Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.02.2011, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 18.02.2011, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 Föstudagur skoðun 16 2 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Föstudagur veðrið í dag 18. febrúar 2011 40. tölublað 11. árgangur 18. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR 1 Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 S igríður Björk Bragadóttir, matreiðslumaður og blaða-maður á Gestgjafanum, á orðið dágott safn mat-reiðslubóka sem hún hefur sank-að að sér allt frá unglingsaldri. Í því er að meðal annars að finna eintak af bók Claudiu Rhoden, Arabesque, sem geymir að hennar sögn framandi og girnilegar upp-skriftir frá Mið-Austurlöndum.„Þetta er alveg frábær bók og við lesturinn er engu líkara en maður sé hreinlega kominn í ævintýri úr 1001 nótt,“ lýsir Sig-ríður, sem kveðst almennt vera mjög hrifin af miðausturlen k imatar ð É Sigríður Björk Bragadóttir er gefin fyrir arabíska matargerð og deilir hér nokkrum uppskriftum Sesamkökur frá Marrakesh50 stk. 500 g hveiti 150 g flórsykur2 tsk. lyftiduft100 g sesamfræ120 g smjör, brætt1 dl olía Hitið ofn í 220°C,(200 á blástur). Blandið hveiti, flórsykri og lyftidufti saman í kál þar til deig er samfellt. Deig á að vera frekar mjölkennt en það gæti þurft ögn meiri olíu; bætið í þar til hægt er að móta kúlu úr deiginu.Setjið bökunarpappír á tvær ofnplötur. Mótið kúlur með því að taka deig á stærð við valhnetu, mótið eins og bolta á millih d UNAÐSSEMDIR FRÁ MIÐ-AUSTURLÖNDUM Myntute og sætindi OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 11.30 Friðarsúlan í Viðey verður tendruð í dag, klukku- stund eftir sólarlag, eða um klukkan 19, og mun lýsa alla nóttina. Hún er tendruð til heiðurs höfundi verksins, Yoko Ono, sem á afmæli í dag. Ævintýri úr 1001 nótt föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 18. febrúar 2011 Helg M r ét Reyk al e ófeimin Tjú tjú Cocoa Puffs! – Lifið heil www.lyfja.is kl. 7-1 í Lágmúla kl. 8-24 á Smáratorgi Hjá okkur er opið alla daga langt fram á kvöld að senda t ilnefninga r er til miðn ættis þann Frestur til 21. febrúa r SAMFÉLAGSVERÐLAUN FRÉTTABLAÐSINS visir.is/samfelagsverdlaun Sér Dolly Parton í haust Selma syngur kántrí með Miðnæturkúrekunum um helgina. allt 3 Nýr maður Friðrik Weisshappel sagði skilið við áfengi og tóbak. fólk 26 Skúli var mikilmenni 300 ár eru frá fæðingu Skúla Magnússonar landfógeta. tímamót 20 HVESSIR SYÐRA Fremur hæg A-átt á landinu en vaxandi vindur við S- og SV-ströndina til morguns. Fer að rigna SA-til um hádegi en annars nokkuð bjart. Hiti 1-6 stig. VEÐUR 4 5 1 -10 3 MENNING Bókabúð Máls og menn- ingar á Laugavegi 18 lokaði dyrum sínum í gærkvöldi og opnar ekki aftur. Litlar ef nokkrar líkur eru taldar á því að verslunin verði endurreist í fyrri mynd. For- svarsmenn fyrirtækisins funduðu með starfsmönnum klukkan tíu í gærkvöldi og greindu þeim frá ákvörðun sinni. Jóhannes Sigurðsson, stjórnar- formaður Bókabúðar Máls og menningar ehf., segir það mikil vonbrigði að þurfa að loka versl- uninni. „En við þurftum að játa okkur sigraða því við ofurefli er að etja. Verslun af þessari tegund, og þrátt fyrir að hún njóti mikillar velvildar fólksins í landinu, getur aldrei keppt við bankana meðan þeir beita afli sínu eins og hér var raunin á.“ Miklar sviptingar hafa verið í rekstri verslunarinnar undanfarin ár. Fyrirtækið Kaupangur, sem er í eigu Jóhannesar og Bjarka Júlíus- sonar, keypti húseignina á Lauga- vegi 18 árið 2007 en þá hafði Penn- inn, sem eftir gjaldþrot var í eigu Kaupþings banka, nú Arion banka, keypt rekstur bókabúðarinnar. Bankinn og Kaupangur náðu ekki samningum um leigu á húsnæðinu og því samstarfi lauk. Þá opnaði Arion banki bókaverslun í húsnæði fyrrum aðalútibús SPRON á Skóla- vörðustíg undir merkjum Pennans Eymundssonar, en það húsnæði er einnig í eigu bankans. Samkvæmt fréttum frá þeim tíma sló opnun þeirrar verslunar út af borðinu samning á milli Kaupangurs, Iðu og fleiri, um að taka húsnæðið á leigu um mitt ár 2009. Síðan hafa þeir Jóhannes og Bjarki rekið verslunina en telja rekstrargrundvöll Máls og menn- ingar brostinn vegna nálægðar við bókaverslun sem rekin er af jafn fjársterkum aðila og Arion banka. Jóhannes segir ekkert ákveðið um framtíð Laugavegar 18 en hann neitar því ekki að helst vildi hann sjá bókaverslun í rekstri þar eins og undanfarna áratugi. Hann sér hins vegar ekki fyrir sér að slíkt hugnist nokkrum manni vegna þess viðskiptaumhverfis sem nú er í sölu bóka og ritfanga í landinu. