Fréttablaðið - 18.02.2011, Blaðsíða 26
6 föstudagur 18. febrúar
Töfratalan
É g er oft spurð út í kynjamun í tengslum við kynfræðslu og þá hvort strákar spyrji annarra spurninga en stelpur. Ég þarf yfirleitt að
hugsa mig töluvert um því fyrir mér þá eru það einna helst kynfærin
sem aðgreina kynin en ekki kynlífsathafnir. Það væri þó lygi að segja
að kynin komi eins að borði þegar viðkemur kynfræðslu. Fljótt á litið
virðast konur vera tilbúnari til að ræða flesta króka og kima kynlífs
á fróðleiksfúsan en hispurslausan hátt. Karlmenn virðast hins vegar
oft á tíðum vera feimnari og gera sér upp algert áhugaleysi um efnið.
Hvort það sé raunin get ég ekki sagt til um. Þó er það mín reynsla að
spurningar karlmanna snúi helst að mér og minni persónulegu kynlífs-
reynslu, og þá sérstaklega í tengslum við framandi
stellingar og fjölda bólfélaga.
Ég gæti brugðist ókvæða við og talið þetta sönn-
un þess að menn séu svín sem kunna sig ekki, en
ég held að spurningin risti dýpra en svo. Ég tel því
að spurningin sé til þess falin að kanna hvort ég sé
traustsins verð og ef ég svara rétt þá geti karlmenn
spurt að því sem raunverulega brennur á þeim. Þrátt
fyrir þessa túlkun mína þá breytir það því ekki að
á hverjum einasta degi heyrist spurningin: hversu
mörgum hefur þú stundað kynlíf með? Persónulega
tel ég þetta málinu algerlega óviðkomandi og ein
dónalegasta spurning sem hægt er að spyrja. Fjöldi
rekkjunauta er leikur að tölum sem segir ekki til um
kynlífsathafnir viðkomandi, hvorki í fortíð, nútíð né
framtíð. Einn bólfélagi getur þýtt annaðhvort fjöldinn allur af samförum
eða bara eitt skipti. Ég læt þig svo um að dæma hvort sé meira lýsandi
þó tala einstaklinga sé sú sama. Þetta er sígilda sagan um madonnuna
og hóruna. Karlar eiga að sækja sér karlmennsku og kynlífsreynslu í
sköpum sem flestra kvenna á meðan þessar sömu dömur eiga að læsa
beltinu og bíða eftir þeim eina rétta. Þessi tvískinnungur gengur ekki
upp og er því alger rökleysa. Einstaklingum væri nær að ræða hvað
þeir væru tilbúnir til að prufa frekar en með hversu mörgum þeir hafa
prufað það. Við þurfum að hætta að spyrja að hlutum sem engu máli
skipta. Til að hnýta endanlegan hnút á umræðuna þá er það mýta að
píkan slappist og verði víð eftir ákveðið magn samfara, rétt eins og typpi
minnka ekki né stækka því oftar sem þau eru strokkuð. Verum smart
og sýnum hvort öðru virðingu í samræðum og samförum.
Á RÚMSTOKKNUM
Sigga Dögg kynfræðingur
Fjöldi
rekkju-
nauta er leik-
ur að tölum
sem segir ekki
til um kynlífs-
athafnir við-
komandi,
hvorki í for-
tíð, nútíð né
framtíð.“
Sendu Siggu Dögg póst með spurningum eða óskum um umfjöllunarefni.
Netfangið er kynlif@frettabladid.is
ALDUR: 29 ára
STARF: Verkefnastjóri
HVAÐ ERTU BÚIN AÐ STUNDA AFRÓ LENGI?: Ég byrjaði að stunda afró á mínum fyrstu árum í framhaldsskóla en hef
tekið mér góðar pásur á milli þegar ég hef verið búsett erlendis.
AF HVERJU BYRJAÐIR ÞÚ?: Ég féll fyrir afró þegar það kom hópur úr Kramhúsinu að sýna í gaggó. Ég var að leita mér að
góðri hreyfingu og vildi prófa eitthvað nýtt. Lifandi tónlist í fjölmenningarlegu umhverfi heillaði mig.
HVAÐ ER ÞAÐ BESTA VIÐ AFRÓ?: Samsetning af kraftmiklum hreyfingum, dansi, lifandi tónlist og góðum félagsskap er
galdurinn.
ER ÞETTA DÝRT ÁHUGAMÁL?: Þetta kostar sitt en er algjörlega þess virði.
Salome Friðgeirsdóttir:
Féll fyrir afró
FR
É
TT
A
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
DELLU
kellingin
Verð: 15.900
Litir: Svartir - Marglitir
Verð: 5.200
Litir: Svartir , Gull, Silfur
Verð: 25.900
Litir: Svartir – Gráir
KRINGLAN
Verð: 23.900
Litir: Svartir.
Verð: 24.900
Litir: Ljósbrúnt
Verð: 25.900
Litir: Ljósbrúnt
Frelsið
er yndislegt...
Full búð af Vorvörum