Barnablaðið - 01.12.1992, Page 17

Barnablaðið - 01.12.1992, Page 17
BARNABLAÐIÐ 17 Helga Sigríður Úlfarsdóttir, 10 ára Hvaö er skemmtilegast í KFUK? Það er gaman að læra um Guð. Um hvað biður þú, þegar þú biður til Guðs? Ég bið fyrir öllu fólki í heiminum. Er algengt að krakkar biðji til Guðs? Já, það held ég. Hvað ætlarþú að verða þegarþú ertorðin stór? Dýralæknir. Guðrún Osk Gunnarsdóttir, 10 ára Hvenær byrjaðir þú í KFUK ? Ég byrjaði í fyrra, svo ákvað ég að fara aftur núna. Hvað finnst þér skemmtilegast? Mér finnst skemmtilegast að syngja. Biðurþú stundum til Guðs? Já, mamma mín biður alltaf með mér. Við eigum bænabók með fullt af bænum. Hvað ætlarþú að verða þegar þú ert orðin stór? Ég er ekki búin að ákveða það. Hildur Einarsdóttir, 7 ára Hvenær byrjaðir þú í KFUK? Ég er nýbyrjuð. Ég er búin að fara á fjóra fundi. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Mér finnst skemmtilegast að föndra. Síðast föndruðum við merki. Biður þú stundum til Guðs? Já. Ég bið stundum Faðir vor - stundum bið ég ein og stundum biður mamma með mér. Hvað ætlar þú að verða þegar þú ert orðin stór? Dagmamma

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.