Barnablaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 34
34 BARNABLAÐIÐ
Komið þið sæl og blessuð.
Nú ætla ég að segja ykkur
sögu af sjálfum mér. Sagan
gerðist fyrir nokkrum árum.
Ég var að búa til jólagjafir í
herberginu mínu. Ég bjó til
hálsfesti fyrir mömmu og
teiknaði fína mynd fyrir
pabba, sem ég setti í ramma.
Þegar ég var búinn að þessu
fór ég fram. Pabbi og
mamma voru að laga til í
geymslunni fyrir jólin og voru
ekkert að fylgjast með mér.
Allt í einu fékk ég góða hug-
mynd eða það fannst mér
þá. Ég ákvað að leita að jóla-
gjöfunum mínum. Ég vissi
að pabbi og mamma voru
búin að kaupa alla pakkana,
en ég vissi ekki hvar þeir
voru geymdir. Ég leitaði alls
staðar. Ég var að vona að
þau hefðu keypt bílabraut
handa mér. Mig hefur svo
lengi langað í bílabraut. Ef ég
fengi nú bílabraut. Hvernig
væri hún og hvernig væru
bílarnir á litinn? Leiddur
áfram af forvitninni, leitaði
ég á öllum líklegustu og
ólíklegustu stöðunum í
húsinu. Allt í einu kom ég
auga á pakkana. Þeir voru
allirgeymdirundirsófanum í
stofunni. Hvaða pakki ætli
sé til mín? hugsaði ég og reif
örlítið í bréfið á einum
pakkanum. í Ijós kom bíla-
braut. Ég átti þá að fá
bílabraut. Frábært! Ég lá
þarna lengi og skoðaði
kassann með bílabrautinni.
Það var greinilegt að bíla-
brautin átti að vera tengd við
rafmagn og tveir bílar fylgdu
með. Þetta voru svakalega
Texti: EJ
Teikn.:EJ
flottir kappakstursbílar, annar
var rauður og hinn blár. Ég
var mjög ánægður.
Það voru ennþá nokkrir
dagar til jóla. Á hverjum degi
fóréginn ístofu,skreiðundir
sófann og skoðaði bíla-
brautina. Ég gætti þess vel
að láta pabba og mömmu
ekki taka eftir neinu.
Loksins kom aðfangadags-
kvöld. Við fórum í kirkju,
borðuðum góðan mat og
ioksins fékk ég að opna
pakkann. Pabbi og mamma