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins er verslun með bækur og ritföng í eigu bankanna að níu tíundu hlutum. - shá Mál og menning skellir í lás Einn af máttarstólpum íslenskrar menningar leggst af með gjaldþroti Bókabúðar Máls og menningar. Starfsmönnum, sem að jafnaði hafa verið 20 til 25, var tilkynnt um fall fyrirtækisins seint í gærkvöldi. ■ Mál og menning, útgáfufélag og bókaforlag var stofnað 1937. ■ Bókabúð Máls og menningar hóf starfsemi árið 1940 en hefur átt fastan samastað á Laugavegi 18 frá 1970. ■ Bókabúð Máls og menningar var í fyrra valin ein af tólf bestu bókabúðum heims af Berlingske Tidende. Í umfjöllun blaðsins sagði að búðin hefði menningarlegt gildi. ■ Húsið var oft nefnt Rúblan vegna tengsla við íslenska sósíalista og orð- róms um styrki frá Sovétríkjunum á tímum kalda stríðsins. Menningarfyrirbærið Mál og menning FÓLK Borunum vegna vatnsveitu í Perluhvammi á Álfsnesi lauk um það bil sem ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði í gær. Hjónin sem eiga lóðina og hyggjast reisa þar íbúðahús, Ingibjörg R. Þengilsdóttir og Jón Jóhann Jónsson, hafa átt í deilu við Orkuveitu Reykjavík- ur vegna kaldavatnslagnar sem fyrrverandi eigandi lagði á lóð- inni. Í október aftengdi Orku- veitan lögnina og í kjölfarið ákváðu hjónin að koma sér upp eigin vatnsveitu í stað þess að greiða fyrir úttekt á lögninni. Hjónin bjuggu í litlu húsi á lóðinni þar til lokað var fyrir vatnið. „Við höfum leigt hús- næði af verkalýðsfélaginu okkar undanfarnar vikur en nú getum við flutt aftur, fegin að þetta sé að baki,“ segir Ingi- björg og bætir við að þau hafi núna nægt vatn til allrar neyslu og almennrar notkunar. - mþl Hjón í deilu við Orkuveituna: Koma sér upp eigin vatnsveitu Akureyri vann FH aftur Heil umferð fór fram í N1- deild karla í gær. FH fór aðra fýluferð til Akureyrar. sport 30 SIGLINGAMÁL Goðafoss, flutningaskip Eimskipa- félagsins, strandaði á leið út úr höfninni í Fredriks- stad í Noregi á áttunda tímanum í gærkvöldi. Skip- ið tók niðri um hundrað metra frá landi, gat kom á skipið og olía lak í sjóinn. Veður var gott á strandstað og var það mat skip- stjóra í gærkvöldi að engin hætta stafaði að þrettán manna áhöfn skipsins sem allir eru Íslendingar. Þeir voru allir um borð en farið er eftir öryggisáætlun skipsins. Þegar Fréttablaðið fór í prentun á ellefta tímanum var skipið enn fast á skerinu. Nokkur halli var á Goðafossi á bakborða. Mat norskra fjölmiðla er að um 500 tonn af olíu séu í tönkum þar sem gat kom á skipið. Skipið tók niðri um hundrað metra frá landi en hafnleiðsögumaður hafði þá nýlega farið frá borði. Ólafur Hand, upplýsingafulltrúi Eimskips, sagði mat á skemmdum ómögulegt vegna myrkurs í gær- kvöldi. Þá var norska strandgæslan á leiðinni á stað- inn með girðingar og annan viðeigandi mengunar- varnarbúnað. Goðafoss er gámaskip, 165 metra langt og um sautján þúsund tonn að stærð. Fredriksstad er í Oslóarfirði. Strandstaðurinn er skammt frá Ytre Hvaler, sem er þjóðgarður og vinsæll útivistarstaður. - shá Flutningaskip Eimskipafélagsins sat fast á skeri í Oslóarfirði í gærkvöldi: Goðafoss strandaði við Noreg SMAKKAÐ Á VATNINU Bormennirnir Kjartan Björnsson og Guðni Davíðsson gátu leyft sér að slappa af að loknu góðu dags- verki í gær. Þeir boruðu eftir vatni á lóð íbúa á Álfsnesi og luku störfum með því að dreypa á fersku vatninu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.