Fréttablaðið - 18.02.2011, Page 8
8 18. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR
1. Hversu margir þingmenn
greiddu atkvæði með nýjum
Icesave-samningum á þingi?
2. Hvaða lið mætast í bikarúr-
slitaleik kvenna í handbolta?
3. Hvaða djasstónlistarmaður
hlaut Grammy-verðlaun sem
besti nýliðinn?
SVÖR:
1. 44 2. Valur og Fram 3. Esperanza
Spalding
LAUGAVEGI 11 | SÍMI: 517 8088 WWW.CINTAMANI.IS
Ásdís Dögg gægjist upp úr sprungsveim Fjallsjökulls í
Glacier Explorer ævintýraferðinni með Glacier Guides
W
W
W
.S
TO
FA
N
.IS
TÍMARNIR BREYTAST OG BÚÐIN MEÐ
10 - 25 % AFSLÁTTUR
DAGANA 18.FEB - 26.FEB
ALLAR DÚNÚLPUR Á 25 % AFSLÆTTI
VERSLUNIN STÆKKAR OG VERÐUR
LOKUÐ FRÁ 28.FEB - 11.MARS
MENNTUN Borgarstjóri lagði á fundi
borgarráðs í gær fram tillögu Besta
flokksins og Samfylkingarinnar
um að auka fjárheimildir mennta-
sviðs á haustönn 2011 um 200 millj-
ónir króna. Tillagan var samþykkt
og vísað til borgarstjórnar. Í til-
lögunni er lagt til að 135 milljón-
um króna verði bætt við úthlutað
kennslumagn, 20 milljónum verði
bætt við vegna gæslu nemenda í
frímínútum og í matartíma og 45
milljónum verði bætt við úthlutað
fjármagn til forfallakennslu nem-
enda. Útgjöldunum á að hluta að
mæta með hækkun útsvars í 14,48
prósent, frá og með 1. júlí næstkom-
andi. Gert er ráð fyrir að hækkunin
skili borginni 115 milljónum króna
í auknar tekjur.
Forsvarsmenn grunnskóla
kynntu í janúar fyrirhugaðan
niður skurð hjá menntaráði og hafa
skólastjórnendur í þessum mánuði
unnið að nánari útfærslu niður-
skurðarins, en úr honum verður
væntanlega dregið í samræmi við
auknar fjárheimildir.
„Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir
árið 2011 var sá fyrirvari gerð-
ur á fjárhagsáætlun Menntasviðs
að horft yrði til viðræðna sveitar-
félaganna og menntamálaráðherra
vegna tímabundinna breytinga á
grunnskólalögum til að gera sveit-
arfélögum betur kleift að standa
vörð um gæði kennslunnar. Ekki
er útlit fyrir að sú niðurstaða náist.
Strax í byrjun árs voru rekstrar-
áætlanir skóla grannskoðaðar og
í ljós kom að uppsafnaður vandi
vegna hagræðingar síðastliðinna
ára, sérstaklega í gæslu og forföll-
um, var ekki ásættanlegur,“ segir í
greinargerð með tillögunni.
Félög foreldra grunnskólabarna
í borginni hafa mótmælt fyrirhug-
uðum niðurskurði harðlega síðustu
daga og vikur. Í gær var boðað til
sérstaks samstöðufundar og mót-
mæla við Ráðhús Reykjavíkur, en
mótmælunum lauk með opnum
fundi með Jóni Gnarr borgarstjóra
og Oddnýju Sturludóttur, formanni
menntaráðs borgarinnar.
Fulltrúar foreldra hafa gagnrýnt
að ekki liggi fyrir með hvaða hætti
eigi að hagræða í skóla og frí-
stundastarfi barna í Reykjavík og
benda á að skólastjórnendur hafi
engar upplýsingar fengið um hvað
aukin fjárveiting þýði í raun.
Töluverður hiti hefur verið í
mótmælum foreldra. Þannig hefur
Guðrún Valdimarsdóttir, formaður
SAMFOK, sagt erfitt að skylmast
um tölur við fræðslustjóra eða aðra
fulltrúa borgarinnar þegar þeir
velji að ræða við foreldra „í þoku
blekkingar og leyndarhjúps“.
Ragnar Þorsteinsson fræðslu-
stjóri hefur hins vegar sagt að
misskilnings hafi gætt í tölum
sem slegið hafi verið fram um 800
milljóna króna niðurskurð í rekstri
grunnskólanna. Hann bendir á
að í fjárhagsáætlun borgarinnar
fyrir þetta ár hafi verið gert ráð
fyrir 290 milljóna króna niður-
skurði í grunnskólunum. Með auk-
inni fjárveitingu standi nú eftir 92
milljóna króna niðurskurður sem
skólastjórnendur fáist við með
hagræðingu. olikr@frettabladid.is
Skólarnir fá 200 milljónir
Samþykkt var á fundi borgarráðs í gær að auka fjárheimildir menntasviðs Reykjavíkur um 200 milljónir
króna. Fulltrúar foreldra funduðu í gær með borgarstjóra og formanni menntasviðs. Tekist er á um tölur.
Borgarstjórn samþykkti í gær og vísaði til borgarstjórnar hækkun útsvars
borgarbúa úr 14,4 prósentum í 14,48 prósent. Tekjur borgarinnar vegna
þessa eiga að aukast um 115 milljónir króna og koma í stað niðurskurðar í
grunnskólum borgarinnar. Sóley Tómasdóttir, fulltrúi Vinstri grænna í borg-
arráði, benti í gær á að á undanförnum tveimur árum hefði mátt koma í veg
fyrir niðurskurð upp á nærri tvo milljarða króna, hefðu útsvarsheimildir verið
fullnýttar. „Það er því fagnaðarefni að meirihluti Besta flokks og Samfylking-
ar skuli loks hafa samþykkt að fullnýta útsvarsheimild borgarinnar,“ sagði
hún en kvað um leið „afar vandræðalegt“ fyrir meirihlutann í borginni að
þurfa að breyta fjárhagsáætlun með svo umfangsmiklum hætti rétt rúmum
mánuði eftir að hún hefði tekið gildi.
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins létu bóka að borgarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins væru „algjörlega andvígir“ hækkun útsvars á borgarbúa
og kváðu þá andstöðu eiga eftir að koma skýrt fram þegar borgarstjórn tæki
málið til afgreiðslu.
Vandræðaleg breyting fjárhagsáætlunar
ATVINNUMÁL Vilmundur Jósefsson
hefur ákveðið að gefa áfram kost
á sér sem formaður Samtaka
atvinnulífsins (SA). Formaður
verður kosinn með rafrænum
hætti meðal
aðildarfyrir-
tækja í aðdrag-
anda aðalfund-
ar samtakanna
sem fram fer 7.
apríl.
Vilmundur,
sem er við-
skiptafræðing-
ur að mennt,
hefur verið for-
maður SA frá árinu 2009, en hann
var áður varaformaður í þrjú ár.
Hann hefur setið í stjórn SA um
árabil. Vilmundur var formaður
Samtaka iðnaðarins árin 2000 til
2006 og var stjórnarmaður í sam-
tökunum frá 1994 til 2000. - sh
Kosið um formann SA:
Vill sitja áfram
VILMUNDUR
JÓSEFSSON
SAMSTÖÐUFUNDUR Nokkur hundruð manns komu saman við ráðhúsið í gær til
þess að sýna samstöðu gegn fyrirhuguðum niðurskurði í skólakerfinu. Efnt var til
opins fundar um málið í Ráðhúsinu í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VEISTU SVARIÐ?