19. júní


19. júní - 19.06.1960, Blaðsíða 9

19. júní - 19.06.1960, Blaðsíða 9
eitthvað til fyrirstöðu. Gekk hann þá að gi-afreit Hólafólksins fram af kirkjudyrum. Hafði Una tengdamóðir hans sagt honum, að þar mundi Þóra Gunnarsdóttir hvila. Hóf hann að grafa þar og kom niður á tvær kistur samhliða. Þetta voru vandaðar eikarkistur og stóðu á grindum. Voru þær þakktar tróði með torfi yfir, og var allur umbúnaður hinn bezti. Hafði Árni það fyrir satt, að þetta mundu vera líkkistur þeirra mæðgna, Þóru og Sigríðar, því að þær dóu með árs millibili. Kisturnar voru svo heillegar, að hann gat þokað annarri þeirra til, svo að þar fékkst einnig gröf fyrir Siggu Tótu fast hjá þeim. Þannig komst þetta hrakhólabarn til ljósu sinnar að lokum. Tilviljun — eða svar við bæn einstæðingssálar? OÉta-málið. Margir voru erfiðleikar madömu Þóru á Hól- um. Þó mun „Otta-málið“ hafa gengið næst henni. Otti var fæddur að Höskuldsstöðum í Blöndu- hlíð 1834. Þau voru systrabörn Þóra Gunnars- dóttir og hann. En ekki líktist hann frænku sinni. Hann þótti auðnulítill og ístöðulaus gagnvart vond- um félögum, en ekki slæmur að eðlisfari. Hér verður aðeins sagt frá lokaþætti lifs hans, eftir því sem talið var opinbert leyndarmál, þegar at- burðirnar gerðust. Otti var vinnumaður á Hólum. Tveim árum eftir að Þóra Gunnarsdóttir flyzt þangað, hurfu 200 dalir úr læstri kistu í útihúsi á Reykjum í Hjaltadal. Fór þetta leynt i fyrstu, en svo kom, að kæra barst Eggerti Briem sýslumanni vegna stuldsins. Kom sýslumaður heim að Hólum, setti rétt og stefndi þangað vitnum. Hafði áður fallið grunur á nokkra Hólamenn. Mun sýslumanni hafa þótt Otti grunsamlegur, því að hann var fluttur að heiman á sýslumannssetrið á Hjaltastöðum og hafður þar í haldi. Skömmu síðar hvarf hann þaðan og leitaði þá á náðir Þóru frændkonu sinnar á Hólum. Tók hún við honum. En brátt kom upp kvittur um verustað hans, og skipaði sýslumaður hreppstjóra Hólahrepps ásamt öðrum manni að gera leit á Hólum. Hreppstjórinn varð að hlýða, en ekki mun honum hafa verið mjög umhugað um að finna skjólstæðing madömu Þóru. Hún hafði líknað barni hans veiku, og hann mat hana mikils. Leitin bar engan árangur. Var Otti síðan á Hólum og jafnvel víðar á laun í útihúsum og kom aldrei til manna. Sýnir það næstum ótrúlegar vinsældir madömu Þóru meðal heimilismanna og sveitafólks, að það skyldi þegja um þetta. Verður nú löng saga stutt: Það líður á vetur. Otti þolir illa einveruna til lengdar, brestur kjark, vill gefa sig fram og meðganga. Sáu þá söku- nautar hans sitt ráð óvænna. Voru þeir honum bæði harðari og verri og tóku að lokum það ör- þrifaráð að fylla hann með brennivíni og stytta honum síðan aldur. Ekki vissi fólk á Hólum, hvað um Otta varð, hefur ef til vill vonað, að hann hafi komizt til annarra landa. Þó mun skjótt einhver leiðinda- grunur hafa lagzt á um afdrif hans. Tveir menn voru einkum grunaðir um að vera meðsekir Otta. Þeir fluttust vestur urn haf um þessar mundir. Löngu seinna fannst lík, sem grafið hafði verið í öllum fötum niður í gamalt leiði í Hólakirkju- garði. Var álitið, að þetta hefði verið lík Otta. Það leiði hafði verið nýorpið, er Otti hvarf. En þegar hér var kornið sögu, voru allir þeir dánir, sem við þetta mál voru riðnir, og þótti því engin ástæða til að rifja það upp að nýju. Var líkið þess vegna jarðað i k)rrrþey og sem minnst um þetta talað. Dauðir hafa sinn dóm með sér. En erfitt hefur andrúmsloftið á Hólum verið þennan vetur, og margar andvökunætur hlýtur Þóra Gunnarsdóttir að hafa átt vegna hins ógæfu- sama frænda síns. Síifasla ferðin. Fátæktin var Þóru erfið síðustu árin, og einkum var henni þó hugraun að óspilun og vandræðum Jóns tengdasonar síns. Ég sé það af bréfum henn- ar til Claessens verzlunarstjóra, að hún hefur átt í vök að verjast í því efni, að Jón lét stundum taka út í reikning hennar án leyfis. Var nú svo langt gengið fyrir Jóni; að sífelldur matarskortur var á heimili hans. Sagði hann þá stundum: „Ætli að kerlingin eigi ekki eitthvað ætilegt?“ Átti hann þar við tengdamóður sína. Slundum mun hafa verið grunnt á því góða milli þeirra og madama Þóra þá reynt að tala um fyrir honum. Á það bendir þessi saga: Tíð- rætt var um það í veizlu nokkurri, hvað syngja skyldi. Þá mælti Hóla-Jón og kímdi: „Syngið það, sem hún madama Þóra vill: Syndugi maður, sjá að þér“. Síðasta frásögnin, sem ég hefi heyrt um madömu Þóru, er eftir önnu Árnadóttur frá Atlastöðum. Hún kom unglingur sem gestur i Hóla og sat 19. JtJNl 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.