Fréttablaðið - 18.02.2011, Page 22
2 föstudagur 18. febrúar
núna
✽ ekki missa af
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Umsjón Sara McMahon Forsíðumynd Arnþór Birkisson Útlitshönn-
un Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is og Sigríður Dagný Sigur-
björnsdóttir sigridurdagny@365.is Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
blogg vikunnar
VEL KLÆDD Söngkonan Courtney
Love leit afskaplega vel út er hún
sótti Elle Style Awards-hátíðina í
gólfsíðum kjól frá Helmut Lang.
Ungbloggari
Það er hin fjórtán ára gamla Fallie
sem heldur úti bloggsíðunni www.
fallie.blogspot.com. Stúlkan er
eistnesk og hefur mik-
inn áhuga á tísku og
öllu sem henni fylgir.
Þrátt fyrir ungan aldur
er stúlkan afskaplega
smekklega klædd
og minnir einna
helst á unga Alice
Delal.
Heimamenn
Www.thelocals.dk er haldið úti af
fyrrverandi ljósmyndara götutísku-
síðunnar Copenhagenstreetstyle.
dk, Søren Jepsen. Fyrri síðan var
lögð niður skömmu eftir jól, þar
sem aðstandendur hennar
höfðu ákveðið að snúa
sér að öðrum verk-
efnum. The Locals er
eitt af þeim verkefnum
og þar birtir Jepsen
myndir af íbúum
þeirra bæja og
borga sem
hann heim-
sækir.
S
tuttmyndin Rabbit Hole,
í leikstjórn hönnuðarins
Munda vonda, var sýnd
á kvikmyndahátíð í Rot-
terdam í síðustu viku. Myndin var
sýnd í svonefndum Official Select-
ion flokki og var uppselt á allar
sýningar hennar.
Að sögn Hrefnu Hagalín, ann-
ars framleiðanda myndarinnar,
höfðu aðstandendur hátíðarinn-
ar séð umfjöllun um myndina á
Netinu og í kjölfarið boðið henni
á hátíðina. Myndin keppti í undir-
flokki Official Selection sem nefn-
ist Signals: Out Of Fashion og fékk
myndin mjög góðar undirtekt-
ir. Hrefna segir það mikinn heið-
ur að hafa fengið boð á hátíðina
og að þetta hafi einnig verið góð
kynning fyrir myndina. „Það var
verið að fagna fjörutíu ára afmæli
hátíðarinnar í ár þannig að þetta
var sérstaklega mikill heiður. Þetta
kemur líka myndum manns frek-
ar á framfæri auk þess sem maður
kynnist fullt af fólki og myndar
sambönd sem gætu nýst manni í
framtíðinni,“ útskýrir Hrefna sem
rekur framleiðslufyrirtækið Krunk
Productions ásamt Kristínu Báru
Haraldsdóttur.
Hrefna segir dvölina í Rotter-
dam hafa verið góða og að hátíð-
in hafi verið sérstaklega áhuga-
verð. „Hátíðin var frábær og dag-
skráin mjög áhugaverð. Í kjölfarið
fengum við svo boð á kvikmynda-
hátíð í New York sem fer fram í
byrjun sumars. Við erum þó ekki
búnar að staðfesta komu okkar en
það væri rosalega gaman að geta
verið viðstaddur þegar myndin
verður sýnd, en þetta fer allt eftir
peningum og tíma,“ segir hún að
lokum. - sm
Rabbit Hole sýnd á kvikmyndahátíð í Rotterdam:
Seldist upp á
sýningarnar
Danski hönnuðurinn Stine Goya hefur hannað sér-
staka fatalínu fyrir sænsku
tískuverslunina Weekday og
er hún væntanleg í sölu um
miðjan apríl.
Goya lýsir línunni sem
andstæðukenndri og
segir mýkt og ákveðni
mætast í henni. „Mýkt
efnisins er mætt með
flíkum sem lýsa sjálfs-
öryggi og ákveðni. Smá-
atriði eins og rennilás-
ar, mjúkir axlapúðar
og litlir vasar gera flík-
urnar skemmtilegri en
ella,“ sagði hönnuður-
inn um línuna. Goya er
einn vinsælasti hönn-
uður Dana um þessar
mundir og því er víst
að línan fyrir Weekday
mun rjúka út. - sm
Stine Goya og Weekday í eina sæng:
Mýkt og ákveðni
Eftirvænting Stine Goya
er einn vinsælasti hönnuð-
ur Dana um þessar mund-
ir. Línan sem hún hann-
aði fyrir Weekday kemur í
verslanir í apríl.
NORDICPHOTOS/GETTY
SÆNSK INNRÁS Í KRON KRON Tískuverslunin Kron Kron hefur tekið inn tvö ný
fatamerki, sænska tískurisann Acne og hið franska See by Chloé, sem er undirmerki
tískuhússins Chloé. Merkin eru bæði feikivinsæl og flott og eiga tvímælalaust eftir að
falla í kramið hjá tískuunnendum á Íslandi.
Ánægð Hrefna Hagalín,
annar framleiðenda Rabbit
Hole, segir það heiður að
hafa fengið boð á hátíðina.
Myndin er í leikstjórn hönn-
uðarins Munda vonda.
FR
É
TT
A
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
Hönnunarverslunin Kiosk hefur fært
sig um set og er nú á Laugavegi 65.
Verslunin verður með sama sniði og
áður og því verður áfram hægt að
kaupa fyrsta flokks íslenska hönnun á
staðnum. Meðal annars mun hönnuð-
urinn Ásgrímur Már Friðriksson kynna
sína fyrstu línu undir merkinu Asi of
Iceland.
Kiosk flutt
um set
Kiosk Níu ungir og efnilegir hönnuðir reka saman Kiosk. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR BIRKISSON
e ú