Fréttablaðið - 18.02.2011, Blaðsíða 2
2 18. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR
Eiríkur, kallar þetta ekki bara
á ný lög?
„Það fer eftir því hvers konar lög
það eru.“
Eiríkur Tómasson lagaprófessor og fram-
kvæmdastjóri STEFs, segir tónlistarmenn
skorta lagaheimild til að banna flutning
verka sinna á einstökum miðlum. Jafnt
verði yfir alla að ganga. Jóhann G.
Jóhannsson tónlistarmaður hefur rætt
um að banna Bylgjunni að flytja lög sín.
HEILBRIGÐISMÁL Líf, styrktarfélag
Kvennadeildar Landspítalans,
stendur fyrir landssöfnun á Stöð
tvö í mars. Markmiðið er að safna
fé til endurbóta og nútímavæðingar
kvennadeildar Landspítalans.
Samkvæmt upplýsingum styrkt-
arfélagsins hefur rekstur Kvenna-
deildar, frá stofnun árið 1975, að
mestu leyti verið byggður á gjaf-
afé og engar endurbætur gerðar
á tímabilinu. Til dæmis hafi deild
22A, þar sem gamla vöggustofan er,
ekki verið í notkun um árabil vegna
þrengsla og óþæginda. Gangi söfn-
unin vel verður mögulegt að opna
deildina að nýju. - áe
Landsöfnun á Stöð 2 í mars:
Safna fé fyrir
kvennadeildina
ÁTAK KYNNT Landssöfnun fyrir Kvenna-
deild Landspítalans verður á Stöð 2 4.
mars næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BRETLAND, AP Breskir vísinda-
menn segjast hafa fundið þrjár
höfuðkúpur sem notaðar voru sem
drykkjarílát á ísöldinni. Þær eru
taldar vera 14.700 ára gamlar og
fundust í helli á Englandi.
Höfuðkúpurnar, tvær af full-
orðnum og ein af barni, eru taldar
þær elstu sem hafa fundist sem
hafa verið notaðar sem drykkjar-
ílát. Sú iðja að nýta höfuðkúpur
manna sem ílát er vel þekkt og
sýnir hve menn voru lagnir við að
meðhöndla mannslíkamann sér til
gagns. - áe
Merkur beinafundur í helli:
Drukkið úr
höfuðkúpum
SPURNING DAGSINS
IÐNAÐUR Fjörutíu þúsund tonna
kísilmálmverksmiðja rís í Helgu-
vík samkvæmt samningum sem
skrifað var undir í gær. Gengið var
frá fjárfestingarsamningum milli
stjórnvalda, Reykjanesbæjar og
Íslenska kísilfélagsins ehf.
Jafnframt hefur verið kláraður
orkusamningur við HS Orku og
Landsvirkjun, hafnarsamningur
við Reykjaneshöfn og viljayfirlýs-
ing um orkuflutning við Landsnet.
Íslenska kísilfélagið, sem er í
meirihlutaeigu bandaríska fyrir-
tækisins Globe Speciality Metals,
kaupir 35 megavött* af orku frá
Landsvirkjun og 30 megavött frá
HS Orku. Þar með er mætt 65 mega-
vatta jafnaðarorkuþörf verksmiðj-
unnar, en hún þarf 550 gígavött af
raforku til starfsemi sinnar.
Gert er ráð fyrir að verksmiðjan
verði tekin í notkun um mitt ár
2013, en framkvæmdir eiga að
hefjast snemmsumars í ár, að því
er fram kemur hjá Íslandsstofu. Í
byrjun þessa árs rann starfsemi
Fjárfestingastofu inn í Íslands-
stofu, sem er samstarfsvettvangur
stjórnvalda og atvinnulífs.
Reisa á verksmiðjuhús á 20 mán-
uðum og eru um 300 ársverk áætl-
uð á framkvæmdatíma. Gert er ráð
fyrir að um 90 manns fái vinnu við
verksmiðjuna; sérfræðingar, iðnað-
armenn og ófaglærðir. Heildarfjár-
festing í verkefninu er sögð nema
110 milljónum evra, eða sem svarar
rúmum 17 milljörðum króna.
