Barnablaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 12

Barnablaðið - 01.12.1992, Blaðsíða 12
12 BARNABLAÐIÐ Hefurðu gaman af teiknimynda- sögum eins og ég? Hver er uppáhalds teiknimynda- sagan þín? Andrés önd? Grettir? Ferdínand? Eða eitthvað annað? Stundum teikna ég mínar eigin teiknimyndasögur. Pað finnst mér skemmtilegt. Þú ættir að reyna það líka! HVAÐ ERU TEIKNIMYNDASÖGUR? Það eru litlar myndaraðir með nokkrum römmum. Þú hefur áreiðanlega rekist á þær í dagblöðunum. Stundum eru sög- urnar framhaldssögur, en stundum ekki. Það er hægt að segja ýmislegt í teikni- myndasögu. Það er hægt að segja frá því sem hefur gerst í raunveruleik- anum, eða frá einhverju sem við látum okkur detta í hug. í flestum teiknimyndasögum kemur það fyndna í síðasta rammanum. Hér koma nokkur góð ráð. EIGIN SÖGUHETJA Það getur verið skemmtilegt að búa til eigin söguhetju. Einhvern sem enginn hefur teiknað áður. Þú getur reynt að teikna einhvern hlaupandi eða gang- andi, liggjandi eða sitjandi. Glaðan eða reiðan, óheppinn, eða heppinn. Þú getur meira að segja skoðað sjálfan þig í spegli og séð hvernig svipurinn breytist þegar þú brosir, grenjar, ert hissa og svo framvegis. ORÐABLÖÐRUR Myndasaga þarf ekki endilega að hafa texta. En þegar söguhetjurnar tala teiknar þú orðablöðrur. Þær geta verið með ýmsu móti.

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.