19. júní


19. júní - 19.06.1960, Blaðsíða 22

19. júní - 19.06.1960, Blaðsíða 22
ItltOSTMIt HLEKKIR Síðan í fyrra hafa tíu félagskonur látizt. Allar voru konur þessar góðir og áhugasamir félagar. Kvenréttindafélaginu er því mikill sjónarsviptir að fráfalli svo margra og mætra félagskvenna. Anna FriSriksson (f. Christensen) var fædd í Danmörku 28. febr. 1889, d. 27. febr. 1960. Hún giftist 1912 Ólafi Friðrikssyni rithöfundi, og áttu þau einn son. Frú Anna stofnaði 1916 verzlunina Hljóðfæra- hús Reykjavíkur, sem var fyrsta sérverzlun hér á landi þeirrar tegundar. Hún gekkst fyrir heim- sóknum erlendra tónlistarmanna og var allmörg ár umboðsmaður þeirra og kynnir; Elín Þóra Pétursdóttir Maack Snœdal var fædd 9. sept. 1886, dáin ll.janúar 1960. Giftist 6. sept. 1908 Vilhjálmi Jóni Gunnarssyni Snædal. Þau eignuðust 6 börn. Elín var félagslynd og mikilhæf kona og sér- staklega rómuð fyrir gestrisni. Þau hjónin bjuggu mörg ár rausnarbúi á Eiríksstöðum á Jökuldal, og þangað leituðu oft næturgestir, er þurftu aðhlynn- ingar við. En aldrei urðu þeir svo margir, að frú Elínu þryti hjarta- eða húsrúm. GuSrún J. Erlings var f. 10. janúar 1878, d. 1. maí 1960, kona Þorsteins Erlingssonar skálds. Þau áttu 2 böm. Hún bjó manni sínum gott og ást- ríkt heimili, og var hans hægri hönd. Fyrir það stendur öll þjóðin í þakkarskuld við hana. Hún var félagslynd og lét sér m. a. mjög annt um menntun kvenna bæði til munns og handa. Gaf út ársritið „Dropa", en þar birtust ævintýri, sög- ur og ljóð eftir konur. GuSrún SigurSardóttir var f. 25. okt. 1890, d. 4. maí 1960. Giftist 21.júní 1917 Magnúsi Guð- mundssyni. Þau áttu tvo sonu. Hún lét sér mjög annt um hag K.R.F.l. og var jafnan reiðubúin að vinna fyrir það. Skörungsskapur, glaðlyndi og hressandi andblær fylgdi henni, hvar sem hún fór. Kristín Brandsdóttir Arnett var f. 2. apríl 1887, d. 17. apríl 1959. Giftist dr. Helga Pjeturss 28. marz 1904. Þau áttu 4 böm. Hún var glæsileg kona og ávann sér hylli þeirra, sem kynntust henni, og var ávallt reiðubúin að starfa fyrir K.R.F.I., þegar til hennar var leitað. Kristín Ólafsdóttir var f. 18. febr. 1901, d. 5. ág. 1959. Hún giftist í október 1922 Guðlaugi Gísla- syni gullsmið. Þau áttu 4 börn. Frú Kristín var óvenju félagslynd og starfaði vel og lengi fyrir K.R.F.I. Hún átti mörg ár sæti i Mæðrastyrks- nefnd og vann þar mikið og gott starf. Ennfrem- ur átti hún sæti í Barnaverndarnefnd í mörg ár. Ólafía Ólafsdóttir var f. 8. marz 1895, d. 27. apríl 1960. Giftist 14. júní 1919 Pétri Jóhannes- syni. Þau áttu 5 börn. Hún var dugnaðar- og hann- yrðakona, ákaflega heimakær, en sinnti þó félags- málum, meðan heilsa hennar leyfði. Rósa Vigfúsdóttir var f. 28. sept. 1886, d. 1. sept. 1959. Hún var alla ævi áhugasöm kvenréttinda- kona, boðin og búin til starfa fyrir K.R.F.I., þegar til hennar var leitað, enda bar hún hag félagsins fyrir brjósti til hinztu stundar. Þegar í æsku hreifst hún af kvenréttindahugsjónum og barðist af eld- móði við hlið Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og ann- arra forustukvenna fyrir kven- og mannréttinda- málum. Sólveig Jónsdóttir var f. 15. maí 1887, d. 21. maí 1960. Giftist 26. nóv. 1910 Gísla Guðmundi Guð- mundssyni. Þau áttu 6 börn. Hún var áhugasöm og félagslynd og það svo, að eftir að heilsa henn- ar leyfði henni ekki lengur að sækja fundi, lagði hún félaginu lið eftir megni. 20 19. JtTNl
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.