Fréttablaðið - 18.02.2011, Side 4
4 18. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR
Ranglega var farið með heiti Apóteks-
ins í Spönginni í Grafarvogi á einum
stað í sérblaðinu Apótek, sem fylgdi
Fréttablaðinu 16. febrúar.
LEIÐRÉTTING
SAMFÉLAGSMÁL Úrræðum fyrir þau
börn sem verða vitni að heimilis-
ofbeldi er afar ábótavant og víða
er mikill skortur á verklagsregl-
um. Samráð og samstarf skortir
hjá þeim stofnunum sem taka að
sér slík mál. Þetta er álit Petrínu
Ásgeirsdóttur, framkvæmdastjóra
Barnaheilla.
Petrína segir að við vinnslu
skýrslu Barnaheilla, þar sem fram
kom að um 2.000 börn yrðu vitni
að heimilisofbeldi á ári hverju
hér á landi, hafi sér komið mest á
óvart hve lítið hafi verið talað við
börnin.
„Til dæmis er enginn barna-
starfsmaður í Kvennaathvarfinu
lengur,“ segir hún. „Það eru mikl-
ar væntingar til barnaverndar og
okkur finnst stórt bil á milli þeirra
væntinga og þess sem raunveru-
lega er verið að gera.“ Í skýrslunni
kemur einnig fram að hvorki skóla-
sálfræðingar sem rætt var við né
starfsfólk Barna- og unglingageð-
deildar Landspítalans (BUGL) hafi
fengið til sín mál þar sem veita hafi
þurft börnum sem hafi orðið vitni
að heimilisofbeldi, aðstoð eða þjón-
ustu. Enginn af þeim kannaðist við
að hafa fengið tilvísanir um mál
af þessum toga, hvorki frá félags-
þjónustu né starfsfólki skóla. Þau
börn sem send eru í skimun eða
nánari greiningu virðast almennt
ekki vera spurð hvort ofbeldi sé
gagnvart móður eða milli foreldra
á heimilinu. Þar sé sárlega þörf á
frekari úrræðum og úrbótum.
Barnaverndarstofa byrjaði á
síðasta ári með hópmeðferð fyrir
börn sem hafa orðið vitni að
heimilisofbeldi en búa ekki við
það lengur. Meðferðin er fyrir börn
sem eru eldri en fimm ára og skilja
og tala íslensku.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, segir úrræðið
mjög þýðingarmikið og hafa gefist
vel. Þrír hópar hafa fengið meðferð
og í allt eru komnar 34 umsóknir
til Barnaverndarstofu.
„Ég sé fram á það að þetta
verði fastur liður í okkar þjón-
ustu og vona að hún geti eflst í
framtíðinni,“ segir Bragi. „Á hinn
bóginn má segja að hún leysi ekki
vandann. Það sem þarf til viðbót-
ar þessu er bráðahjálp strax í kjöl-
far atvika þar sem heimilisofbeldi
á sér stað.“ sunna@frettabladid.is
Sjaldgæft að sérfræðingar
tali við börnin um ofbeldi
Skólasálfræðingar og starfsfólk BUGL virðast aldrei spyrja börn hvort þau upplifi heimilisofbeldi. Skortur
er á samráði milli stofnana og verklagsreglum er ábótavant, samkvæmt framkvæmdastjóra Barnaheilla.
VIÐSKIPTI „Kjarni málsins er að
viðskiptavinir fá sínar kröfur
greiddar að fullu á kostnað ann-
arra lánardrottna,“ segir Friðjón
Örn Friðjónsson, formaður bráða-
birgðastjórnar Avant.
Héraðsdómur Reykjavíkur
hefur staðfest nauðasamning
Avant og felur hann í sér að
Landsbankinn tekur félagið yfir.
Nánast einu eignir Avant eru
skuldabréf, auk bíla og tækja.
Áætlað virði er tólf milljarðar
króna. Hefði félagið farið í slita-
meðferð hefðu viðskiptavinir
nánast ekkert fengið upp í kröfur.
Gert er ráð fyrir að Lands-
bankinn greiði viðskiptavinum
sem kröfu eiga á Avant eigi síðar
en 15. mars næstkomandi. - jab
Landsbankinn eignast Avant:
Viðskiptavinir
fá upp í kröfur
Barnaverndarstofa mun setja á fót tilraunaverkefni í ljósi niðurstaðna
könnunar um viðbrögð barnaverndaryfirvalda við heimilisofbeldi.
Verkefnið á að standa yfir í eitt ár og verður leitað eftir frekara samstarfi
barnaverndaryfirvalda og lögreglu. Markmiðið er að leggja mat á líðan,
hugsanir og óskir barna með það fyrir augum að veita áfallahjálp og
stuðning strax í kjölfar heimilisofbeldis.
Sérhæfður starfsmaður verður ráðinn á bakvakt eða til lögreglu og fer
með í útköll á heimili þar sem ofbeldi á sér stað og börn eru.
Í skýrslu um heimilisofbeldi sem unnin var á vegum lögreglunnar
kemur fram að í þrettán prósentum tilvika felst íhlutun lögreglu í því að
aðstoða þolanda heimilisofbeldis á slysstað. Í þremur prósentum tilvika
er þolanda vísað á Kvennaathvarfið en einungis í einu prósenti tilvika er
barnaverndarnefnd kölluð á vettvang. Í könnun Freydísar J. Freysteins-
dóttur frá árinu 2004 á tilkynningum um heimilisofbeldi var einungis
veitt þjónusta í þriðjungi mála og í einungis þremur tilvikum beindist
slíkur stuðningur beint að barninu.