Í samningunum er gert ráð fyrir
að Landsvirkjun sinni allri raforku-
þörf verksmiðjunnar frá ársbyrjun
2016, en í tilkynningu Landsvirkj-
unar er haft eftir Herði Arnarsyni
forstjóra að samningurinn marki
tímamót. Fyrirtækið hafi stefnt að
því að auka fjölbreytileika á meðal
orkukaupenda og samningurinn
beri því vitni. „Um er að ræða nýja
iðngrein, magn sem hæfir orku-
framboði nú um stundir og iðnað
sem greiðir hærra verð en fyrir
þekkist á íslenska markaðnum,“
segir hann og kveður mat Lands-
virkjunar að áhugaverða vaxtar-
möguleika sé að finna í tengdri
og afleiddri starfsemi, svo sem
hreinsun á kísilmálmi.
Globe Speciality Metals er einn
stærsti framleiðandi kísilmálms og
sérhæfðs kísilblendis í heimi og fer
með 85 prósenta hlut í Kísilfélag-
inu. Fimmtán prósent verða áfram
í eigu Tomahawk Development á
Íslandi, sem í fjögur ár hefur unnið
að verkefninu. Íslenska kísilfélag-
inu var veitt starfsleyfi árið 2009
á grundvelli umhverfismats frá
árinu áður.
olikr@frettabladid.is
Níutíu framtíðarstörf
í kísilveri í Helguvík
Snemmsumars á að hefjast handa við gerð verksmiðjuhúss 40 þúsund tonna
kísilmálmverksmiðju í Helguvík. Verksmiðjan á að taka til starfa um mitt ár
2013. Heildarfjárfesting nemur 17 milljörðum. Til verða um 90 framtíðarstörf.
Kísilverið í Helguvík er fyrsta stóra nýfjárfestingin á Íslandi eftir bankahrun,
ef undan er skilin stækkun álversins í Straumsvík. Þetta sagði Katrín Júlíus-
dóttir iðnaðarráðherra á blaðamannafundi um samninginn í gær. Verksmiðj-
an hefði því þýðingu í efnahagslegri endurreisn landsins, auk þess að vera
lóð á vogarskálar bætts atvinnulífs á Reykjanesi.
Í þeim efnum talaði Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, raunar um
„algjör umskipti“ og kvað Suðurnes eiga eftir að stíga hratt út úr því „ömur-
lega ástandi“ að vera láglaunasvæði með mest atvinnuleysi á landinu yfir í
að hafa vel launuð og örugg störf fyrir flesta.
Boðberi umskipta á Suðurnesjum
FRAMKVÆMDIR HEFJAST Í VOR Reisa á verksmiðjuhús á 20 mánuðum og eru um
300 ársverk áætluð á framkvæmdatímanum. Fjárfestingin nemur 17 milljörðum.
LÖGREGLUMÁL Tollverðir á Kefla-
víkurflugvelli hafa það sem af er
ári tekið fjóra flugfarþega með
fíkniefni innvortis. Tveir farþeg-
anna komu frá Kaupmannahöfn
og tveir frá London. Um er ræða
tvo Litháar, Dana og Íslending.
Fíkiniefnin sem var smyglað
voru 358 grömm af kókaíni,
145 grömm af amfetamíni, 149
grömm af MDMA-mulningi og 98
grömm af kókaínni.
Til samanburðar voru sex far-
þegar teknir allt árið 2010 með
fíkniefni innvortis. - jss
Tollverðir á vaktinni:
Fjórir teknir
með fíkniefni
innvortis
STJÓRNMÁL Samstöðuhóp-
urinn sem safnað hefur
undirskriftum gegn nýja
Icesave-samningnum
mun afhenda forsetan-
um um 38 þúsund undir-
skriftir klukkan ellefu í
dag en undirskriftirnar
voru keyrðar saman við
þjóðskrá í gær. Alls höfðu
rúmlega 40 þúsund skrif-
að undir í gærkvöldi.
Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, fékk Icesave-
frumvarpið, sem samþykkt
var á Alþingi á miðvikudag, til
staðfestingar síðdegis
sama dag. Ólafur íhug-
ar nú hvort hann eigi að
skrifa undir frumvarp-
ið eða hafna að staðfesta
það og vísa því þar með í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Frumvörp sem sam-
þykkt eru á Alþingi eru
yfirleitt staðfest af for-
seta örfáum dögum frá
því að þau berast. Ólaf-
ur Ragnar hefur þó tvívegis neit-
að að skrifa undir lög sem Alþingi
hefur samþykkt.
