Fréttablaðið - 18.02.2011, Side 10
18. febrúar 2011 FÖSTUDAGUR
Opnunartími:
Mán-Fös. kl: 12-18
Laug-Sun. kl: 12-16
Fossháls 5-7 l 110 Reykjavík
Sími 551 5600 l utilegumadurinn.is
Sýnum um helgina Eximo 2011 hjólhýsi
Létt og meðfærileg hús, •
auðveld í drætti.
Mjög gott verð.•
Sterklega smíðuð hús.•
Falleg hönnun.•
91 Lítra ísskápur.•
Gasmiðstöð m/ Ultra heat •
(rafm. hitun)
Litaðar rúður•
12 og 220 Volta rafkerfi.•
Verð frá: 2.398.000kr
Frábær
kaup
E
xi
m
o
3
70
Verð: 2.998.000kr Verð: 2.998.000kr
E
xi
m
o
5
20
L
E
xi
m
o
5
20
B
Verð: 2.798.000kr
E
xi
m
o
4
60
LÍBÍA, AP Þvert ofan í blátt bann við
mótmælum sem Moammar Gaddafí
Líbíuleiðtogi hefur sett héldu hundr-
uð mótmælenda út á götur í fjór-
um borgum landsins í gær og á
miðvikudag.
Her landsins tók harkalega á
mótmælunum og stuðningsmenn
Gaddafí héldu einnig út á götur til
að slást við mótmælendur. Tugir
manna eru sagðir hafa látið lífið í
þeim átökum, bæði á miðvikudags-
kvöld og í gær.
Gaddafí hefur stjórnað Líbíu með
harðri hendi í meira en fjóra áratugi
og hefur heljartök á fjölmiðlum og
allri stjórnmálaumræðu í landinu.
„Í dag rufu Líbíubúar múr ótt-
ans. Nú er ný dögun,“ sagði Faiz
Jibril, útlægur leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar.
Í Barein sendu stjórnvöld öflugt
herlið með fjölda skriðdreka til þess
að rýma Perlutorgið í höfuðborginni
Manama í gærmorgun. Fyrir dögun
hafði lögregla beitt kylfum og tára-
gasi á mótmælendur, sem sumir
hverjir voru sofandi á torginu. Að
minnsta kosti fjórir létu lífið.
Stjórnvöld höfðu haldið aftur af
sér dögum saman og látið mótmæl-
endur óáreitta síðan í byrjun vik-
unnar, þegar átök kostuðu þrjá menn
lífið. Við það tvíefldust mótmælend-
ur, sem krefjast þess að konung-
ur og valdastétt landsins hætti að
mismuna fólki eftir trúarbrögðum
og gefi möguleika á lýðræðislegri
vinnubrögðum.
Í Sana, höfuðborg Jemens, kom
einnig til átaka í gær milli mótmæl-
enda og stuðningsmanna stjórn-
arinnar, sem sveifluðu kylfum og
hnífum. Lögreglan reyndi að stilla
til friðar en beitti sér aðallega gegn
stjórnarandstæðingum. Vitni sögðu
bifreiðir merkta borginni hafa verið
notaðar til þess að flytja bæði kylf-
ur og grjót til stuðningsmanna
stjórnarinnar.
Mótmælin í Sana hafa staðið yfir
í viku og krefjast mótmælendur
þess að Ali Abdullah Saleh forseti
láti af embætti eftir 32 ára valda-
tíð. Óánægjan er sögð stafa bæði af
mikilli fátækt í landinu og spillingu
stjórnvalda.
Mótmælendur létu einnig í sér
heyra í Jórdaníu í gær og jafnvel í
Írak brutust út mótmæli í gær í borg-
inni Basra, þar sem hundruð manna
kröfðust afsagnar ríkisstjórans.
gudsteinn@frettabladid.is
Mannskæð átök í
kjölfar mótmæla
Ólgan í arabaríkjum Norður-Afríku og Mið-Austurlanda virðist óstöðvandi.
Þúsundir manna héldu út á götur í Líbíu, Barein og Jemen í gær og lentu í átök-
um við her, lögreglu eða stuðningsmenn stjórnvalda. Tugir létu lífið í Líbíu.
RISU UPP GEGN GADDAFÍ Hundruð manna héldu út á götur í fjórum borgum Líbíu í
gær. NORDICPHOTOS/AFP
Þú færð Fréttablaðið á kostnaðarverði
á 120 stöðum um land allt.
Nánari upplýsingar á
visir.is/dreifing