Barnablaðið - 01.12.1992, Page 27

Barnablaðið - 01.12.1992, Page 27
BARNABLAÐIÐ 27 komumst viö ekki upp á leikstofu. Fóstrurnar er svo góöar að þær komatilokkarmeðdóteðaföndur. Þau okkar sem komast inn á leikstofuna geta setið við borð og málaðeðaleirað. Hinirfápúltupp í rúm og nota þau til að teikna á. Þó við séum í rúmunum okkar getum gert ýmislegt. Ef við viljum mála, þá förum við bara í málningasloppana okkar og málum í rúminu. Stundum fáum við að leira með trölladeigi. Mikið væri nú gaman ef það væri lítill ofn inni á leikstofu, þar sem við gætum bakað eða brennt leir! Uppáhaldsleikur margra krakka á spítalanum er læknis- leikur. Hér eru sko til allar græjur! Til dæmis er dúkkan Lotta mjög sniðug. Þettaerstórtuskudúkka. Það er hægt að opna hana og sjá hvernig er innan í henni. Það ertil dæmis hægt að sjá hjartað eða magannogmeira aðsegjabeinin! Við skoðum Lottu oft. Svo eru til alls konar venjulegar dúkkur. Við sprautum þær og gefum þeim lyf í æð. Svo fá þær plástur. Okkur finnst gott að fara í læknisleik. Þá getum við gert það við dúkkurnar, sem læknarnir og hjúkrunar- konurnar gera við okkur. Það er skemmtilegt. Stóru krakkarnir leika sér líka á leikstofunni. Þeim finnst hún svolítið barnaleg - sérstaklega ungling- unum. Þá vantar herbergi til að hlusta ánýjustudægurlögin, spjalla saman eða fara í tölvuspil. Ungl- ingarnireru nefnilega hættir að leika sér með dót. En samt eru þeir settir á barna- deildina af því að það erengin sérstökdeild til fyrir unglinga. Hérer líkaskóli fyrir krakka sem eru byrjaðir í skóla. Kenn- arinn lætur okkur fá allskonarskemmtileg verkefni. Stundum kemur trúður í heimsókn og leikur listir sínar fyrir okkur. Svo verður auðvitað haldin jóla- skemmtun. stendur það nú allt saman til bóta. Þó leikstofan okkar sé fyrir Við fréttum að nú væri verið að löngu orðin alltof lítil erum við þó safna peningum til þess að bæta heppin að hafa hana. Á sumum leikaðstöðu krakka á sjúkra- sjúkrahúsum erengin leikaðstaða húsum. Það þykirokkurvænt um. og ekki einu sinni dót! Hvað þá fóstrur. Samt liggja þar mörg hundruð börn á hverju ári. Það hlýtur að vera leiðinlegt. Krakkar verða að hafa nóg fyrir stafni svo þeim leiðist ekki. En vonandi Testi: EJ Myndir: EJ Um þessar mundir stendur “Umhyggja”, félag áhugafólks um þarfir veikra barna, fyrir söfnun til þess að bæta leikaðstöðuna á sjúkra- húsunum. Ef lesendur hafa áhuga á að styrkja þetta málefni, bendum við á reikning “Umhyggju”: Tékkareikningur 653. Sparisjóöur Reykjavíkur og nágrennis Skóla- vörðustíg 11. Arni Reynir í eldhúskróknum

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.