Fréttablaðið - 07.02.2011, Side 19

Fréttablaðið - 07.02.2011, Side 19
FASTEIGNIR.IS 7. FEBRÚAR 20116. TBL. Fasteignasalan Eignamiðlun hefur til sölu glæsi- lega íbúð með fallegu sjávarútsýni við Löngu- línu í Garðabæ. Í búðin er á efstu hæð í húsi sem stendur vestast á tanganum við Sjálandið í Garðabæ. Hún er sér-staklega vönduð með mikilli lofthæð og stórum gluggum. Marmari og parket er á gólfum og vandað- ar innréttingar. Stæði fylgir í lokaðri bílageymslu. Íbúðin er um 150 fm og skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, sjónvarpsherbergi, baðherbergi, eld- hús og stofu. Þvottaherbergi er innan íbúðar. Í kjall- ara er sérgeymsla. Komið er inn í forstofu með marmaragólfi. Svefn- herbergin eru parketlögð með fataskápum. Baðher- bergið er marmaralagt í hólf og gólf með glæsilegri sturtuaðstöðu og vandaðri innréttingu. Góð innrétt- ing í þvottaherbergi. Eldhúsið er opið inn í stofu með marmara á gólfi og vönduðum innréttingum. Granít er á borðum. Stofan er sérstaklega glæsileg með stór- um útsýnisgluggum. Marmari er á gólfi en miðja stofunnar er römm- uð inn með fallegu parketi. Suðursvalir eru frá stofu með fallegu sjávarútsýni. Húsið stendur við sjóbaðströndina í Sjálandshverf- inu og er útsýnið með því betra sem gerist. Eign fyrir vandláta Hátt er til lofts í stofunni og ægifagurt útsýni til sjávar. heimili@heimili.is Sími 530 6500

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.