÁST TIL ALLRA :) Ef þú ert 20 ára eða eldri og reyklaus þá endilega sendu okkur ferilskrá með mynd til: laundromatcafe@gmail.com www.thelaundromatcafe.com

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.