19. júní

Ataaseq assigiiaat ilaat

19. júní - 19.06.1960, Qupperneq 41

19. júní - 19.06.1960, Qupperneq 41
V citingaþj ónn. Svanhildur Sigurjónsdóttir Lauk sveinsprófi sem veitingaþjónn skömmu eftir sumarmálin síðustu. Hún er fyrsta konan á Islandi, sem lýkur prófi í þessari iðngrein, en það má furðulegt teljast, þar sem konur hafa öðru fremur gert það að ævistarfi sínu að bera mönnum mat. Ég hitti Svanhildi að máli á hinum vistlega Thalíubar, þar sem hún vinnur ásamt manni sín- um, sem hefur kennt henni starfsgreinina með þeim ágæta árangri, að hún fékk þrenn verðlaun að námi loknu. Svanhildur segir mér, að kennsla nema sé að nokkru leyti einkafyrirtæki þjónanna, sem ráði þá og greiði þeim laun. Laun jijóna er 15% álag á veitingasölu, og af þeim tekjum greiða þjónar nemum. Stundum eru nokkrir þjónar um að greiða sama nema, en vitanlega verður einn þeirra sem meistari að bera ábyrgð á náminu. — Og yður fellur vel við starf yðar? — Já, mér finnst starfið skemmtilegt. Það er ánægjulegt að gera glöðu fólki til hæfis, og fólk, sem er að skemmta sér, er venjulega í góðu skapi. — Og það eru engin óþægindi að vera innan um drukkna gesti? — Ég verð afar lítið vör við drykkjuskap. Gest- ir hér eru yfirleitt prúðir í umgengni, og ölvun til lýta er mjög sjaldgæf. — Er ekki ýmsum erfiðleikum bundið, að hjón- in séu bæði samtímis við vinnu á kvöldin? Þið eig- ið börn, er það ekki? — Jú, við eigum fjóra drengi 6—14 ára. Þegar við vinnum á kvöldin, er kona heima, sem gefur þeim að borða og er tiltæk, þar til við komum heim, sem er um miðnætti eða seinna, þegar veizlur eru. — Og þið getið verið samtíða börnunum meiri hluta af starfsdegi þeirra, sennilega meira en flest hjón, sem vinna utan heimilis. — Já, og það finnst mér ágætt. Það er einmitt kosturinn við þennan vinnutíma, að hann þarf ekki að stangast svo á við starf móðurinnar. En ég vil vitanlega geta hlynnt sem bezt að drengj- unum mínum. — Finnst yður ekki hússtörfin orðin það auð- veldari nú en áður, að konur geti fremur unnið utan heimilis? — Jú, það er mikill munur á. Nú er það unn- ið léttilega á einni klukkustund, sem var áður margra stunda erfiði. — Það vinna allmargar konur við veitingastörf. Hafa þær ekki sinnt um að afla sér réttinda? — Nei, ég er eina konan, sem hef stundað þetta nám hér á landi. — Er ekki þetta einmitt starf við kvenna hæfi? — Ég kann nú betur við karlþjóna, en það er sjálfsagt vani. Konur ættu einmitt að vera vel til þess fallnar að vera liprir þjónar. — Og yður finnst konur gætu vel hafið nýtt starf, þótt þær séu giftar. — Ég held, að giftar konur gætu oftar en þær gera lært einhverjar starfsgreinar, og mér finnst sjálfsagt, að þær geri það, þegar hægt er að koma því við börnunum að meinalausu. Margar konur, sem ekki höfðu ástæðu til náms, meðan þær voru ungar, gætu bætt úr því seinna á ævinni, ef vilj- inn væri til. Ég kveð þessa geðþekku ungu konu, sem hugs- ar um drengina sína á daginn og býr þá í skóla, en vinnur við hlið eiginmannsins á kvöldin og réttir skemmtilegum gestum glösin, þegar þeir eru glaðir, og hefur ánægju af því að greiða fyrir fólki, sem er í góðu skapi. Eru ekki þessi hjón einmitt að sanna það, sem kvenréttindakonur halda fram, að vel fari á því, að hinir góðu félagar, karl og kona, vinni hlið við hlið samhent í starfi og á heimili? V. B. 19. JÚNl 39
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

19. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.