Leita eftir frekari samstarfi við lögreglu
EVRÓPUMÁL Öll aðildarríki EES-
samningsins þurfa að standa við
skuldbindingar sínar og það er
engin spurning að Icesave-deiluna
þarf að leysa, segir sendiherra Ung-
verjalands gagnvart Íslandi. Ung-
verjar fara með formennsku í ESB
um þessar mundir.
„Eftirlitsstofnunin hefur sagt
að einhvers konar tryggingu þurfi
vegna innistæðnanna og á þeim
grundvelli hafa viðræður þessara
þriggja ríkja farið fram,“ segir
sendiherrann, Lajos Bozi.
„Icesave hefur vakið upp ýmsar
tilfinningar en við vonum að þessu
ljúki með skynsamlegri lausn, að
þessi samningur sé viðunandi bæði
þingi og forsetanum og vitanlega
almenningi. Ég held að það yrði til
hagsbóta að leysa þetta mikilvæga
mál á viðeigandi hátt,“ segir Bozi.
Sjálfur hefur hann fylgst með
Icesave-deilunni frá því hún hófst
og skrifað skýrslur um hana jafn-
óðum til ungverskra yfirvalda, frá
því að fyrst náðust samningar. Þótt
lyktir málsins séu ekki beintengdar
aðildarviðræðum Íslands og ESB,
segir Bozi, er vonast til að góð niður-
staða í því geri Íslendinga jákvæð-
ari gagnvart inngöngu í ESB. - kóþ
Sendiherra forsætisríkis Evrópusambandsins bindur vonir við Bessastaði:
Icesave-deiluna þarf að leysa
Forsvarsmenn hinna ýmsu stofnana sátu fyrir
svörum í lok málþingsins. Þeir höfðu meðal
annars þetta að segja um skýrslu Barnaheilla og
þingið í heild:
Það sem sló mig mest er
hve lítið er rætt við börnin
sjálf. Ég hafði ekki gert mér grein
fyrir því að í öllum þessum kerf-
um, þar sem börn verða vitni að
svona hlutum eins og ofbeldi, að
væri ekki meira talað við þau um
þessi mál.“
AUÐUR STEFÁNSDÓTTIR,
FYRIR FRÆÐSLUSTJÓRANN Í REYKJAVÍK
Það er ljóst að við verðum
að bæta þessi mál og
taka þau til endurskoðunar.“
ELLÝ ALDA ÞORSTEINSDÓTTIR,
SKRIFSTOFUSTJÓRI VELFERÐARSVIÐS
REYKJAVÍKUR
Ég tek þessar upplýsingar
sem áskorun til okkar
allra, sem erum fulltrúar þeirra
sem vinna með börn, að tala við
börnin – ekki bara um þau.“
HALLDÓRA DRÖFN GUNNARSDÓTTIR,
FRAMKVÆMDASTJÓRI BARNAVERNDAR
REYKJAVÍKUR
Orðrétt af málþinginu
FULLTRÚAR BARNANNA Forsvarsmenn barnastofnana landsins sátu málþing
Barnaheilla í gær og ræddu niðurstöður í nýrri skýrslu samtakanna, Börn sem
eru vitni að heimilisofbeldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LAJOS BOZI Sendiherrann er spenntur
fyrir hugsanlegri aðild Íslands að ESB og
telur að landið geti kennt ESB margt í
jarðhitamálum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BÍLAR Viðskiptavinir Avant sem eiga
milljón króna kröfu á félagið fá allt sitt.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
10°
1°
-1°
7°
6°
-1°
-1°
19°
9°
15°
16°
27°
-8°
11°
9°
-6°Á MORGUN
10-18 m/s S- og SV-til,
annars mun hægari.
SUNNUDAGUR
3-8 m/s.
2
1
-1
0
0
4
5
6
3
-2
2
8
7
18
9
11
5
6
4
7
6
8
5
5
3
23 2
5
6
5
3
MISSKIPT UM
HELGINA Það lít-
ur út fyrir frábært
veður norðan til á
landinu um helgina
en hins vegar verð-
ur hvasst um sunn-
an- og suðvestan-
vert landið og
rigning á morgun.
Á sunnudag verður
hann hægur víðast
hvar og nokkuð
milt í veðri.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Hótaði líkamsmeiðingum
Karlmaður á þrítugsaldri hefur
verið ákærður fyrir að hóta tveimur
lögreglumönnum því að koma heim
til þeirra og ganga í skrokk á þeim.
Hótanirnar áttu sér stað á lögreglu-
stöðinni á Egilsstöðum.
DÓMSTÓLAR
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
dæmt karlmann í 20 mánaða
fangelsi fyrir að stinga mann í
kviðinn með hnífi. Hann var jafn-
framt dæmdur til að greiða fórn-
arlambinu, starfsmanni veitinga-
húss á Akureyri, rúmlega 400
hundruð þúsund krónur í bætur.
Lögreglan fann hnífamann-
inn þar sem hann hékk á hvolfi
á járngrindverki skammt frá
skemmtistaðnum og var flæktur
með fæturna í efsta hluta þess.
Maðurinn var einnig dæmdur
fyrir fleiri brot. - jss
Tuttugu mánaða fangelsi:
Hnífamaður
hékk á girðingu
GENGIÐ 17.02.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
215,6894
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
117,02 117,58
188,9 189,82
158,84 159,72
21,302 21,426
20,386 20,506
18,165 18,271
1,3993 1,4075
182,26 183,34
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is
að senda t
ilnefninga
r
er til miðn
ættis þann
Frestur til
21. febrúa
r
SAMFÉLAGSVERÐLAUN
FRÉTTABLAÐSINS
visir.is/samfelagsverdlaun