Fréttablaðið - 18.02.2011, Síða 29
18. febrúar föstudagur 9
feiminn,“ segir hún og hlær. „Það
helgast helst af því hvað þetta fólk
er yfirleitt skemmtilegt og opið.“
Hún segir kvikmyndaiðnaðinn
hér á landi hafa þróast gríðar-
lega eftir samstarfið við allt það
erlenda fagfólk sem hingað hefur
komið í tengslum við kvikmynda-
framleiðslu og því sé mikilvægt að
halda áfram að fá slík verkefni til
landsins. „Íslenski kvikmynda-
bransinn hefur þróast mikið við
þetta og þess vegna skiptir það
fagið máli að halda áfram að fá
verkefni til landsins. Svo má auð-
vitað ekki gleyma fjárhagslega
ávinningnum sem hlýst af þessu,“
segir hún.
Helga Margrét segir mikla vinnu
liggja að baki því að fá erlenda
kvikmyndaframleiðendur hing-
að til lands og fer mikill tími í
að kynna og markaðssetja land-
ið fyrir erlendum kvikmyndafram-
leiðendum. „Helstu kostir þess að
taka upp á Íslandi eru landslagið
og þær stuttu fjarlægðir sem eru á
milli staða. Hér þarf að keyra mjög
stutt til þess að skipta um lands-
lag. Við höfum þó átt í erfiðleikum
með að fá fólk hingað eftir gosið
í Eyjafjallajökli þar sem erlend
tryggingafyrirtæki neituðu um
tíma að tryggja framleiðslufyrir-
tækin ef þau ætluðu sér hingað til
lands. Það er þó sem betur fer að
breytast núna,“ segir hún.
EINKALÍFIÐ VIRT
Innan kvikmyndabransans starfa
margir karlmenn og eru konur í
nokkrum minnihluta og segist
Helga Margrét ekki vita af hverju
svo er. Hún tekur þó fram að breyt-
ing hafi orðið þar á undanfarin ár
og að sífellt fleiri konur taki að
sér störf við kvikmyndagerð. „Það
hefur sem betur fer orðið fjölgun
á konum sem starfa innan þessa
geira. Konur hafa alltaf verið
sterkar innan framleiðsludeildar-
innar, í búningahönnun og förðun
en sótt minna í störf eins og ljósa-
hönnun og tæknibrellugerð. Ann-
ars tel ég að konur eigi vel heima
í þessum bransa þar sem við erum
duglegar í að gera marga hluti í
einu og það er mikill kostur þegar
kemur að kvikmyndagerð,“ segir
hún brosandi.
Helga Margrét segir starfið vera
túravinnu sem geti bitnað á fjöl-
skyldulífi fólks en segir starfsfólk
Truenorth vera duglegt að aðstoða
hvert annað við að láta hlutina
ganga upp. „Við hjálpumst mikið
að og virðum einkalíf hvert ann-
ars og reynum að vinna þannig að
allir uni glaðir við sitt. Ég hef alla
tíð verið mjög heppin með sam-
starfsfólk og á milli okkar hafa
myndast sterk vinatengsl.“
GETUR EKKI VERIÐ
AÐGERÐALAUS
Helga Margrét segist hafa gaman
af starfi sínu og á meðan svo er
hyggst hún halda áfram á sömu
braut. Hún segist þó hafa ýmis
önnur áhugamál utan vinnunn-
ar og nefnir í því samhengi elda-
mennsku og hannyrðir. „Ég hef
mjög gaman af því að elda og geri
það gjarnan þegar ég vil kúpla mig
frá stressinu sem getur fylgt vinn-
unni, mér finnst líka mjög róandi
að sitja við hannyrðir.“ Hún segist
einnig njóta útivistar enda fylgir
mikil útivera starfi hennar og ný-
verið hóf hún að leika golf. „Ég hef
alltaf eitthvað fyrir stafni þegar ég
er ekki í vinnu, ætli það megi ekki
segja að það eina sem ég er ekki
góð í sé að gera ekki neitt,“ segir
hún að lokum og brosir.
✽
m
yn
da
al
bú
m
ið
Þessi mynd var tekin af okkur vinkonunum í
saumaklúbbnum SMA í kringum árið 1990. Við
höfum haldið hópinn frá því við vorum saman í
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
Þarna er ég með tveimur af systkinum mínum
og tveimur frændum heima hjá afa. Hundirinn
okkar, Snotra, er með á myndinni.
Þessi mynd er
tekin heima
hjá afa og
ömmu á Mó-
bergi í Hafnar-
firði, sem í dag
er betur þekkt
sem Setbergs-
hverfið. Fram
að 6 ára aldri
ólst ég upp í
húsi sem var
rétt hjá þeim
og fór því oft
og iðulega
í heimsókn
þangað.
afsláttur af öllu um helgina15 20%