19. júní


19. júní - 19.06.1964, Blaðsíða 19

19. júní - 19.06.1964, Blaðsíða 19
HALLDÚRA B. BJÖRNBBDN: Þóra Pálsdóttir íslenzka konan í eldhúsi Valdemars prins Þóra L. Björnsson. Við, sem setið höfum marga veizluna hjá Þóru L. Björnsson, tengdamóður minni, gleymum þeim ógjarnan. Þær voru eins og veizlur eiga að vera: Það var öllu tjaldað, sem til var, það bezta var aldrei of gott, allt var skipulagt af kunnáttu og fyrirhyggju. Hún var veizlukona af guðs náð og hafði sérstakt lag á því að skapa hátíðastemn- ingu, enda var það kjörorð hennar: Skal det være gilde, so lad det være gilde! Frú Þóra giftist ung Guðmundi Björnssyni sýslu- manni á Patreksfirði og síðar í Borgarnesi, en hann lét af embætti 1938, og fluttu þau þá til Reykja- víkur. En frú Þóra hélt fast í þann góða sið, eins eftir að hún kom suður, að kalla til sín allt þeirra skyldulið nokkrum sinnum á ári, og gera okkur glaðan dag. Þau Guðmundur voru heitbundin í sex ár, og síðasta veturinn dvaldist hún einnig í Kaupmannahöfn, meðan hann lauk námi. Læknisdóttirin frá Klömbrum, sem nú var orð- in 22ja ára, vildi gjarnan gera sér eitthvað úr þess- um síðasta vetri, er hún sæti í festum, en ekki voru fararefnin meiri en það, að hún gat ekki kostað sig til náms. Hún bjó úti í Hellerup hjá móðurbróður sínum, Jóni kaupmanni Magnússyni frá Grenjaðarstað, og konu hans, Guðrúnu Ás- geirsdóttur frá Isafirði. Þau hjón höfðu haft spumir af þvi, að hjá Valdemar prinsi væri íslenzk matráðskona, og að hún vildi gjaman taka lærlinga, helzt íslenzkar stúlkur. Þessi kona hét Þóra Pálsdóttir og ólst upp í Pálsbæ á Seltjarnarnesi. Á sextánda ári kom hún á heimili Jóns Sigurðssonar forseta, ráðin þar til húsverka, og mun hafa dvalizt þar nokkur ár, en þá komst hún fyrir tilstilli Ingibjargar, konu Jóns, í hús Valdemars prins sem þjónustustúlka. Lovísu drottningu geðjaðist svo vel að íslenzku stúlkunni, Þóru Pálsdóttur, að hún lét kenna henni til fullnustu alla matargerð, sem tíðkaðist innan konungsfjölskyldunnar. Drottning stjórnaði heim- ili sínu af skörungsskap og réði jafnan sjálf til sín þjónustufólk og einnig á heimili Valdemars, yngsta sonar síns, og þótti hún vera nokkuð ráðrik og af- skiptasöm. En Þóm Pálsdóttur dugði svo vel menntun sú, sem þær sáu henni fyrir, frú Ingi- björg og Lovísa drottning, að hún skipaði sitt rúm með sóma þaðan í frá, meðan henni entist starfs- þrek, og naut hún jafnan fyllsta trausts húsbænda sinna og virðingar allra, sem henni kynntust. Og hjá þessari mætu konu lærði Þóra L. Bjömsson, tengdamóðir mín, þá matreiðslu, sem hún varð seinna fræg fyrir. Meiri skólagöngu naut hún ekki. Þar kom tali okkar nýlega, að ég bað hana að segja mér eitthvað frá þessum tíma, sem liún dvaldist í þessu konunglega eldhúsi, því þótt dag- legir atburðir hverfi henni orðið fljótlega, þá man hún þeim mun skýrar það, sem gerðist í æsku hennar. Hún tók þessu vel og læt ég hana nú segja frá: „Ég bjó úti í Hellerup og tók lestina á hverjum morgni út á Kóngsins Nýjatorg, en þar bjó Valdi- mar prins í Gulu höllinni (Det Gule Palæ). Ég gekk inn um hlið frá götunni og hringdi dyra- bjöllu, en dyravörður opnaði hurðina. Fyrsta verk mitt var að drekka morgunkaffið, yndislegt mokkakaffi með hnausþykkum rjóma, og volgt hveitibrauð með úrvals herragarðssmjöri. Það var ósvikin máltíð og elskulegt viðmót nöfnu minn- ar. Á meðan sá unglingsstúlka um matinn handa 19. JtJNl 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

19. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 19. júní
https://timarit.is/publication/671

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.