Barnablaðið - 01.12.1992, Síða 9

Barnablaðið - 01.12.1992, Síða 9
BARNABLAÐIÐ 9 j^onungurinn og pundin Maður nokkur göfugur að ætt, ferðaðist í fjarlægt land, til þess að taka við konung- dómi og koma síðan aftur. Og hann kallaði til sín tíu þjóna, seldi þeim í hendur eitt pund hverjum og sagði við þá: Verslið með þetta þangað til ég kem. En landar hans hötuðu hann og sendu mann á eftir honum til þess að flytja til hans boð. Boðin voru svona: Vér viljum ekki að þessi maður sé konungur yfir oss! Og svo bar við þegar maðurinn hafði tekið við konungdóminum og kom aftur heim, að hann kallaði til sín þjónana sem hann hafði látið fá peningana. Til þess að hann fengi að vita hvað þeir f hefðu grætt. Kom þá hinn fyrsti og sagði: Herra, pund þitt hefur ávaxtast um tíu pund. Og konungurinn sagði við hann: Gott, þú góði þjónn, af því að þú varst trúr í mjög litlu, þá skaltu hafa yfirráð yfir tíu borgum. Annar þjónn kom inn og sagði: Pund þitt, Herra, hefur gefið af sér fimm pund. Og konungurinn sagði sömuleiðis við hann: P>ú skalt ráða yfir fimm borgum. Og enn annar kom og sagði: Herra, sjá, hér er pund þitt, sem ég hef geymt vel í vasaklútnum mínum. ✓ Eg var hræddur um að glata pundinu og þú yrðir reiður við mig. Konungurinn varð reiður og sagði: Þú hefðir að minnsta kosti getað sett peninginn í banka, þá hefði ég fengið vexti af peningnum. En nú tek ég af þér peninginn og gef hann þeim þjóni sem var með tíu pundin.

x

Barnablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.