Fréttablaðið - 18.02.2011, Síða 20

Fréttablaðið - 18.02.2011, Síða 20
 18. 2 Makkarónur frá Líbanon 30 stk. 300 g möndlur, malaðar í matvinnsluvél 2 egg 100 g sykur 1 tsk. lyftiduft 70 g hveiti 100 g flórsykur til að velta upp úr Hitið ofn í 180°C (170°C á blástur). Blandið möndlumjöli, eggjum, sykri, lyftidufti og hveiti saman í skál og hrærið saman. Setjið bökunarpappír á tvær ofnplötur. Mótið kúlur á stærð við litlar valhnetur, veltið þeim upp úr flórsykri og raðið á ofnplöturnar. Best að móta allar kökur fyrst og velta svo, því puttarnir verða annars svo klístr- aðir. Bakið kökur í 15-20 mínútur, þar til þær eru ljósbrúnar. Geymast vel. Þessar kökur eru ekki mjög sætar og því gott að grípa í með tei á góðri stund. Möndlur og sesamfræ eru holl og góð, full af vítamínum og góðum olíum. Myntute fyrir 4 2 msk. sykur stór lúka af myntulaufum 1 msk. græn kínversk telauf, eða 2 tepokar af grænu kínversku tei Sjóðið lítra af vatni, og látið vatnið standa í eina mínútu. Setjið kínversk telauf, sykur og myntulauf í tepott. Hellið heitu vatni í ketilinn og látið trekkja í þrjár mínútur. Setjið myntu- kvist í glös eða bolla og hellið heitu te í glösin. Myntute er hollt og gott. Í löndum við botn Miðjarðarhafs er alltaf verið að drekka díssætt myntute. Myntan róar magann og er hressandi. Það má laga svona te án þess að nota græna teið. Framhald af forsíðu Fjórir nemendur í íþróttafræði við Íþróttaháskólann á Laugarvatni sýna glímu á Háskólatorgi klukkan 13.30 á morgun og Sigurbjörn Árni Arngrímsson, formaður náms- brautar í íþrótta og heilsufræði og fyrrverandi íþróttafréttamaður, lýsir glímutökunum fyrir áhorf- endum á sinn einstæða hátt. „Upphaflega hugmyndin var sú að fá sviðaforseta Háskólans til að keppa,“ segir Sigurbjörn. „Það hefði nú verið skemmtilegt að sjá Sigurð Guðmundsson, fyrr- verandi landlækni, glíma við Ólaf Harðarson stjórnmálafræðing. En einhvers staðar í ferlinu var þessi hugmynd slegin af. Í staðinn munu fjórir nemendur af íþrótta- sviði Íþróttaháskólans á Laugar- vatni sýna glímu á Háskólatorginu. Tveir strákar og tvær stelpur.“ Kennir Sigurbjörn íþróttafræði- nemum glímuna sjálfur? „Nei, ekki geri ég það nú, það er Kjartan Lár- usson sem sér um það. En ég hefði alveg getað það, glímdi töluvert á yngri árum og var í unglingalands- liðinu í glímu, en hef lítið gert af því hin síðari ár.“ Sigurbjörn er þekktur fyrir hressilegar íþróttalýsingar og flestum er í fersku minni bein lýs- ing hans á fæðingu sonar síns í sjónvarpi í fyrra. Mega áhorfendur glímunnar eiga von á lýsingu í stíl við það? „Það gæti orðið þannig, ef þetta verður spennandi, það kemur bara í ljós. Við byrjum á að sýna brögðin og svo verður létt glíma og lýsingin fer náttúrulega alfarið eftir þeirri spennu sem mynd- ast í henni. Ef það sem ég er að lýsa er spennandi þá kemur það í gegn hjá mér en annars er ég nú bara rólegur,“ segir Sigurbjörn. Glímusýningin er hluti af dagskrá Háskóla Íslands í til- efni af Háskóladeg- inum, en opið verð- ur frá 11 til 16 og fjölbreytt dagskrá í boði. Gestir geta kynnt sér náms- framboð háskólans, starfsemi og þjónustu, skoðað rannsókna- stofur, tæki, búnað og húsa- kynni. Á staðnum verða vís- indamenn og nemendur úr öllum deildum skólans sem svara spurningum um flest milli himins og jarðar. Nánari upplýsingar um dagskrá Háskóla- dagsins er að finna á slóðinni haskoladag- urinn.is. fridrikab@frettabladid.is Sé keppnin spennandi verður lýsingin spennandi Glíma í beinni lýsingu er meðal þess sem í boði er á Háskólatorgi á Háskóladegi á morgun. Sigurbjörn Árni Arngrímsson, fyrrum íþróttafréttamaður, mun lýsa glímunni eins og honum einum er lagið. Tvær stúlkur og tveir strákar sýna gestum Háskólatorgs glímu á morgun. Sigurbjörn Árni Arngrímsson Háskóli Íslands óskar eftir gömlum ljósmyndum úr starfi skólans í tilefni af aldarafmæli Háskólans, sérstaklega frá 1911 til 1940. Tekið er við myndum á Opnu húsi á morgun. Myndirnar eru dýrmætur vitnisburður um starfsemi og þróun skólans á liðinni öld.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.