Árið 2004 neitaði Ólafur Ragnar
að skrifa undir fjölmiðlafrum-
varpið svokallaða en þá liðu
rúmir tveir mánuðir frá sam-
þykkt Alþingis þar til forseti til-
kynnti að hann hygðist ekki skrifa
undir þau. Fyrir rúmu ári neitaði
Ólafur Ragnar svo að skrifa undir
fyrri lög um Icesave en þá liðu sex
dagar frá samþykkt laganna.
Í báðum tilfellum fékk Ólafur
Ragnar afhenda undirskriftalista
gegn viðeigandi lögum. Í tilfelli
fjölmiðlafrumvarpsins söfnuðust
um 32 þúsund undirskriftir en í
tilfelli gamla Icesave-samkomu-
lagsins um 56 þúsund. - mþl
Ólafur Ragnar tekur á móti undirskriftum gegn Icesave-lögunum í dag:
Forseti Íslands undir feldi vegna Icesave
ÓLAFUR RAGNAR
GRÍMSSON
Persónuvernd hefur borist erindi
vegna undirskriftasöfnunarinnar á
vefsíðunni kjosum.is. Í erindinu er
gagnrýnt að einstaklingar geti ekki
gengið úr skugga um að kennitala
þeirra sé ekki á listanum og því
sé hætta á því að þar finnist nöfn
sem styðji ekki málstaðinn. Undir
erindið skrifar Arnar Guðmunds-
son sem nýlega lét af embætti
aðstoðarmanns iðnaðarráðherra.
Undirskriftir til Persónu-
verndar
BELGÍA, AP Belgar hafa verið án
ríkisstjórnar í 249 daga en í stað
þess að örvænta tekur fólk því létt
og fagnar heimsmeti í stjórnleysi.
Síðan í kosningunum 13. júní síð-
astliðinn hefur hver flokkurinn á
fætur öðrum skilað Alberti kon-
ungi umboði til stjórnarmyndunar.
Krafa Belga um heimsmet er
vafasöm þar sem stjórnarmynd-
un í Írak tók 249 daga ásamt 40
dögum sem fóru í að fá samþykki.
Það virtist þó skipta litlu máli í
hátíðahöldum gærdagsins.
Í Ghent afklæddust 249 manns í
tilefni þessara tímamóta var víða
um land boðið upp á þjóðarrétt
Belga, franskar kartöflur, sem
skolað var niður með belgískum
bjór. - kag
249 dagar án ríkisstjórnar:
Belgar fagna
heimsmeti
UMHVERFISMÁL Umhverfisráðuneyt-
ið og sveitarstjórn Skaftárhrepps
hafa náð samkomulagi um stækk-
un Vatnajökulsþjóðgarðs innan lög-
sögu sveitarfélagsins. Samkvæmt
samkomulaginu mun verða unnið
að friðlýsingu á Langasjó, hluta
Eldgjár og nágrennis eins og lagt
er til í Náttúruverndaráætlun
2009-2013.
Innan þessa svæðis eru náttúru-
minjar sem taldar eru hafa mikið
gildi á heimsvísu, auk hins háa úti-
vistar-, fræðslu- og vísindagildis
svæðisins.
Svandís Svavarsdóttir umhverfis-
ráðherra segir samkomulagið tíma-
mótaáfanga í náttúruvernd hér á
landi. Langisjór og nágrenni séu
einstakar náttúruperlur sem verði
vernduð fyrir komandi kynslóðir
samkvæmt þessari ákvörðun.
Skaftárhreppur og umhverfis-
ráðuneytið hafa jafnframt gert
með sér samkomulag um stýrihóp
vegna aðgerða gegn gróður- og
landeyðingu á áhrifasvæði Skaftár.
- shá
Samkomulag hefur náðst um stækkun Vatnajökulsþjóðgarðs:
Langisjór og Eldgjá friðlýst
FRIÐLÝST SVÆÐI Horft yfir Skaftá, Fögrufjöll og Langasjó til suðvesturs.
MYND/HELGA DAVIDS/UMHVERFISRÁÐUNEYTIÐ
M
YN
D
/VÍKU
R
FR
ÉTTIR
ENGIN STJÓRN Líkur eru á að endurtaka
þurfi kosningar vegna erfiðleika við
stjórnarmyndun. FRÉTTABLAÐIÐ/APF