19. júní


19. júní - 19.06.1960, Blaðsíða 39

19. júní - 19.06.1960, Blaðsíða 39
vík, þar hefur maðurinn minn fengið atvinnu, og ég ætla mér að stunda þar mitt fag, sem ég vona, að ég fái vinnu við. Maður getur tekið að sér sérstakt verk, lokið því og snúið sér svo að hús- verkunum á milli. — En börnin? — Já, það er gott, að þau komi ekki, fyrr en náminu er lokið —- eins og hjá okkur. Hitt tefur auðvitað, en þó er sjálfsagt að láta slíkt ekki stöðva námið. Ég vil eindregið hvetja stúlkur til þess að læra þessa iðngrein, því að ég álít, að stúfkur geti það engu síður en piltar. Fagið snertir einmitt oft það, sem við höfum alltaf mikinn áhuga á, híbýlaprýði og skreytingar. P. J. PronÉari. Þóra Elfa Björnsson lauk sveinsprófi í prentiðn í desember sl. Hún er fyrsta íslenzka konan, sem tekur próf í þessari iðn. Þóra hóf nám sextán ára gömul og hefur nú, tvítug að aldri, fjögurra ára verklegt og bóklegt nám og sveinspróf að baki. Ég hitti hana, þar sem hún situr á kvöldvakt- inni við háværa setningarvélina í Hólaprenti og er að vélsetja einhver félagslög. Ég spyr, hvort hún sé vélsetjari, en hún neitar því, en segist vera að afla sér réttinda til þess og fái þau innan skamms. Þetta er nokkurs konar sérgrein, sem er fengizt við að sveinsprófi loknu. Hún hefur próf sem handsetjari. Þóra tjáir mér, að um tvennt sé að velja við prentnám: að vera prentari eða setjari. Prent er erfiðara og þess vegna ekki eins við kvenna hæfi, þar sem bera þarf þunga hluti. Aftur á móti er hún mér sammála um, að konur muni efalaust ná mikilli leikni við vélsetningu, svo handfljótar sem þær eru oftast nær. —• Hvernig tóku samstarfsmennirnir því, þegar þú 16 ára telpukorn ætlaðir þér inn á starfssvið þeirra? — Þeir tóku mér vel, en ég heyrði, að stéttar- bræður mínir væru vantrúaðir á, að ég myndi ljúka námi. — Og þeim hefur ekkert þótt verra, að þeim skyldi skjátlast? —■ Nei, nei, prentarar eru ágætir samstarfs- menn. — Hvers vegna valdir þú þetta viðfangsefni? -—■ Mér fannst nóg um skólasetur að sinni, þegar ég hafði lokið gagnfræðaprófi, enda lítið um skóla, sem veittu nokkur réttindi, nema þá að fara í háskóla og taka embættispróf. — Og þú hefur ekki haft löngun til þess að leggja á langskólabrautina eða gerast kennari? — Nei, kennslu vildi ég alls ekki fást við. — Þú hefur orðið þér úti um mann og barn, á meðan þú varst við nám. Tafði barneignin þig ekki? — Nei, nemar liafa rétt til forfalla á náms- tímanum og meistarinn var velviljaður. Auk þess lauk ég bóknámi á skemmri tíma en til er ætlazt í samningum. Nú er kominu annar setjari. Hann sezt við næstu vél, og hávaðinn yfirgnæfir allt. Ég óska þessari tvitugu konu til hamingju með þann dugn- að að hafa lokið námi sínu og halda áfram starfi því, sem hún hefur menntun til, þótt hún hafi gefið framtíðinni litla dóttur, sem henni er ljúft og skylt að annast. En skyldur sínar sem móðir ætti engin kona að þurfa að vanrækja, þótt hún helgi sérgrein sinni 48 klukkustundir af þeim 168, sem eru í hverri viku ævinnar. V. B. Kvonprcstar í Sríþjúif. Eftir margra ára harða baráttu hafa kvenguð- fræðingar í Svíþjóð nú fengið lejdi til að taka vígslu. 19. .TÚNl 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.