Fréttablaðið - 18.02.2011, Síða 26

Fréttablaðið - 18.02.2011, Síða 26
6 föstudagur 18. febrúar Töfratalan É g er oft spurð út í kynjamun í tengslum við kynfræðslu og þá hvort strákar spyrji annarra spurninga en stelpur. Ég þarf yfirleitt að hugsa mig töluvert um því fyrir mér þá eru það einna helst kynfærin sem aðgreina kynin en ekki kynlífsathafnir. Það væri þó lygi að segja að kynin komi eins að borði þegar viðkemur kynfræðslu. Fljótt á litið virðast konur vera tilbúnari til að ræða flesta króka og kima kynlífs á fróðleiksfúsan en hispurslausan hátt. Karlmenn virðast hins vegar oft á tíðum vera feimnari og gera sér upp algert áhugaleysi um efnið. Hvort það sé raunin get ég ekki sagt til um. Þó er það mín reynsla að spurningar karlmanna snúi helst að mér og minni persónulegu kynlífs- reynslu, og þá sérstaklega í tengslum við framandi stellingar og fjölda bólfélaga. Ég gæti brugðist ókvæða við og talið þetta sönn- un þess að menn séu svín sem kunna sig ekki, en ég held að spurningin risti dýpra en svo. Ég tel því að spurningin sé til þess falin að kanna hvort ég sé traustsins verð og ef ég svara rétt þá geti karlmenn spurt að því sem raunverulega brennur á þeim. Þrátt fyrir þessa túlkun mína þá breytir það því ekki að á hverjum einasta degi heyrist spurningin: hversu mörgum hefur þú stundað kynlíf með? Persónulega tel ég þetta málinu algerlega óviðkomandi og ein dónalegasta spurning sem hægt er að spyrja. Fjöldi rekkjunauta er leikur að tölum sem segir ekki til um kynlífsathafnir viðkomandi, hvorki í fortíð, nútíð né framtíð. Einn bólfélagi getur þýtt annaðhvort fjöldinn allur af samförum eða bara eitt skipti. Ég læt þig svo um að dæma hvort sé meira lýsandi þó tala einstaklinga sé sú sama. Þetta er sígilda sagan um madonnuna og hóruna. Karlar eiga að sækja sér karlmennsku og kynlífsreynslu í sköpum sem flestra kvenna á meðan þessar sömu dömur eiga að læsa beltinu og bíða eftir þeim eina rétta. Þessi tvískinnungur gengur ekki upp og er því alger rökleysa. Einstaklingum væri nær að ræða hvað þeir væru tilbúnir til að prufa frekar en með hversu mörgum þeir hafa prufað það. Við þurfum að hætta að spyrja að hlutum sem engu máli skipta. Til að hnýta endanlegan hnút á umræðuna þá er það mýta að píkan slappist og verði víð eftir ákveðið magn samfara, rétt eins og typpi minnka ekki né stækka því oftar sem þau eru strokkuð. Verum smart og sýnum hvort öðru virðingu í samræðum og samförum. Á RÚMSTOKKNUM Sigga Dögg kynfræðingur Fjöldi rekkju- nauta er leik- ur að tölum sem segir ekki til um kynlífs- athafnir við- komandi, hvorki í for- tíð, nútíð né framtíð.“ Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni. Netfangið er kynlif@frettabladid.is ALDUR: 29 ára STARF: Verkefnastjóri HVAÐ ERTU BÚIN AÐ STUNDA AFRÓ LENGI?: Ég byrjaði að stunda afró á mínum fyrstu árum í framhaldsskóla en hef tekið mér góðar pásur á milli þegar ég hef verið búsett erlendis. AF HVERJU BYRJAÐIR ÞÚ?: Ég féll fyrir afró þegar það kom hópur úr Kramhúsinu að sýna í gaggó. Ég var að leita mér að góðri hreyfingu og vildi prófa eitthvað nýtt. Lifandi tónlist í fjölmenningarlegu umhverfi heillaði mig. HVAÐ ER ÞAÐ BESTA VIÐ AFRÓ?: Samsetning af kraftmiklum hreyfingum, dansi, lifandi tónlist og góðum félagsskap er galdurinn. ER ÞETTA DÝRT ÁHUGAMÁL?: Þetta kostar sitt en er algjörlega þess virði. Salome Friðgeirsdóttir: Féll fyrir afró FR É TT A B LA Ð IÐ /V A LL I DELLU kellingin Verð: 15.900 Litir: Svartir - Marglitir Verð: 5.200 Litir: Svartir , Gull, Silfur Verð: 25.900 Litir: Svartir – Gráir KRINGLAN Verð: 23.900 Litir: Svartir. Verð: 24.900 Litir: Ljósbrúnt Verð: 25.900 Litir: Ljósbrúnt Frelsið er yndislegt... Full búð af Vorvörum

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.