Fréttablaðið - 18.02.2011, Blaðsíða 37
FÖSTUDAGUR 18. febrúar 2011 3
„Ég ákvað að skipta aðeins um gír
fyrir jólin og gera kántríplötu en
þegar ég var í mastersnámi hjá
Complete Vocal Institute fyrir fjór-
um árum sagði Catherine Sadolin
mér að ég væri með kántrírödd.
Ég ákvað að taka því sem hrósi
og síðan þá hefur kántríið blund-
að í mér,“ segir Selma Björnsdóttir
söngkona. Catherin Sadolin
er stofnandi Complete
Vocal Institute, sem er
einn stærsti söngskóli
Evrópu.
Selma birtist fyrir jólin
með kúrekahatt, greini-
lega búin að mastera
söngtækni kántrísöngvar-
ans sem er allt önnur en
sú sem notuð er í popp-
og söngleikjalögum
að sögn Selmu. Í
haust tekur Selma
kántríið svo alla
leið en hún ætlar
að skella sér á
tónleika með
sjálfri Dolly Part-
on í haust. Með í
för verða vinkonur
hennar og vinnufélagar.
„Við erum nokkrar sem
erum nú þegar búnar
að kaupa okkur miða.
Nanna Kristín og María
Heba leikkonur, Björk
Eiðsdóttir, blaðamað-
ur og sjónvarpskona og
svo eru nokkrar í viðbót
sem eru að melda þetta
með sér. Ætli þetta fari
ekki að verða síðustu for-
vöð að sjá söngkonuna á
sviði, hún er komin vel á
sjötugsaldurinn,“ segir
Selma.
Hljómsveit Selmu, Mið-
næturkúrekarnir er skipuð
vinsælum tónlistarmönnum,
Vigni Snæ Vigfússyni, Pálma
Sigurhjartarsyni, Benedikti
Brynleifssyni, Róberti
Þórhallssyni og Matthíasi Stefáns-
syni. Meðlimir hljómsveitarinnar
hafa því haft í nægu að snúast, til
að mynda í Söngvakeppni Sjón-
varpsins og Miðnæturkúrekarnir
hafa því aðeins komið fram á tón-
leikum einu sinni til þessa. Nú um
helgina, á laugardagskvöld troða
þeir upp í annað sinn með kántrí-
veislu á Græna hattinum á Akur-
eyri. Bæði tekur bandið lög af
plötunni Alla leið til Texas
sem kom út fyrir jólin og svo
þekkta kántríslagara.
„Ég hef haft áhuga á kántrí
frá því að ég var lítil stelpa
og hlustaði þá aðallega á
Dolly Parton og Tammy
Wynette. Pabbi hlust-
aði svo á Johnny Cash
þannig að tónlistin
var alltaf til stað-
ar á heimilinu.
Svo einhvern
veginn þegar
unglingsárin
skullu á var
þet ta ek k i
„kú l“ leng-
ur þannig að
maður lagði kán-
tríáhugann á hill-
una í talsverðan tíma,
eða allt þangað til að ég
hitti Catherine Sadoline.
Ég hef haft mjög gaman
af því að þróa með mér
þessa tækni. Maður syng-
ur frekar beint og þetta er
allt frekar hresst og hvert
lag hefur sitt þema, sjarma
og fíling,“ segir Selma sem
stefnir jafnframt á að gera
kántríjólaplötu fyrir næstu
jól. - jma
Fer að sjá Dolly
Parton í haust
Nýr söngheimur opnaðist Selmu Björnsdóttur söngkonu þegar hún fór
að æfa kántrísöngtækni. Auk þess að stofna heila kántríhljómsveit
keypti hún sér miða á Dolly Parton tónleika sem fara fram í haust.
Selma Björnsdóttir söngkona hefur lagt stund á kántrísönglistina undanfarið en fyrir
nokkrum árum var henni sagt að hún væri með kántrírödd. MYND/ÚR EINKASAFNI
ÚTSALA ÚTSALA
ÚTSALA
Dolly Parton er nýbúin að eiga
stórafmæli, en hún varð 65 ára
19. janúar síðastliðinn.
Árleg Risajeppasýning Toyota verður
haldin á morgun frá klukkan 12 til
16 í húsnæði Toyota að Nýbýlavegi í
Kópavogi.
Á sýningunni verða nýir Land Cruis-
er- og Hilux-jeppar en einnig verða
breyttir jeppar til sýnis, bæði nýir og
eldri bílar. Sumir breyttu bílanna eru
í eigu einstaklinga en einnig verða
sýndir bílar frá hjálparsveitum og
fyrirtækjum.
Arctic Trucks kynnir jeppabreytingar
og sýnir bíla sem fyrirtækið hefur
breytt. Auk þess verða sýndar myndir
frá ferð á Suðurskautið á Hilux-jepp-
um sem fyrirtækið hafði breytt.
Garmin verður með kynningu á
leiðsögubúnaði, AMG Aukaraf kynnir
bílavörur og Jeppaklúbbur Útivistar
kynnir starfsemi
sína.
Risa jeppasýning
hjá Toyota
NÝIR LAND CRUISER- OG HILUX-JEPPAR
AUK BREYTTRA JEPPA VERÐA TIL SÝNIS.
Jeppar í ýmsum stærðarflokkum verða
til sýnis hjá Toyota á morgun.
Arctic Trucks
sýna myndir frá
ferðalagi til Suðurskautslandsins.
Síðasta sýningarhelgi á verkum barna úr Myndlista-
skólanum í Reykjavík í Listasafni Íslands. Í vetur gerðu
nemendur Myndlistaskólans í Reykjavík sér ferð á Lista-
safn Íslands og skoðuðu sérstaklega ólíkar birtingar-
myndir landslags í verkunum á sýningunni. Í framhald-
inu unnu þeir verk þar sem þeir tókust
sjálfir á við landslagið. Opnuð var
sýning hinn 5. febrúar þar sem
gefur að líta afraksturinn.
listasafn.is
E n g i f e r e h f – D i g r a n e s v e g i 1 0 K ó p a v o g i – S í m i 5 2 7 2 7 7 7
w w w. m y s e c r e t . i s – i n f o @ m y s e c r e t . i s
Nú færð þú hinn frábæra
hreinsunardrykk
„Beat the body
with goji” á 2 fyrir 1
Frábærar reynslusögur viðskiptavina okkar hafa
nú þegar sannað góð áhrif drykkjarins.
Innihaldsefni: engifer, gojiber, rauðrófur, cayenne pipar og bláber hafa mjög
góð áhrif á hreinsun líkamanns.
Verð 1990,- 2x2lítar!
Fæst einungis Á Digranesvegi 10 – á meðan birgðir endast.
Sendum á landsbyggðina.