19. júní - 19.06.1964, Blaðsíða 42
Formaður K.R.F.Í.
Umræöufundur um menntun kvenna
EvrópuráðiS bauð til átta daga fundar um
menntun kvenna í Oxford í marz s. 1. Mættir
voru 33 fulltrúor frá 17 löndum Evrópu. Brezka
menntamálaráðuneytið sá um allan undirbúning
og skipulag fundarins, sem mjög var til vandað
á allan hátt.
Fulltrúi Islands á fundinum var Elalldóra Egg-
ertsdóttir námstjóri.
Þessi erindi voru flutt á fundinum:
Konan í nútíma þjóðfélagi.
Húsmæðrafræðslan og breyttir þjóðfélags-
hættir.
Sjónvarpið sem kennslutæki.
Starfsfræðsla.
Kennsluvélar.
Umræðurnar snerust því aðallega um menntun
kvenna eftir 18 ára aldur og hvemig hún gæti
búið þær undir:
a) æðri menntun og vísindastörf,
b) hlutverk þeirra i þjóðfélaginu,
c) hlutverk konunnar sem eiginkonu, hús-
móður og móður.
Þáttakendur beindu þeim tilmælum til Evrópu-
ráðsins, að það hvetji kvennasamtök til þess að
afla sér upplýsinga um aðstöðu kvenna til þess
að hefja að nýju starf sitt eftir giftingu og að
dreifa þessum upplýsingum.
Niöurstööur fulltrúaráðs fundarins
1. Við mælum með því, að öllum sé séð fyrir
góðri almennri menntun upp að 16 ára aldri
eða a. m. k. þangað til lögfestu skyldunámi
lýkur.
2. Við mælum með því, að í almennri mennt-
un drengja og stúlkna felist námsgreinamar:
þjóðfélagsfræði, hagfræði, vöruþekking og
fjölskyldufræði.
3. Við mælum með því, að stúlkur séu hvattar
til þess að halda áfram námi eins lengi og
framast er kostur, eftir að skyldunámi lýkur.
4. Við mælum með þvi, að almennri menntun
sé haldið áfram á fyrstu ámm sérhæfingar
í verknámi.
5. Við mælum með því, að húsmæðrafræðsla sé
fastur þáttur í almennri menntun kvenna.
6. Við mælum með því, að þeir, sem ekki halda
áfram námi í framhaldsskólum, séu hvattir
Á siðasta aðalfundi Kvenréttindafélags Islands
var Lára Sigurbjörnsdóttir kjörin formaður félags-
ins. Lára hefur verið i félagsstjórn siðan 1949. Vara-
formaður síðan 1953.
til að sækja námskeið, notfæra sér bréfaskóla,
útvarpskennslu eða aðra fræðslustarfsemi.
7. Við mælum með því, að sömu skilyrði séu
fyrir stúlkur sem drengi til þess að sækja
námskeið, þ. e., að bæði kynin njóti sömu
réttinda til þess að fá frí úr vinnu í þessu
skyni.
8. Við mælum með því, að grundvöllur fyrir
tómstundaiðju sé lagður í skólunum.
9. Við mælum með því, að tillit sé tekið til
tæknifræðilegra breytinga og þróunar bæði
í almennri menntun og verknámsmenntun
kvenna.
10. Við mælum með þvi, að starfsfræðslan sé
skipulögð og framkvæmd af sérmenntuðum
kennurum og vel þjálfuðum ráðgjöfum.
11. Við mælum með þvi, að starfsfræðsla stúlkna
miði að því að kynna fyrir þeim hin marg-
háttuðu störf, sem þær geta tekið að sér.
Nauðsynlegt er, að starfskynningin nái ekki
aðeins til stúlknanna, heldur einnig til for-
eldra og vinnuveitenda.
12. Við mælum með þvi, ef stúlkur ljúka ekki
námi, áður en þær gifta sig, að þá sé reynt
að búa svo í haginn, að þær geti lokið námi
eftir giftinguna.
40
19. JtJNl