19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1960, Qupperneq 40

19. júní - 19.06.1960, Qupperneq 40
Sjúkrakcnnari. Frú Sigríður Björnsdóttir hefur síðastliðin þrjú ár unnið við Barnadeild Landsspítalans og stund- að þar nýstárlega starfsgrein. — Hvað kallar þú þetta starf, Sigríður? Ég kalla það oftast sjúkraiðju. Dr. Helgi heit- inn Tómasson kallaði það vinnulækningar. Einn- ig hefur heyrzt orðið athafnalækningar. Á ensku er starfsgreinin nefnd „occupational therapy", en á dönsku „beskæftigelsesterapi“. Þessi starfsgrein er orðin fastur liður i starf- semi flestra eða allra meiriháttar sjúkrahúsa, eink- um í enskumælandi löndum og á Norðurlöndum. Aðalþróunarferill sjúkraiðjunnar verður rakinn til viðleitni þessara þjóða að koma særðum og sjúk- um hermönnum sem fyrst til starfa eftir síðustu heimsstyrjöld, þótt starfsgreinin sjálf sé miklu eldri. — Hve langt er námið? Þetta er þriggja ára nám, bóklegt og verklegt. M. a. er kennd likams- og lífeðlisfræði, sálarfræði, mjög fjölbreytilegar handiðar og myndagerð, og auk þess er krafizt starfsþjálfunar á sjúkrahúsum vissan hluta námstímans. — Hafa aðrar konur lagt stund á þessa starfs- grein? Já, frk. Jóna Kristófersdóttir er starfandi sjúkra- kennari á Kleppi. Hún lauk prófi í Kaupmanna- höfn. Ég lauk teikni- og föndurkennaraprófi hér og kenndi í Kvennaskólanum í Reykjavik, Austur- hæjarharnaskóla og á barnaheimili nokkur ár. Síðan fór ég utan og starfaði að sjúkraiðjunni tæp þrjú ár undir leiðsögn lækna og sjúkrakenn- ara á bamasjúkrahúsum i Englandi og Dan- mörku. Þar sem ég ætlaði eingöngu að starfa meðal sjúkra barna, áleit ég þetta heppilegasta undirbúninginn. — Þú sérð ekki eftir að fara inn á þessa braut? Nei, öðru nær. Starfið fellur mér betur og bet- ur. Verkefnin eru líka óþrjótandi og breytileg. Fyrsta skilyrði, til þess að sjúkrakennari geri sjúkl- ingi gagn, en skaði hann ekki, er, að hann viti, hvað að sjúklingnum gengur og á hvaða stigi sjúkdómurinn er. Sjúkraiðjukennarinn þarf að vera fær um að veita sjúklingnum verkefni eftir getu hans og þörfum, hvorki of þungt né of létt, fylgja síðan eftir jafnt og þétt, samkvæmt því sem kraftar sjúklingsins eflast, svo að iðjan verði stöðugt örv- andi fyrir sjúklinginn. Gæta verður þess að taka ekki of stórt stökk, sem gæti orðið til þess, að sjúklingurinn ofreynist eða missi áhugann eða jafnvel kjarkinn fyrir starfinu. Mér dettur í hug lítið dæmi frá barnasjúkrahúsi í Birmingham. Þar var hópur barna, sem gengið hafði undir brjóst- aðgerð. Fyrst eftir aðgerðina var sjúkraiðja þeirra hlutlaus. Þeim voru t. d. sýndar mynda- bækur og sagðar sögur. Brátt fóru þau að gerast þátttakendur. Þau fengu að líma, klippa og brjóta pappír; þeim voru sýndar ýmsar þrautir, fingra- fit, eldspýtnagátur og peningagaldrar o. s. frv. Með batanum var meira lagt upp úr hreyfingum, þau fengu að vefa, flétta, mála og teikna. Þegar þau losnuðu af rúmstokknum, skildu þau ekki, hvers vegna þeim var í iðjuherberginu fengin löng vefjaskytta, langur pensill og þeim sagt að teikna stóra mynd á veggtöfluna: Það var til að þjálfa brjóstvöðvana. En aldrei má gleyma hinni sálfræðilegu hlið málsins, þjálfa hugann um leið og höndina. Eng- inn vafi er á því, að sjúkraiðjan getur haft bæt- andi áhrif á andlega líðan sjúklingsins. Með sam- tölum, leik og iðju beinist hugur sjúklingsins að athöfninni, og er þá síður hætta á því, að hann sökkvi sér niður í daprar hugsanir um persónuleg vandamál. Ég er ekki í neinum vafa um, að þörf sérmennt- aðra kvenna á þessu sviði fer sívaxandi. Þessi starfsgrein er nú nær eingöngu unnin á sjúkra- húsum. En þess verður ekki langt að bíða, að nán- ara samstarf skapist milli starfandi lækna og sál- fræðinga og sjúkrakennaranna og þróunin verði hér eins og í öðrum löndum. G. P. H. 38 19. JtJNÍ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.