19. júní - 19.06.1960, Blaðsíða 35
sér grein fyrir mikilvægi hinnar sálfræðilegu hlið-
ar allra afbrotamála.
Til að fyrirbyggja allan misskilning skal á það
bent, að það er ekki ætlun þessara samtaka að
koma því til leiðar, að afbrotamenn komist hjá
refsingu. Refsing er það meðal, sem þjóðfélagið
beitir, til að koma í veg fyrir afbrot, um leið og
henni er ætlað að hafa bætandi áhrif á þann, sem
fyrir henni verður.
Til hliðsjónar við stofnun þessara samtaka hef-
ur verið stuðzt við samsvarandi félög á Norður-
löndum. Við getum að nokkru stuðzt við þá reynslu,
sem fengin er af meðferð þessara mála þar, en
verðum samt að fara varlega í því efni. Af skilj-
anlegum ástæðum mæta fleiri erfiðleikar slíku fé-
lagi meðal fámennrar þjóðar, þar sem segja má,
að hver þekki annan. Samtökin hafa þegar hafið
starfsemi sína og ráðið ungan og efnilegan mann
sem framkvæmdarstjóra, Axel Kvaran stud. jur. frá
Akureyri. Samtökin hafa bækistöð sína í Aðal-
stræti 18 í Reykjavík. Alþingi hefur veitt styrk til
samtakanna, en ætlunin er að leita til allra bæjar-
og sveitarfélaga um framlag til starfseminnar, svo
og til einstaklinga og fyrirtækja.
f ljós kemur, þegar farið er að vinna að þess-
um málum á breiðari grundvelli en verið hefur,
að verkefnin eru ótæmandi. Okkur vantar t. d.
skóla og vinnuheimili fyrir unga menn og konur,
þótt vissulega væri æskilegast að hafa samband við
góð sveitaheimili um dvöl þeirra ungmenna, sem
um stundarsakir hafa lent á öndverðum meiði við
þjóðfélagið. Dvöl æskufólks til sveita, í nánum
tengslum við náttúru landsins, hefur lengst af þótt
hafa þroskandi áhrif á það. Það er vandinn mesti
við verkefni sem þetta, að ekkert tilfelli er öðru líkt.
Ekkert allsherjarmeðal er til, engin forskrift að
fara eftir. Reynsla þeirra samtaka, sem um þessi
mál fjalla, er sú, að meginmáli skipti, að til starfs-
ins veljist áhugafólk, bvúð þeim kostum að vera
blátt áfram, eðlilegt og velviljað, hafi kynnt sér
þessi mál og gert sér grein fyrir sálfræðilegri hlið
málsins.
Dálítið hefur borið á því, að almenningur mis-
skilji tilgang samtaka þessara. Vissulega vildum við
vera þess umkomin að veita liðveizlu sem flestum.
sem þurfa þess með, t. d. þeim, sem hafa fyrir-
gert lífi sínu með ofdrykkju, en mikill hluti þeirra
afbrota, sem framin eru hér á landi, stafar af
áfengisneyzlu. Oftlega hefur verið gert að umtals-
efni vaxandi drykkjuskapur unglinga hér í höfuð-
staðnum, sem að lokum leiðir þá út á afbrota-
brautina, og mætti þá segja að betra er að byrgja
brunninn, áður en barnið dettur ofan í, bæði á því
sviði sem öðru. En eins og ástandið er í dag, er
vissulega þörf á hjálp til handa þeim, sem hér
hefur verið rætt um.
Alþekkt er gríska spakmælið: Verðugasta verk-
efni mannsins er maðurinn sjálfur. Kristindómur-
inn bendir á óendanlegt gildi hverrar mannssálar.
Menning okkar bendir á manngildið og kærleik-
ann sem æðsta hugsjón.
Islenzkar konur, tökum höndum saman og leggj-
umst á eitt til að efla starfsemi „Vemdar“, sem
stofnuð var að tilhlutun Kvenréttindafélags Islands.
Réttum hinum minnsta bróður og systur hjálpar-
hönd, minnugar orðanna: „Hvað þér gjörðuð við
einn af þessum minnstu bræðrum mínum, það
hafið þér mér gjört.“
Þóra Einarsdóttir.
Floiri listfræifingar.
f tímaritinu Icelandic Canadian er sagt frá ný-
útkominni bók listfræðilegs efnis, Design Funda-
mentals, eftir konu af íslenzkum ættum, dr. Carol
Feldsted.
Dr. Carol er fædd í Winnipeg 1918, dóttir Egg-
erts S. Feldsted og konu lians. Hún er doktor frá
Svartaskóla í París.
Fr<‘ilrika Itremer Forliumlct
átti 75 ára afmæli á sl. ári. I því tilefni
var gefin út bók, er nefnist „Kvinnovarld i var-
dande“, og eru það 12 ritgerðir um margs konar
efni, er konur varða í fortíð, nútíð og framtíð, og
er sú bók mjög lærdómsrík.
Úða veSur eru á súS,
æSimörg er hríSin skœS.
BúSu þig í skinna skruS,
skrœSan þín, og stattu á hœS.
Þorbjörg Arnadóttir,
Langhúsum.
19. JÚNl
33