19. júní


19. júní - 19.06.1960, Síða 33

19. júní - 19.06.1960, Síða 33
eða hjálpað til eftir ástæðum, sáð og pjakkað með litlu heilla-skóflunni, sem við fundum í landinu, er við komum — og um fram allt óskað þess, að skógurinn risi. Getur annars ekki sameykis-stefnan farið út í öfgar, eins og flest annað? Ég las nýlega viðtal við mæta konu, sem vildi láta manna skipin okk- ar konum jafnt sem körlum, drottinn minn dýri, má ég vera undanþegin. Ég veit af reynslunni, að litlum trjágarði er illa hægt að koma upp án karl- mannskrafta. Mundi vera auðveldara að hífa upp frosna kaðla og slægja fisk á veltandi skipi í gaddi og ölduróti? En nú er ég aftur komin út af lín- unni og farin að hugsa um sjóveiki, ég átti víst að skrifa um það, livernig garðurinn hér í Bjarka- hlíð varð til. 1 stuttu máli sagt varð liann til í sinni núverandi mynd, af því að síðastliðin 20 ár höfum við á hverju vori stungið allt að því nokkr- um hundruðum af angasmáum trjám og runnum niður í jörðina. Aðallega höfum við fengið þessi tré frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur eða Skóg- rækt ríkisins, en stundum af heimasánum fræjum eða heimaklipptum græðlingum. Sumt af þessu hefur farið í súginn, eins og gengur, en flest hef- ur haldið áfram að vaxa, þótt það hafi orðið að bjarga sér sjálft að mestu leyti. Nú er júní, nú er vor og allir vegir færir; félags- málin tilheyra vetrinum, finnst mér, en nú er til- valinn tími til þess að vinna að því að fegra og prýða landið sjálft, og þá man ég það: Við vorum að mála suðurstofuna hér í Bjarka- hhð í haust, þegar óvæntan gest bar að garði, fni Hólmfríði Pétursdóttur frá Arnarvatni, en um leið og hún stígur yfir þröskuldinn og sér, hvað er á seyði, þá segir hún: „Guð blessi vinnuna.“ Mér þótti þetta mjög óvenjulega til orða tekið, en þó fallega, og nú langar mig til þess að gefa þessu ávarpi byr til fjarlægra staða. Það er trúlegt, að flestir, sem þetta lesa, hafi einhvern tíma stungið kvistum í mold og þekki því af eigin reynd þessa vini, sem alltaf eru á vís- um stað, sem eru samir í sól og byl og gefa lífinu ilm og andlega fegurð. Hvert vor er tækifæri til þess að eignast nýja vini af þessari tegund, og Guð blessi allt það starf, sem unnið er til þess að skrýða landið skógi á ný. Ólöf D. Árnadóttir. Er luggjaffnn andvígnr lijonaliöndum? Eins og oft hefur verið minnzt á í blaðinu, vonr þau lög í gildi árum saman, að það gat kostað stórfé í opinber gjöld að ganga í hjónaband. En svo sem kunnugt er, var þessum lögum breytt fyrir tveim árum og „refsiskattur“ vegna hjóna- bands afnuminn. Nú nýverið hefur enn verið gerð breyting á skattalögunum, þar sem sýnilega hefur láðst að athuga sem skyldi að láta ekki raskast það jafn- rétti, sem hjón fengu gagnvart sambýlisfólki árið 1958. Hér er lítið dæmi um skatt hjóna og einstakl- inga eftir gildandi skattalögum; skattskyldar vinnu- tekjur áætlaðar jafnháar hjá karli og konu. Tekjur, X. launaflokkur, hjá ríkinu ca. 60 þús. kr. á mann. Ógift sambýlisfólk: Skattfrjálst 50 þús. kr. á mann. Skattur af 2x10 þús. er 2X500 = 1000 kr. Hjón, sameiginlegt framtal: Skattfrjálst 70 þús. + 30 þús. (50% af tekjum konu) =100 þús. kr. Skattur af 20 þús. er 1500 kr. Hjón, sérframtal: Skattfrjálst 35 þús. kr. á mann. Skattur af 2 X 25 þús. er 2 X 2000 = 4000 kr. Að vísu hafa skattar lækkað það mikið, að hinn svokallaði refsiskattur getur ekki verið mjög hár. En sú spurning getur enn verið áleitin: Er löggjaf- inn andvigur hjónaböndum? V. B. SUNG CHIH-WÉN (d. 710): Rista á þili gistihúss norðan TaYu-fjalls. Sögn er um þaS, er til suðurs gœsirnar fljúga, það sé á þessum tíma og hér sem þœr snúa viS. SvipaS er komið suðurgöngunni minni, samferða þeim mun ég verða aftur til baka, — FljótiS er lygnt, meðan fjaraS er út, fjallskógar þéttast af rökkurmóSu —. Við nœstu dagmál í dalnum handxm mun dagsbrúnin Ijóma af plómutrjám hvítum, sem bera nú heima blómin sín. H. B. B. 19. JtJNÍ 31

x

19. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.